Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá september, 2007

Til sölu

Toyoyta Aygo - lítið keyrður - lítill bíll, vantar engann lítinn bíl sem fínt er að snatta á innanbæjar. Erum við ekki öll að keyra oftast eitt og eitt hvort sem er á milli staða. Endilega látið vita ef einhver hefur áhuga á að skoða gripinn. Lóa

Skuldadagar

Komið að því - drottningin fær eyrnalokka í dag. Ég var nú svona að átta mig á því að kannski væri bara tími til að ég kaupi mér líka lokka í dag. Ég nota alltaf sömu skartgripina voða mikið. Reyni svona að skipta um ef ég er að fara eitthvað í fínum fötum kannski, og nenni því varla þá. Amma hennar fór með hana á heilsugæsluna í gær og um leið og þær voru komnar inn til læknisins fór mín víst að semja þessi ósköp um að kannski þyrfti nú bara ekkert að frysta aftur. Þetta væri nú á góðri leið með að hverfa bara. Læknirinn virðist hafa tekið mark á rökum hennar, enda ákveðin lítil kona þarna á ferð, og ekkert var fryst. Bara skafið mesta dauða skinnið og settur plástur. Mín ekki lítið ánægð og trúði ömmu sinni fyrir því að í dag (í gær) fengi hún eyrnaokka að eigin vali. Já já hún var dugleg. Kjartan kemur heim í dag frá Úlfljótsvatni, það verður gaman að heyra hvort það hafi ekki lukkast vel í fárviðrinu sem var í gær. Hann var svo svekktur yfir veðrinu og að fá ekki að vera lengur og ...

Ónýtur krakki

Þegar fólk ákveður að eiga börn saman er gott að gera sér grein fyrir uppeldisaðferðum sem aðilar geta verið sammála um. Við Baldvin gleymdum þessu alveg - gerðum bara ráð fyrir að við stefndum að sömu markmiðum og værum sammála um hvað væri gott uppeldi. Nú er hann að eyðileggja börnin mín. Honum gengur mun betur að skemma Karlottu. Málið er tónlistarsmekkur þeirra. Fyrst kom hann henni í kynni við Johnny Cash við lítinn fögnuð móðurinnar. Barnið syngur hástöfum lög eins og Never picked Cotton og önnur slík. Ég verð víst að játa mig sigraða þar, því ég er alveg farinn að hlusta á karlinn, svona eitt og eitt lag alla vega. En nú tók steininn úr, pabbinn skapaði sér miklar vinsældir með því að setja Jon Mogensen í hátalarana og krakkinn tapaði sér bara úr ánægju með danska söngvarann. Nú varð mamman brjál - þoli ekki þessa tónlist. Um daginn bað Karlotta um að setja danska gaurinn aftur á fóninn og ég þóttist bara ekki geta flett honum upp (allt í tölvunni hjá okkur). Hún plataði pabb...

Leikhúsferð

Ég er enn að reyna að átta mig á þessu. Ég geri mér fulla grein fyrir að sem barn var ég gjörspillt að springa úr frekju, svo er mér sagt alla vega. Það getur ekki hafa verið það skemmtilegasta sem Rúnar gerði að passa mig. Samt var alltaf fjör, fullt af krökkum með honum og stelpurnar sáu um að koma mér í rúmið með öllum ráðum sem þær kunnu. Ég vildi ekki fara að sofa á kvöldin þá frekar en í dag. Og þar sem foreldrar mínir eiga bunka af systkinum hvort þá var hægt að skipta þessu passastandi á milli þeirra. Er þannig nú að velta því fyrir mér hvort þetta hafi verið rosalegasta hefndaraðgerð af Rúnars hálfu að senda mig í þessa leikhúsferð eða hvort tilviljun ein hafi ráðið og hann í raun hafi alls ekki vitað um hvað né eftir hvern þetta stykki er sem hann sendi okkur nöfnurnar á. Ég hallast að tilviljun því honum er ekki illa við mömmu sína, er alveg viss um það. Og ég vona að hann sé búinn að fyrirgefa mér bernskubrekin og að ég hafi bætt þau upp með að passa dóttur hans á sínum tím...

Lítið um að vera

Skóli í gær, sitja heima og læra í dag. Leikhús í kvöld með Lóu ömmu. Nóg að gera alltaf. Kjartan Elvar er að fara á Úlfljótsvatn með skólanum í fyrramálið. Hann kemur aftur seinnipart á föstudaginn. Þá hefur hann klukkutíma til að drífa sig í fimleika og hann ætlar að mæta. Hann hlakkar til hvers einasta tíma núna, getur ekki beðið. Karlotta er í afmæli hjá Diljá, daman orðin 9 ára. Það er gott að eiga svona góða vinkonu rétt í næsta húsi. Hún stækkar svo hratt barnið og er ekki beint að hrynja úr hor heldur. Pilsið síðan á jólum smellur varla utan um hana, samt er það fyrir 12 ára, 152 cm. Ég sem ætlaði að láta hana nota það bara næstu jól kannski líka. Sjáum til. Við amma erum að fara að sjá Hamskipti í Þjóðleikhúsinu - general prufa held ég, alla vega lokaæfing sem við erum að fara að sjá. Það eru ekki númeruð sæti þannig að við ætlum að vera komnar snemma og reyna að fá góð sæti. Rúnar bað mig um að fara í staðinn fyrir mömmu hennar Önnu á sýninguna. Ég náttúrulega vil gjarnan far...

