Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá júlí, 2010

Tussufínt

Þegar ég sat sveitt á safninu í vor var eitt sinn að fletta orðabókinni til að athuga hvort orð sem ég var að lesa væri rétt hjá mér - væri til. Datt þá niður á orðið "Tussa". Já auðvitað fletti ég tilbaka til að athuga hvað orðabókin hefði um þetta skemmtilega orð að segja. Þar sem ég sat þarna og glotti las ég að þetta orð þýðir upphaflega skjóða, skinnpoki eða eitthvað slíkt, þýðir líka kvensköp. Glottið varð meira áberandi þegar ég hugsaði til þess er við Fríða vorum í heimsókn þar sem hún var í sveit á sumrin. Við vinkonurnar sátum við eldhúsborðið að ræða málin, eða spila eða eitthvað slíkt. Þar sem við sitjum þarna í sakleysi okkar er hurðinni að forstofunni hrundið upp og yngri bóndasonurinn kallar hátt og snjallt "mamma veistu um punginn hans pabba". Auðvitað brjáluðumst við Reykjavíkurskvísurnar úr hlátri. Vissum alveg hvað hann átti við - en svona töluðum við ekki í höfuðborginni. Mér fannst afskaplega skemmtilegt að lesa að Tussa og pungur hafa svipaða m...

morgunstund...

já nei held ekki samt - væri alveg til í að sofa lengur en 5:45 á morgnana. Fínt að taka þetta svona í nokkra daga en hætta svo og sofa pínu lengur og geta þá átt aðeins lengri kvöld líka. Annars gengur þessi útburður ljómandi vel hjá okkur. Kunnum allar þessar götur og því ekki erfitt að henda blöðunum á sinn stað. Við hjólum þetta bara mæðginin og því enn fljótari en ella. Búin að græja vsk og þá eru bara launin í dag og þá má verslunarmannahelgin bara koma í öllu sínu veldi og ég get slappað af. Hef verið að hlusta á hljóðbækur undanfarnar tvær vikur. Það er ekkert smá nice að hlusta á meðan maður er að gera eitthvað annað. Út í sólbað og hlusta á sögu virkar vel. Þegar maður færir bókhald - sem er svona rútínu vinna - frábært að hlusta á meðan. Ekki gott að hlusta ef maður er að stemma af eða aðeins að hugsa. Þá heyrir maður bara í sjálfum sér. Nei ég tala ekki upphátt - ég les mínar eigin hugsanir, er snillingur. Gott að hlusta á meðan ég labba með hundana líka. Frábært að sameina...

Never ending story...

Tannréttingar = Fegrunaraðgerðir? - Stundum örugglega. En stundum nauðsynlegar til að allar tennur séu á sínum stað. Erfitt þegar allar tennur eru komnar upp og ekki er nóg pláss fyrir þær allar. Frekar snúið að geta fátt étið nema helmingurinn sitji eftir fastur á milli tannana. KBB tók þetta á mettíma. Tannréttingalæknirinn vildi reyndar gjarnan laga þessa einu augntönn sem enn hangir aðeins utar og því ekki í línu við rest. Veskið mig gólaði bara við tilhugsunina og því ákvað ég í einu pirringskastinu þarna niðurfrá að ekki yrði meira gert fyrir dömuna. Fékk það síðar staðfest af tannlækni að teinar og mörghundruðþúsundkrónur væru ekki nauðsynlegar fyrir drottninguna mína. Tennurnar hennar er toppfínar og eiga ekki eftir að valda henni ama í framtíðinni. Drengurinn hins vegar er búinn að taka aðeins lengri tíma í þetta. Enda með tennur eins og karl faðir hans. Svo það er eins gott að eftir allan þennan tíma og peningaaustur að krakkinn hafi fínar og flottar tennur sem ekki pirra han...

I will rise, but I refuse to shine...

