Segir ekki einhvers staðar "Allt er þá þrennt er" eða eitthvað svoleiðis? Hér eru komnar þrjár geitungastungur í vor og sumar. Ég er svona að vona að þetta sé búið núna. Samt er ágúst eftir og þá er þessi viðbjóður árásargjarnastur. Úlfur minn liggur stokkbólginn og hvílir sig. Var stunginn í gær og kom svona skemmtilega útlítandi inn eftir að hafa verið úti í gerði. Endemis geitungar - who needs them? Mér finnst alveg ástæða til þess að innflytjendaeftirlitið láti til sín taka. Þessi kvikindi fundust ekkert hérna þegar ég var krakki. Af hverju eru ekki svona pöddum vísað úr landi? Alltaf eitthvað verið að agnúast út í nýbúa og flestir þeirra eru strangheiðarlegt fólk sem er í vinnu og skóla og gerir gagn. Finnst alveg ástæða til að taka upp nýja stefnu í innflytjendamálum þjóðarinnar og henda þessum geitungum aftur til síns heima. Held að öll þjóðin gæti sameinast um þá brottvikningu ;o)
Fór með Úlf áðan til þeirra á dýralæknastöðinni í Grafarholti. Þær eru alltaf jafn yndislegar þar. Reyndar var ekki til lyf fyrir hann í sprautuformi svo hann fékk steratöflur og vonandi hjaðnar bólgan hratt. Svo leiðinlegt að horfa á þau svona bólgin. Sem betur fer er þetta ekki hættulegt. En borgaði rúmlega fimm þúsun krónur fyrir - borgar sig að keyra í Borgarnesið ef maður spáir í peninginn.
Hundarnir mínir liggja því bara hérna inni hjá mér núna - veit ekki alveg hvort ég vilji setja þau út í garð þar sem hætta er á árásum.
Ég er hálf handalaus án tölvunnar minnar. Fæ hana vonandi í dag. Þetta átti að sjálfsögðu að gerast á meðan ég var á spítalanum. En eins og BH þreytist ekki á að tilkynna mér að þá dugði þessi hálftími ekki til. Hann er verulega sár yfir að hafa fengið vænan verkefnalista sem hann átti að klára á meðan frúin lægi meðvitundarlaus í hvíta húsinu. Og svo var hún bara komin heim nánast áður en vinnudegi lauk. Fæ einhverja ofursúperdúper græju tilbaka. Hlakka ekkert smá til því vélin mín var orðin ansi slöpp og hæggeng.
Ef einhver er að velta fyrir sér hvernig ég geti komist á netið tölvulaus þá er sá hinn sami ekki að muna hverjum ég er gift. Á meðan ég bý hér verð ég aldrei tölvulaus með öllu. Kemst alla vega á netið - hér eru fleiri tölvur en cheerioshringir (og ég á alltaf nóg af þeim). Kemst reyndar ekki í póstinn minn og verkefnin mín, hvorki skóla né vinnu. En vona að ég fái þetta allt saman seinnipartinn :o)
Later

Ummæli