Lítil dæmisaga

Íslenskt og japanskt fyrirtæki ákváðu að keppa í róðri á áttæringi. Liðsmenn frá báðum fyrirtækjum æfðu stíft og voru í toppformi þegar að sjálfri keppninni kom. Japanirnir urðu 1 km á undan íslenska liðinu. Eftir útreiðina var mórallinn að sjálfsögðu heldur slæmur í íslenska fyrirtækinu og yfirstjórnin ákvað að fyrirtækið yrði að vinna keppnina að ári. Var settur á fót vinnuhópur til að skoða vandamálið. Eftir heilmiklar pælingar komst vinnuhópurinn að því að Japanirnir létu 7 menn róa en einn stýra. Í íslenska liðinu var það einn sem réri og sjö sem stjórnuðu. Vegna þessarar miklu krísu afréð yfirstjórn íslenska fyrirtækisins að fá ráðgjafarfyrirtæki til að kanna strúktur íslenska liðsins og gera nýtt skipurit ef á þyrfti að halda. Eftir margra mánaða vinnu komust stjórnunarfræðingarnir að því að í íslenska bátnum væru það of margir sem stjórnuðu en of fáir sem réru. Með hliðsjón af skýrslu sérfræðinganna var strax ráðist í skipulagsbreytingar. Í stað þess að hafa sjö stýrimenn, einn...

Todo

Það er á plani í dag að vinna, læra, skipuleggja glósurnar og námsefnið í möppur, versla og allt þetta skemmtilega. Helgin var ágæt - laugardagurinn þaut hjá, gerði lítið gáfulegt. Slátur í matinn og amma og tengdó í mat. Fór og sá KEB í fimleikum, snáðinn frekar svekktur að ég kom ekki fyrr eins og ég ætlaði. Þeir voru nýbúnir á trampólíninu þegar ég kom. Sá hann samt fara afturábak heljarstökk. Hann er spriklandi glaður með þessa tíma það er svo gaman. Nú bíður hann spenntur eftir hverjum einasta tíma. Það eru skemmtilegir strákar sem eru að kenna þessum hóp og það skiptir ekki síst máli. Alltaf fjör í tímum. Í gær vorum við bara að hanga eiginlega, BH fór að vinna, við krakkarnir skottuðumst á lagersölu hjá Egilssyni. Keyptum okkur alls konar óþarfa og skemmtilegheit. Spil, pússl, föndur o.þ.h. Ég endaði að sjálfsögðu í því að finna út úr þessari armbanda og hringagerð sem KBB hafði fundið sér. Svo matur hjá Lilju bara og komið heim og hrúgast í sófann og horfa á The Tudors. Sem sag...

Góð ráð!

Everybody's Free (to wear sunscreen) Mary Schmich Chicago Tribune Ladies and Gentlemen of the class of '97... wear sunscreen. If I could offer you only one tip for the future, sunscreen would be IT. The long term benefits of sunscreen have been proved by scientists whereas the rest of my advice has no basis more reliable than my own meandering experience. I will dispense this advice now. Enjoy the power and beauty of your youth. Never mind. You will not understand the power and beauty of your youth until they have faded. But trust me, in 20 years you'll look back at photos of yourself and recall in a way you can't grasp now how much possibility lay before you and how fabulous you really looked. You are NOT as fat as you imagine. Don't worry about the future; or worry, but know that worrying is as effective as trying to solve an algebra equation by chewing bubblegum. The real troubles in your life are apt to be things that never crossed your worried mind; the kind th...