Ættu ekki að vera lög gegn því að vakna svona snemma. Eða ætti ég kannski bara að hypja mig fyrr í rúmið? Vöknuð rétt eftir klukkan fimm en sofnaði ekki fyrr en að ganga fjögur, ekki góð blanda. Mín mistök að ákveða að bera út með syninum í morgun og næstu morgna til laugardags. Hann er með aukahverfi. Sem betur fer hverfi sem við þekkjum bæði vel. Bárum út þar í marga mánuði áður en hann tók Arnartanga. Svo þetta tók ekki langan tíma og við búin vel fyrir kl. sjö. Hætt við að ég verði geispandi í afmæli hjá litla guttanum sem er þriggja ára í dag. AFD á afmæli í dag og verður haldið upp á það með pompi og prakt. Eitthvað verður gott að borða eins og venjulega. Best er þó að þurfa ekki að elda sjálfur - elska svoleiðis daga. Er þessa dagana að vinna upp bókhaldið hjá Rögg. Ætla að vera búin með vsk fyrir helgi til að geta notið þess að vera til um verslunarmannahelgina. Kostar það að ég er ekki að vinna í ritgerðinni á meðan. Því miður er ég ekki búin að vera dugleg í henni í þessum má...

Skipt um heila...

YES - komin með vélina mína aftur :o) - Nú get ég farið að vinna og skólast aftur... enda veðrið að breytast í skýjað og rigningu. Komin með einhverja ofurgræju í hendurnar og þarf að læra á þetta eitthvað - bara gaman. Allar myndirnar okkar og tónlistin okkar verða á vélinni. SWEET! Later

Tvö í kotinu

KBB farin í Vindáshlíð og KEB lendir ekki í KEF fyrr en á miðnætti. Þannig að við BH erum hérna ein að rolast þar til frumburðurinn lætur sjá sig. Ég fór í klippingu í morgun - löngu planað - og BH keyrði því dóttur sína á Holtaveginn þar sem rútan beið. Ég er vön að sjá um allt svona og ég veit hreinlega ekki hvor okkar mæðgna átti erfiðara með þetta fyrirkomulag. En við erum harðar af okkur og vorum því fljótar að jafna okkur á þessu í gærkvöldi :o) Lottan mín ekki alveg erfið að leggja í'ann þó það sé heil vikar þar til hún kemur heim aftur. Er ég kom heim hérna í hádeginu var eiginmaður heima í eldhúsinu að fá sér hádegisverð. Nýbúinn að slá grasið - vélin bilaði í gær þegar verkið var hafið. Grasið hefur ekki verið slegið í þrjár vikur. Slíkt hefur ekki gerst á minni vakt og það var því orðið ansi loðið. Ég er þá formlega tekin við grassláttumálum heimilisins aftur núna. Þar sem ég stóð og hellti mér sjóðandi heitu vatni í tebollann minn, sat BH við eldhúsborðið og blaðraði í...

Innflytjendur

Segir ekki einhvers staðar "Allt er þá þrennt er" eða eitthvað svoleiðis? Hér eru komnar þrjár geitungastungur í vor og sumar. Ég er svona að vona að þetta sé búið núna. Samt er ágúst eftir og þá er þessi viðbjóður árásargjarnastur. Úlfur minn liggur stokkbólginn og hvílir sig. Var stunginn í gær og kom svona skemmtilega útlítandi inn eftir að hafa verið úti í gerði. Endemis geitungar - who needs them? Mér finnst alveg ástæða til þess að innflytjendaeftirlitið láti til sín taka. Þessi kvikindi fundust ekkert hérna þegar ég var krakki. Af hverju eru ekki svona pöddum vísað úr landi? Alltaf eitthvað verið að agnúast út í nýbúa og flestir þeirra eru strangheiðarlegt fólk sem er í vinnu og skóla og gerir gagn. Finnst alveg ástæða til að taka upp nýja stefnu í innflytjendamálum þjóðarinnar og henda þessum geitungum aftur til síns heima. Held að öll þjóðin gæti sameinast um þá brottvikningu ;o) Fór með Úlf áðan til þeirra á dýralæknastöðinni í Grafarholti. Þær eru alltaf jafn yndis...

Menntun er máttur...

