Fara í aðalinnihald

Hugs

Ennþá alveg dofin í hægra eyranu - ferlega skrýtið. Í gær hringdi ég í BH og ætlaði að setja símann við eyrað en fannst eins og ég væri með eitthvað stykki í eyranu því ég fann ekker fyrir því. Er bara svona hrikalega dofin í hægra eyranu og kjálkanum, ekki bara í hausnum eins og venjulega :oÞ Höskuldur vildi nú meina að það myndi nú ganga tilbaka fljótlega. Talaði um að hafa ýtt við einhverju taugum sem geta orsakað svona. En ég er alveg jafndofin samt, vona að tilfinningin komi fljótlega. Það er ferlega skrýtið að þreifa eftir eyranu og niður á umbúðirnar á hálsinum og finna eiginlega ekki hvort maður er að koma við sjálfann sig eða umbúðir.

En ég heyri jafnvel og áður samt og það er fyrir öllu :o)

Dumbo

Ummæli

Áslaug sagði…
kæra vinkona
ég skil nú bara ekkert í því hvað það er langt á milli okkar, ég hafði ekki glóru um nein veikindi hjá þér. sendi þér hlýjar knús kveðjur og ósk um bata. kv. áu
Lóa Björk sagði…
Sorry - ég hringdi ekki út um allt að láta vita. Ætlaði samt að senda ykkur póst en aldrei varð úr. Þetta er bara þetta sama gamla - virðist ekki losna við þetta úr hálsinum og þess vegna er alltaf fylgst með mér og gripið inní þegar tilefni er til eins og núna. Er komin með enn einn skurðinn á hálsinn, mun auðveldara og minna samt allt núna en áður. Þeir kalla þetta kropp læknarnir :o)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...