All done

Kláruðum að græja slátrið í gær, þurfti því ekki að vakna í morgun og fara að sauma keppi. Við erum orðnar svo snöggar að þessu ekki nema um sex klukkutíma. Við gerum alveg heilan helling - mamma er með magnið á hreinu, þetta er eitthvað svona 4 blóðmör og 12 lifrapylsa. Nei ekki 4 og 12 keppir heldur úr svona mörgum rollum - held ég. Fékk alla vega nóg í hálfann frystinn hjá mér. Tók út það sem ég átti eftir síðan í fyrra og ætla að sjóða það í dag. Bauð Lilju og Lóu ömmu í mat. Amma sagðist alltaf til í nýtt slátur, e he amma þetta er sko síðan í fyrra, verður það ekki í góðu? Jú jú hún ætlar að mæta samt. Þó mamma sé nú ekki mikið eldri en ég - 18 árum - þá vorum við ekki alveg á pari með útvarpið. Ég spyr hana hvort þetta sé rás 1, jújú passar - mamma ég er með ofnæmi fyrir því. Lýsir sér í heilmiklum pirringi og gæti tekið upp á því að garga "slökkvið á þessu". Það gerðist í Skorradalnum í sumar þegar einn arfa leiðinlegur þáttur var gjörsamlega að taka mig á taugum. Gau...

The silence of the lambs

Komið að haustverkunum - nú förum við mæðgur í það mál að taka slátur. MMMM það er svooo gott. Verst hvað er leiðinlegt að hafa fyrir því, annars skemmtum við okkur alltaf ágætlega við þetta. Klárum svo í fyrramálið og þá er það búið þetta árið. Ég er ekki búin að sjóða allt síðan í fyrra, ætli ég klári ekki að sjóða síðasta skammtinn um helgina. Verð að eiga pláss í frystinum fyrir allt þetta nýja. BH og KEB eru ekkert að brjálast úr spennu þegar það er slátur í matinn en þeir láta sig hafa það. Ég og Karlotta étum á okkur gat í hvert skipti, því þetta er uppáhaldsmatur. Svo er alltaf gott að eiga þetta kalt með grjónagrautnum. Later

Daglegt líf

Gef mér varla tíma til að skrifa neitt hérna - það er bara svo mikið að gera alltaf, hver kannast ekki við það? Ég fékk að passa Aron Frosta á mánudagsmorguninn. Helena fór í skólann og Davíð í Belgíu - þannig að ég fékk krílið í heimsókn og hann er himneskur. Það er svo gaman að passa svona kríli sem eru ekki með neitt vesen - bara drekka og sofa og aðeins að brosa til að bræða mig. Svo merkti hann stofuna líka þannig að hann hlýtur að ætla að koma aftur. Var að skipta á barninu og ég kann alveg á svona stráka pjakka, á einn sjálf þó langt sé síðan ég skipti um bleiu á honum. Krílið lá á dýnu og taubleiu í sófanum og ég tók bleiuna af honum og setti taubleiuna yfir græjurnar, því annars fær maður bununa í augað kannski. Náði í það sem ég þurfti, komin með nýja bleiu í hendurnar og tek þá taubleiuna frá og þá náttúrlega gat hann ekki haldið í sér lengur og meig allt út, í sófann og allann pakkann. Gat ekki annað en hlegið, þetta var alveg útreiknað hjá honum. Breytir því ekki að hann e...

Athlægi

Það er gott að vera öðrum til ánægju og yndisauka - eða á íslensku athlægi - BH var að missa sig yfir því hversu illa gefin konan hans er í raun. Setti sko inn hérna (búin að breyta) að við værum með Alta Vista inn á vélinni okkar í stofunni - það er sko leitarvél gott fólk - en það vissu allir sennilega - nema ég sem hafði greinilega heyrt það áður og sett það í samhengi við draslið í stofunni okkar sem heitir víst bara Vista - breytir því ekki að þetta er vísta algjört drasl. BH er alla vega í góðu skapi í dag - getur skemmt sér yfir því hversu tæknilega fötluð ég er, ég held þá bara áfram að furða mig á því hvernig svona vel gefinn maður getur ekki lært að setja í uppþvottavélina eftir að hann hefur fengið sér að borða! Vona að aðrir geti skemmt sér jafnvel yfir rangfærslum og vitleysum sem ég er dugleg að koma frá mér bæði hér og annars staðar :) Later

Brotin niður

KBB: Ef þú værir eins og Svandís mamma, það væri sko frábært! Já já maður er ekki hátt skrifaður á heimilinu. Karlotta mín, ég hef nú oft farið á hestbak sko - já en þú ert ekki að temja og þannig. Situr ekki ótemjur. -Nei nei, en mér hefur nú verið hent af baki samt. Fyrir nokkrum árum er við BH fórum erlendis og Svandís var að passa ungana þá spurði sú stutta frænku sína af hverju hún yrði aldrei reið eins og mamma þeirra, hún öskraði oft á þau sko. Já já geðvonda mamman og góða frænkan - engin samkeppni þar neitt. Nú vorum við KBB að koma henni í sturtuna og tókum nokkrar aríur saman - ekta óperusöngkonur, þurfum enga tilsögn kunnum þetta allt. Gauluðum með undirspilinu af fiðludisknum hennar. Ég spyr hana hvort við þyrftum kannski að fara í söngskóla - nei nei, eða jú bara þú. Mamman aðeins fölsk, vissi það nú fyrir reyndar. KEB kom illa slappur heim eftir tvo og hálfann tíma í réttunum. Var víst hörkuduglegur þar, dró í dilka fyrir alla hina líka - bara skoðaði númerin á kindunum ...