Heyrði í litla guttanum í mínum í dag. Brjálað fjör hjá þeim. Og hann hefur ákveðið ásamt vinum sínum að klukkan tvítugt ætla þeir að fara í háskóla. Jamm - háskóla í DK. Heimsóttu fimleika háskóla félagarnir og nú verður ekki aftur snúið. Veit ekki nema þeir hafi hreinlega innritað sig bara strax til að taka frá pláss. Aðalatriðið er að það er svo gaman hjá þeim og ferðin er að heppnast súper vel :o) Later
Talaði við Höskuld í gær. Hann tók sauminn - sem var nú ekki langur. þetta er allt saumað innan frá til að örið verði sem minnst. Svo eyðast saumarnir bara. Hann var ánægður með þetta, lítur allt vel út. Spurði að fyrra bragði um doðann. Gat sagt honum að eyrað er orðið þokkalega eðlilegt aftur en kjálkabeinið og niður að hálsi er allt dofið ennþá. Fékk þá að vita að hann hefði þurft að toga eina stóra taug frá, teygja aðeins á henni og svo klippa aðra minni til að komast að öllu saman. Þetta væri því eðlilegt og gæti tekið marga mánuði að fá tilfinningu í andlitið aftur. En það er góðs viti að ég finni að þetta sé að minnka svona í rólegheitum. Það er gott að vita að þetta sé eðlilegt og taki tíma. Þá þarf maður ekki að velta því fyrir sér meir. Kom í ljós - eins og gert var ráð fyrir - að í öðrum eitlinum sem var tekinn, þessi sem þeir sáu strax að þyrfti að fjarlægja, var æxlið illkynja. En í hinum var ekkert. Svo fer ég bara til Jóns í september aftur. Það verður ekki meira geislaj...

Rigning

Kominn tími á að fara að hreyfa sig aftur. Plana gönguferð með hunda í dag... bara svona smá hring og svo engin miskun eftir helgi. Heyri hvað Höskuldur segir á mánudaginn. En miðað við fyrri reynslu af þessum læknum þá vilja þeir allir að ég komi mér út að hreyfa mig sem fyrst og sem mest. Á ekki von á að það sé neitt öðruvísi í þetta sinn. Ronja er enn stokkbólgin í andlitinu. Vakti mig þriðja morguninn í röð til að komast út til að gera þarfir sínar. Eins gott því þau voru laus í nótt. Hún ældi hérna áðan, ég voða ánægð að hún skyldi hafa verið nógu kurteis til að notast við parketið. Auðvelt að þrífa. KBB og Mímí komu hérna rétt á eftir og vildu meina að lyktin væri ógeð hérna inni - sérstaklega í stofunni. Þegar ég var búin að átta mig á að lyktin væri mest í stofunni hringdi einhverjum bjöllum í hausnum á mér. Fór að leita og fann fljótlega... búið að skíta á gólfið. Og hinn sami ekki svo kurteis því það er notast við endemis teppið. Sennilega rakkakvikindið því drottningin lætur...

Jæja þá...

Frumburðurinn á leið til Keflavíkur as I write :o/ Spurning hvernig kettlingurinn spjarar sig án mömmu sinnar. Mikið rosalega held ég að það verði gaman hjá þeim. Þau voru svo flott öll sömul í bláu peysunum og öll í svörtum buxum. Svo er þetta svo þéttur og skemmtilegur hópur að þetta getur eiginlega ekki klikkað. Hlakka til að fylgjast með þeim :o) Ronja mín er stokkbólgin hérna hjá okkur með sína eigin einka hjúkku. SBK neyðir hana til að liggja á kaldri tusku til að ná bólgunni niður. Litla skottið var stungið af geitungi hérna úti í gerði. Getur nú sjálfri sér um kennt. BH kom og ætlaði með þau út í hjólatúr með SBK á meðan ég keyrði KEB niður í Ármannsheimili. Hún var þá að leika sér að hálfdauðum geitungi en ekki búin að éta hann. Dýralæknirinn sem BH talaði við sagði að við þyrftu ekki að koma með hana ef hún hefur ekki gleypt kvikindið. Svo hún er hérna bara í slökun og ósköp aum. Ætlum að fylgjast með henni. Kristín hérna við hliðina á okkur benti á að það gæti grafið í sárin...

Klárir krakkar

Í dag var síðasti dagurinn hjá KBB og krökkunum á leiklistarnámskeiðinu hérna í bæjarleikhúsinu. Endaði með sýningu á söngleiknum Fríða og dýrið. KBB lék Gogga geðlækni, Diljá var pabbi hennar Fríðu og svo lék Andrea eina af ljóskunum. Krakkarnir brilleruðu eins og von var á og við foreldrar og vinir skemmtum okkur konunglega á sýningunni. Eins og lög gera ráð fyrir hittist allt á sama daginn. KEB fór klukkan tvö á Laugaveginn ásamt vöskum Ármenningum og þau gengu á höndum niður götuna. Þau stóðu sig glimrandi vel krakkarnir og skiptust á að rölta þetta á hvolfi. Eftir að KEB hafði gengið á höndum smá spotta var hann dreginn í viðtal hjá RÚV svo það má eiga von á því að sjá drenginn í kvöld í fréttum eða Kastljósi - veit ekki hvort. Á eftir ætla ég svo að kíkja á krakkana sem fljúga til Danmerkur aðfaranótt laugardags þar sem þau æfa atriðið sitt í síðasta sinn. Svo þarf að pakka stráknum í tösku til að hann sé tilbúinn á morgun. Nenni ekki að það vanti eitthvað annað kvöld og ég orðin...

