Fara í aðalinnihald

Kossasjúk

Mussisjúk

Hansara varrar bleytar og blíðar
Fagrari harri aldri mær bíðar
Og ongantíð møtti mær tunga so mjúk
Ella eri eg bara mussi sjúk

Hansar varrar mær eru ein gáta
Tær kyssa upp á ein heilt annan máta
Og ongantíð møtti mær tunga so mjúk
Ella eri eg bara mussi sjúk

Hansara varrar tær gera meg villa
Lokka meg nærri og kitla meg illa
Nei ongantíð møtti mær tunga so mjúk
Ella eri eg bara mussisjúk

Man eg nú nakrantíð fara at vita
Ella so má eg so barasta gita
Varrar og kossar ein kensla so mjúk
Og eg eri helst bara mussisjúk

Finnst þetta lag með Eivöru svo frábært. Heyrði hana flytja það í annað sinn í gær hjá henni Ragnhildi. Sá það fyrst í Kastljósinu fyrir þó nokkru síðan. Vissi ekki að mússísjúk þýðir kossasjúk, fyrr en í gær. Bara eitthvað svo kósí við þetta lag! Svo er alltaf gaman að skemmta sér við að lesa færeyskuna.

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...