Réttir

Krakkarnir farnir með frænku sinni í réttir, mikil spenna en KBB er dálítið döpur vegna örlaga Snoppu vinkonu sinnar. KEB var komin í reiðbuxurnar og var byrjaður að hnerra innan 10 mínútna. Það hefur nú ekki gerst áður, byrjað að klæja og allann pakkann. Var búinn að taka ofnæmistöflu en engu að síður voru einkennin að koma í ljós. Hann langaði svoooo mikið til að drífa sig af stað og ég lét hann ráða. Þau ætla að hringja í mig ef hann er alveg að deyja úr vanlíðan greyið. Í þetta sinn uppgötvaði KBB í alvöru að það er hundfúlt að vera með ofnæmi. Hún hefur ósjaldan öfundað hann af athyglinni sem hann fær út á ofnæmið. Ég held að hann verði í lagi barnið fyrst þau hafa ekki hringt ennþá - veðrið er þannig - búið að rigna mikið og allt blautt og þungt við jörðina. Það fýkur varla mikið í andlitið á manni þarna. Svo er það bara sturta eða sund þegar gamanið er búið og þá ætti hann að vera góður. Ég er svo glöð yfir því hvað veðrið er yndislegt, þau hafa oft verið að rétta í slagviðri þa...

Lág dánartíðni - frábærar ljósmæður

Öll börn verða fyrir smásúrefnisminnkun í blóðinu við það að fæðast vegna þess að þetta er mjög erfið stund, þessar mínútur sem fæðingin tekur. Fóstrin eru bara svo vel undir þessa miklu raun búin, þau þola það og verða ekki fyrir neinum skaða. En ef einhver truflun verður, t.d. ef naflastrengur klemmist utan um hálsinn eða strengurinn fellur fram, þá er voðinn vís takist ekki að ná þeim fljótt út. Þetta getur gerst alls staðar þegar um er að ræða erfiðar fæðingar. Það er ekki alltaf hægt að sjá það fyrirfram og þess vegna kemur fyrir að þau verða fyrir það mikilli súrefnisröskun að þau hljóta af því skaða. Tók þetta úr mbl.is í dag, varð hugsað til Lottu minnar. Naflastrengurinn var tvívafinn um hálsinn á henni er hún kom í heiminn. Það vissi ég reyndar ekki fyrr en tveimur tímum eftir að hún fæddist og kom niður af vökudeild (enda fyrirburi eins og bróðir hennar). Snillingarnir ljósmæðurnar sem tóku á móti henni vissu nákvæmlega hvað klukkan sló og björguðu krílinu mínu. Eftir á að ...

Jamms

Er víst ekki betri en hin öll í fjölskyldunni - sami slóðinn, börnin mín eiga ekki séns... Fór á American Style áðan og ætlaði að borga - en ekkert kreditkort (sem er súrefnið mitt), æi já einmitt var í Bónus og Krónunni í gær og smellti því í vasann held ég. Alla vega ekki veskið - smá panic attack, hey prófaðu debetkortið mitt, sjáum hvort það virki? Það er útrunnið þú getur ekki greitt með því! Ha, nei það getur ekki verið - jú síðan í maí - góði bankinn sem ég versla við, gott að ég er með gullkort, þá svo góð þjónusta og bla bla bla - ég veit ekki betur en ég hafi notað kortið eitthvað í sumar, held ég, man það ekki. Alla vega hvað gera bændur þá??? Jú þeir rífa um fyrirtækjakortið - börnin verða að borða og mamman hugsar ekki skýrt klukkan sjö á morgnana, setti bara í þvottavélina en gleymdi að taka út úr frysti. Hmmm, Röggvarkortið reddaði mér þannig í þetta sinn, verð að muna að millifæra inn á þann reikning tilbaka. Dramað búið, finn mér borð til að sitja við, krakkarnir að gl...

Staðreynd

Ég er einstæð móðir tveggja eingetinna barna og á eitt ættleitt. Þessu hef ég oft haldið fram og rökstutt á ýmsan hátt. Núna t.d. get ég sagt frá því að ég keyrði þennan ættleidda út á flugvöll því hann var að fara til Belgíu. OK, hann komst að því er hann tók töskurnar sínar út úr bílnum að hann var ekki með veskið sitt með sér - engin kort og engan pening. Finnst ykkur skrýtið þó ég tapi mér stundum hérna á þessa kjána, og þessi elsti sem á að geta séð um sig sjálfur er eiginlega verstur!!! Heppinn var hann að Davíð fór með honum í þetta sinn - svo nú verður kortið hans misnotað í ferðinni. Hvað er síminn á geðdeild - best að setja það á ísskápinn ef á þyrfti að halda í framtíðinni :)