Hve lengi...

skyldi vera eðlilegt að maður sé tilfinningalaus í andlitinu eftir þetta smávegis? 1/4 af eyranu búið að kikka inn en kjálkabeinið og þar undir er bara dofið ennþá - verður spennandi að heyra á mánudaginn hvort þetta sé eðlilegt! Numbnut

Still numb

Ennþá tilfinningalaus í hluta af eyranu og hluta af andlitinu. Vill til að þetta pirrar mig ekki neitt en er ferlega skrýtið. En þetta er að minnka smám saman held ég samt. Finn svona doða/hita tilfinningu stundum, sérstaklega þegar ég er að fara að sofa. Eyrað er svona að kikka inn aftur, er alveg með fulla heyrn samt. Samt alveg dofin næst skurðinum - kjálkabeinið fram að höku. Kannski þetta sé ástæðan fyrir að ég hef ekki þurft verkjalyf. Tók eina töflu með kvöldmatnum kvöldið sem ég kom heim og svo eina áður en ég fór að sofa. Gerði þetta bara til að fyrirbyggja að vakna með einhvern brjálaðan verk. Hef heyrt hjúkrunarfólk tala um svoleiðis. Erfitt að koma verknum í burtu aftur eftir að hann blossar upp af full force. Tók enga þannig sénsa. Er farin að snúa hálsinum meira óþvingað - annars búin að þurfa að horfa á fólk (BH) snúa sér eins og vélmenni mér til samlætis. Veit ekki hvort ég eigi að hafa áhyggjur af svæsnu hláturskasti hér í gærkvöldi. Held ég hafi nú ekki skemmt neitt, ...

Numbnut

Mátti taka umbúðirnar af í dag - voru reyndar farnar að rifna af við kjálkann. Alltaf erfitt að hafa eitthvað svona fast á hálsinum. Það er ekki eins og það sé rennisléttur staður sem hreyfist lítið svona eins og plástur á lærinu eða eitthvað. Hefði svo sem alveg getað rifið þetta af í gærkvöldi en ákvað að hinkra þar til í morgun samt. Var búin að vera að segja að skurðurinn væri örugglega svo lítill að þegar ég myndi taka umbúðirnar af myndu allir hlæja að mér og öll "vorkunn" væri farin. En sá í gær að sennilega væri hann aðeins lengri en ég hafði haldið í fyrstu. BH reif af mér umbúðirnar í morgun áður en ég komst framúr. Og bara á hörkunni - þið vitið eins og maður kippir plástri af. Fannst nú að hann hefði getað klappað mér aðeins en neinei - kippti svo neðri umbúðunum af alveg eins. Og svo sagði hann, wow þetta er langur skurður... já takk fyrir það. Ekkert svona rólegheit neitt. Þannig að þvert hægra megin er langur skurður, ekki lítill og krúttaður. Karlotta var hérn...

Hugs

Ennþá alveg dofin í hægra eyranu - ferlega skrýtið. Í gær hringdi ég í BH og ætlaði að setja símann við eyrað en fannst eins og ég væri með eitthvað stykki í eyranu því ég fann ekker fyrir því. Er bara svona hrikalega dofin í hægra eyranu og kjálkanum, ekki bara í hausnum eins og venjulega :oÞ Höskuldur vildi nú meina að það myndi nú ganga tilbaka fljótlega. Talaði um að hafa ýtt við einhverju taugum sem geta orsakað svona. En ég er alveg jafndofin samt, vona að tilfinningin komi fljótlega. Það er ferlega skrýtið að þreifa eftir eyranu og niður á umbúðirnar á hálsinum og finna eiginlega ekki hvort maður er að koma við sjálfann sig eða umbúðir. En ég heyri jafnvel og áður samt og það er fyrir öllu :o) Dumbo