Við fjölskyldan erum ekkert svo óþolinmóð - bara svo lengi sem við fáum það sem við viljum strax.
Við höfum aldrei verið mikið í því að gefa afmælis- og jólagjafir fyrirfram, það kostar fólk oftast bara auka gjafir. Við höfum þá heldur bara gefið hvert öðru það sem vantar á þeirri stundu sem hugmyndin kemur upp. Þá eru afmælis- eða jólagjöfin bara minni í það skiptið. Mér þykja börnin mín líka dugleg að bíða eftir jólum og afmælum sínum þegar þau langar í eitthvað. Þó þau eigi pening þá rjúka þau ekki út og kaupa bókina, geisladiskinn, DVD myndina, tölvuleikinn, PetShop dýrið o.s.frv. sem þau langar í. Þau hinkra og athuga hvort þau fái það sem þau helst langar í - á jólum eða afmæli. Já svo lengi sem ekki eru níu mánuðir í jólin eða afmælið.
Við BH ákváðum á sínum tíma að vita ekki kynið á börnum okkar er ég bar þau undir belti (var reyndar aldrei með belti). Ég grínaðist með það þá að ég opnaði ekki jólapakkann minn fyrir jól! Og ef það er eitthvað sem ég hef lært á þessum fullt af árum sem við BH höfum verið saman, þá er það ÞOLINMÆÐI. Þær eru ófáar klukkustundirnar sem ég hef fengið að bíða eftir honum - ef það yrði tekið saman þá væri það sennilega talið í árum, frekar en mánuðum. Er að upplagi nefnilega mjög óþolinmóð - reyndi töluvert á þolrif foreldra minna sem barn. Gjörsamlega ómöguleg ef ég þurfti að bíða í fimm mínútur eftir einhverju.
Börnin mín hafa kannski þessa óþolinmæði í genunum því bæði ákváðu þau að koma í heiminn töluvert fyrir áætlaðan fæðingardag. Óþolinmóði sonur minn átti samkvæmt sónar að fæðast í dag - þ.e. 4. nóvember 1995. En hann ákvað að koma mánuði fyrr.
Batnandi fólki er best að lifa og höfum við þrjú lært að tileinka okkur ákveðna þolinmæði, held að BH hafi alltaf verið þolinmóður.
Annars er ég farin að spá í jólagjafir, gott að dreifa þessu svona. Líka gott að hafa augun opin því það er erfitt að finna sniðugar gjafir undir pressu. Er búin að kaupa þrjár jólagjafir, komin með hugmyndir að þremur í viðbót og líka með hugmynd fyrir erfiðustu tvær gjafirnar, þ.e. fyrir börnin mín, geri aðrir betur og nóvember rétt að byrja.
Let it snow

Ummæli