Veðrið

Við Baldvin fórum í göngutúr í gær. Ég segi aldrei nei ef hann spyr, því það gerist ekki oft. Var að drepast úr þreytu en dreif mig samt. Ástæðan fyrir að hann spurð var að hann þurfti að ná bláum lit undan sólunum á skónum sínum. Hafði breytt fundarherberginu í vinnunni í sprautuklefa og eitthvað verið að græja bláan lit á eitthvað tæki. Svo nú þurfti hann göngutúr til að ná litnum undan skónum því minn var að fara í dag í flug til Belgíu og á Spa á Formúluna. Bræðurnir með VIP miða og læti. (og ég er hundspæld að komast ekki með.) Alla vega við vorum að labba ofan við golfvöllinn fyrir neðan byggðina hérna þegar við heyrum svona háan hvin fyrir aftan okkur og BH spyr hvaða læti ætli þetta séu. Við lítum aftur fyrir okkur og ég svara honum að það sé á leiðinni til okkar hávaðarok og við sjáum það bara koma. Sáum öldurnar á sjónum myndast í átt til okkar og trén byrja að hreyfast nær og nær okkur. Við bókstaflega sáum vindinn koma til okkar. Stóðum þarna í logni (það er sjaldan logn á ...

Hjónin skipta á bílum í einn dag.

duuud duuud BH: Halló LBK: Finnst þér bara allt í lagi að skilja bílinn eftir bensínslausann handa mér þegar ég hef engann tíma klukkan 7:30 á morgnana til að bjarga því ?? BH: AAHHH nei, sorry, ég steingleymdi því að bíllinn var að verða bensínlaus, hvað eru margir km. eftir? LBK: Hann segir um 70 km. BH: já það er alveg nóg í bæinn og heim aftur - sorry 5 mín. seinna duuud duud LBK: Halló BH: Finnst þér bara allt í lagi að skilja sætið í bílnum þannig eftir að þegar ég hef troðið mér í það þá sit ég bara og naga hnén? LBK: ha ha ha, sorry legg það ekki í vana minn að færa sætið aftur áður en ég stíg út úr bílnum. Á ég að hringja í slökkviliðið og biðja þá að klippa þig út? BH: Það liggur við. Hef ákveðið að skrifa bréf til hönnuða bíla í Þýskalandi og benda þeim á að setja í bílana svona forritunarmöguleika, þannig að maður ýtir bara á takka til að stilla bílinn eftir þínu höfði - svo hafa hjón hvort sína stillinguna. Það er ekkert smá þreytandi ef maður er að nota bíl með öðrum í al...

life goes on and on and on

Dagarnir allir eins núna - vakna, koma börnum í skólann, fara í skólann, læra, reyna að halda heimili o.s.frv. Gaf mér tíma í Fréttablaðið áðan á meðan ég fékk mér að borða - las þar um Bush í Ástralíu. Gaurinn er óborganlegur. Hann þakkaði fyrir að vera á þessum OPEC fundi - leiðrétti sig reyndar strax því hann var á APEC fundi. Seinna í ræðunni þakkaði hann stuðning Austrian soldiers í Írak, verst að hann átti að segja Australian soldiers, þetta leiðrétti hann ekki. Svo er ræðan var búin þá gekk hann í öfuga átt af sviðinu, í átt að gryfju í gólfinu og mátti einn fundarmanna hafa sig allann við að stoppa hann áður en illa færi - ég hló bara að þessu því hann er svo yndislega klikkaður - þó fæstum finnist neitt yndislegt við þennan kristna hryðjuverkamann Vesturlanda. Og frekar rosalegt að gaurinn skuli vera einn valdamesti maður heims. Gleymi aldrei ræðunni þegar hann sagði fool me once, shame on you - fool me twice og svo mundi hann ekki meir - sagði bara að fólk ætti ekki að gabba ...

bleehh

Vikan byrjaði með látum, vaknaði kl. 7:50, veit ekki af hverju. Ég hafði greinilega slökkt á kukkunni í morgun án þess að vakna við það. Þannig að allir voru rifnir upp á rassgatinu og settir í það að koma sér í skólann. Held að krakkarnir hafi skriðið þar inn á slaginu 8:10, vorum alla vega ansi snögg að gera allt tilbúið og hlaupa út. Ég reyndar varð eftir átti ekki að mæta fyrr en 10. Fór í tíma í undirbúningi fyrir BA ritgerð - sem ég ætla reyndar ekki að skrifa fyrr en næsta sumar. En það er bara boðið upp á þessa tíma í september. Fór í hádeginu til ömmu Lóu og spjallaði við hana í rúman klukkutíma - er allt of léleg að fara til hennar, verð að bæta úr því í vetur. Dagurinn heldur viðburðalítill, bókasafn, versla, o.s.frv.

Læri læri tækifæri

Tókum daginn snemma - miðað við að það er sunnudagur. Planið var að fara á Þingvelli en við hættum við það því BH þurfti að vinna og vinna. Þannig að ég notaði daginn til að læra og læra. Alltaf kemst ég yfir minna efni en ég ætla. Er að glósa uppúr bókinni til að ná þessu betur - mjög auðvelt að lesa hraðar og muna ekki neitt. Vona að eitthvað sitji eftir í hausnum á mér eftir allann þennan lestur. Horfði á Marie Antoinette í gær og verð að vera sammála Önnu um að þessi myndi skilur lítið sem ekkert eftir sig. Fólk er engu nær um Frakkland á 18. öld eftir myndina og eiginlega engu nær um konungshjónin heldur. Var einhvern veginn bara ekki að gera sig, hvorki sem saga né fróðleikur. Eina sem mér fannst flott í þessari mynd eru búningarnir og snobbið sem skín í gegn við hirðina í Versölum. Nú hlakka ég bara til að horfa á The Tudors á stöð 2 í kvöld - framhaldsþættir sem ég nenni að horfa á um Henry VIII í Bretlandi á 16. öld. Þeir eru ágætir. Þýsk sjónvarpskona var rekin eftir að hafa ...

Carpe diem

Seize the day - Var að tala við Helenu og komst að því (vissi það fyrir) að lífið er stutt. Njótið þess vel alla daga alltaf. Ég þarf að minna mig á þetta mjög reglulega, eins og flestir held ég. Vorum á kynningu hjá Örnu á miðvikudagskvöldið og þar voru um 15 konur, flestar ungar konur - svona um 30 ára, + - nokkur ár. Helena sagði mér áðan að ein þessara kvenna sé dáin, dó í gærkvöldi hélt hún. Alveg fyrirvaralaust, engin veikindi sem vitað var um og ekkert. Hún var hress og skemmtileg hjá Örnu og það amaði ekkert sjáanlegt að henni. Mikið óskaplega finn ég til með fjölskyldunni hennar, manni og börnum. Það er skelfileg tilhugsun að vera kippt svona í burtu einn daginn eða að ástvinir manns vakni kannski bara ekki einn morgunin. Þannig að ég held að fólk ætti að hugsa sig vel um áður en það frestar öllu því skemmtilega sem það langar að gera með fjölskyldu og vinum of lengi. Ég er ekki að tala um dýrar utanlandsferðir eða kaupa allann heiminn. Bara fara í hjólatúr, heimsækja ömmu og ...

Mússísjúk

Hansara varir bleytar og blíðar Fagrari varir aldrig mær bíða Og ongan tíð motti mær tunga so mjúk Ella eri eg bara mússisjúk Hansara varir mær eru ein gáta Meg kyssa og mapa pa heilt annan máta Og ongan tíð motti mær tunga so mjúk Ella eri eg bara mússisjúk Hansara varir gera meg villa Lokka meg nærri og kitla meg illa Nei ongan tíð motti mær tunga so mjúk Ella eri eg bara MÚSSISJÚK Eða eitthvað svona - Eivör söng þetta í Kastljósi um daginn, finnst þetta svo yndislegt lag, skemmir ekki að það er á færeysku, bara betra. Krakkarnir farnir út - KEB tók strætó áðan í fimleika, verður sóttur þangað og skutlað í Kringluna. Pétur og hann ætla að skottast í bíó, Astrópía varð fyrir valinu. Stelpurnar urðu frekar fúlar og langaði að fara í bíó líka svo þeim var leyft það bara. Þannig að Karlotta er að fara í fyrsta skipti ein í bíó, fer með Diljá og þær leyfa Unu að fara með sér. Lofa að passa hana rosa vel. Gummi fer með þeim upp að dyrum og sækir þær svo aftur. Þetta eru orðnir svo stórir k...

Klikka ekki

Þær komu hægt og sígandi í gær - HARÐSPERRURNAR sem ég átti von á. Endaði daginn á lööngum göngutúr með Magneu og var frekar stíf í kroppnum á eftir og í morgun - yikes - en er nokkuð góð núna svona miðað við. Það liggur við að maður hætti við að byrja að hreyfa sig þegar maður veit að það er ekki nokkur leið að losna við harðsperrurnar til að byrja með. Tími í morgun kl. 8:20 og ég lagði af stað kl. 7:30, það var samt slatti umferð en maður komst þó hratt áfram. Er að reyna að vera dugleg að sinna því sem ég á að gera - fór því upp í vinnu og þreif aðeins - til að halda í horfinu - þríf betur næst. Reyna að halda þessu snyrtilegu, það er ótrúlegt hvað verður skítugt hjá okkur þegar ég mæti ekki að þrífa. Það er líka gott að koma við mjög reglulega og halda borðinu sínu hreinu, þ.e. raða öllu strax í möppur og ganga frá þannig að það sé auðvelt að klára það sem liggur fyrir. Þurfa ekki að byrja á því að sortera allt og koma sér inn í málin aftur. Sjáum til hvernig það gengur - skrifa a...

Langir dagar

Ég er alveg tilbúin bara að fara að undirbúa kvöldmat um kl. 14, ég vakna svo snemma þessa dagana og nýti þá ágætlega, svo mér finnst klukkan alltaf vera seinni partur þegar í hádeginu. Núna er ég líka bara búin á því - sef ekki nóg frekar en fyrri daginn. Við BH erum búin með alla Friends seríurnar og höfðum gaman að. Nú erum við dottin af tilviljun í That´s 70´s show. Við erum að brjálast úr hlátri stundum. Það er voðalega gott að geta gripið í svona 20 mínútna þætti áður en maður fer að sofa. Sérstaklega þau kvöld sem maður horfir ekkert á sjónvarpið, og þau eru þó nokkur þegar maður er að læra eða vinna. En þá fer maður ekki að sofa eins snemma og maður ætlaði - svo auðvelt að horfa bara á einn í viðbót. Talandi um svefn, eins gott að vera dugleg í kvöld og vakna úthvíld kl. 6:30 í fyrramálið. Ég verð að vera komin út um 7:30 til að komast aðeins á undan umferðinni á morgnana. Ég fékk netta sjokkið á þriðjudaginn, hvað er með þessa umferð og allann þennan fjölda af bílum. Þetta var...

Á að vera að lesa

Ég er ekki að drepast úr harðsperrum, ekki ennþá það gæti skollið á. Verð að viðurkenna að ég hélt ég yrði helaum í kroppnum eftir tímann í gær. Tími á eftir í frönsku stjórnarbyltingunni, hélt ég væri búin að lesa allt efnið, fer á UGLUNA (kerfi HÍ) og sé að kennarinn vill að við lesum 2 kafla í viðbót og svo inngang að þeim þriðja í annarri bók. Þannig að ég er alls ekki búin og ætla að halda áfram að lesa núna. Og klukkan bara níu, ég er sest niður klukkutíma fyrr en í gær. Þetta lofar góðu, nema af því hér sit ég að blogga en ekki lesa. Kjartan Elvar kom til mín í nótt og sagðist hafa misst hringinn sem er festing fyrir beislið, vaknaði við að þetta var allt laust og það blæddi bara útúr honum eftir einhverja rispu í munnholdið. Það var því hringt í morgun til Sæmundar og við megum koma í fyrramálið 8:15 til að laga þetta. Það gæti kostað sitt. Ég svona spriklandi ánægð að fá tíma kl. 8:15 - alveg búin að gleyma að ég er í tíma frá 8:20 í fyrramálið. Þannig að BH verður að fara með...

AAHHH þetta var gott

Fór í badminton kl. 17, ætlaði ekki að nenna, gjörsamlega að mygla yfir frönsku stjórnarbyltingunni -hætt að skilja hvað ég var að lesa - þetta hressti mann við. Nú er ég búin að fara í sturtu og hressa mig alveg við orðin pæja - svona eins og hægt er - og er á leið til Örnu á kynningu, myndi ekki nenna nema af því ég veit að þetta eru ágætisvörur. Planið að vera ekki of lengi og drífa sig svo heim að lesa kannski oggu meira - eða bara kíkja á ritgerðaefni - það er kannski bara sniðugra - aðeins að hvíla hausinn á þessum Louis 14. 15. og 16. Hvað er með hugmyndaauðgina i nafnavali á þessum gaurum, segi bara eins og Svava - var ekkert verið að hugsa um okkur sagnfræðinemana sem þurfum að muna hver gerði hvað? Lóa II

French Revolution

France under Louis XVI. Byrjuð að lesa - kom mér af stað í gærkvöldi, mun seinna en ég ætlaði reyndar. Það er erfitt að byrja þegar sjónvarpið er á og allir hérna á vappinu. Svo nú í morgun vaknaði ég rúmlega sjö og ætlaði að byrja að lesa þar sem frá var horfið kl. átta í morgun. Ofurbjartsýn að venju. Nú er klukkan orðin 10 og ég búin í sturtu - setja í þvottavél, taka úr henni og setja í aðra, koma börnum í skólann, ganga aðeins frá hérna eftir okkur, borða, borga reikninga í netbankanum og nú hef ég ekki fleiri afsakanir (þess vegna er ég að blogga). Þannig að nú fer ég að lesa meira um hversu afspyrnu slappir Frakkar voru í akuryrkju sinni upp til hópa og framleiddu ekki meira en ofan í sig og sína fjölskyldu, engin umframframleiðsla í gangi, ekki mikil alla vega. Um mikla stéttaskiptingu og fleira svona skemmtilegt um tímabilið áður en byltingin var gerð. Og hefst þá lesturinn...

Skóli móli

Er opinberlega byrjuð í skólanum, fór í fyrsta tíma í báðum áföngunum í dag og lýst bara ágætlega á þetta allt saman. Í frönsku stjórnarbyltingunni er bara próf, engin ritgerð. Í Lýðræðisþróuninni er ekkert próf, bara ritgerð og framsögur. Þetta ætti því að geta runnið ljúft saman. Langar heim að lesa núna en er að vinna, klára mánaðamótin, reikningar og laun. Raða í möppur og þetta helsta. Nú þarf bara að koma á góðu skipulagi - læra, vinna, þrífa og heimilið. Segi þetta á hverju hausti og það klikkar jafnoft - reyni enn einu sinni, það þýðir ekkert að gefast upp. Stúdína

Manic Monday

Eða svona í áttina alla vega. Fór og talaði við Jón í dag, hann sagði að ég yrði að fara að hreyfa á mér rassgatið - fór fínna í það samt. Hreyfing nauðsynleg fyrir fólk sem blæs bara út. Ég samþykkti það en jafnframt benti honum á að ég hefði hætt fyrir einu og hálfu ári því ég hafi vaknað alla morgna með þreytta fætur og feita putta (bjúgur og þreyta). Þegar svo er hlýtur maður að vera að ganga nærri sér. M.a.s. núna bara við dagleg störf - ef ég er mikið á þönum yfir daginn fæ ég að kenna á því á kvöldin, þreyttir fætur, erfitt að ganga á kvöldin eftir að hafa setið í klukkutíma. Eins og kona um áttrætt - er það ekki pínu snemmt? Ég er hundfúl því ég var í fínu formi - sad to say að það á ekki við lengur. Hann gaf mér beiðni til sjúkraþjálfara, sem ég er að spá í að notfæra mér þrátt fyrir að vita að sá segir mér að fara í sund - hjóla - yoga - o.þ.h. Í stuttu máli hef ég ekki þolinmæði í svona rólegheit, vil lætin og hávaðann. Palla, þrek, badminton og þannig sport. En snuff snuff,...

Morgunbæn

Góði guð, það sem af er dagsins, hefur mér gengið vel. Ég hef ekki slúðrað, misst stjórn á skapi mínu,verið gráðug, úrill, sjálfselsk né illkvittin. Ég er mjög ánægð með það. En guð, eftir nokkrar mínútur mun ég fara á fætur,og eftir það mun ég þurfa mikla hjálp. Amen Fann þetta í gömlum tölvupósti og þar sem þetta á vel við undirritaða (sjá fyrri blogg) þá ákvað ég að skella þessu hérna.

Mondays

Don´t like them - alla vega ekki í dag. Allir myglaðir á fætur í morgun, draga alla (nema Kjartan) á fætur. Fínt ef maður fengi að sofa smá lengur. Fer til Jóns læknis á eftir, rútínu heimsókn og alltaf það sama. Svo byrjar skólinn á morgun, á að vera búin að lesa fyrir tímann, sjáum hvort það hefst því vinnan gengur fyrir. Á eftir að sjá um mánaðarmótaskylduna. Þetta hefst alltaf allt ef maður gerir eins og snigillinn, heldur bara áfram í rólegheitum og þá kemst maður á leiðarenda þótt hægt fari. Þetta heldur mér gangandi í prófum og ritgerðasmíðum, kemst þótt hægt fari, bara halda áfram. Later

2. september 1988

Sem sagt 19 ár í dag, geri aðrir betur. Það þarf... veit það ekki - þetta bara einhvern veginn gengur á seiglunni, þolinmæðinni, vináttunnni og ástinni - eða eitthvað, helst samt þolinmæðinni og umburðarlyndi sennilega. Farin í göngutúr

Púff

Var að lesa mbl.is, frétt um sprengjuárás í Kabúl við höfuðstöðvar alþjóðaherliðsins - smá sjokk. Veit ekki betur en alla vega ein vinkona, Gerður, sé staðsett þar í vinnu, og held að önnur, Sigrún, sé þar líka núna. Sigrún var þarna og Gerður tók við af henni, Kannski er Sigrún komin annað. Eins gott að fá strax fréttir um að enginn Íslendingur hafi slasast eða látist. Þessir Sagnfræðingar eru útum allt í vinnu - þessi vinna tengist sagnfræði reyndar ekki neitt, en hvað um það. Þær eru báðar útskrifaðar með BA í sagnfræði. Lóa

Plan for the day

Bíó að sjá myndina um litla rottukokkinn (teiknimynd), man ekki hvað hún heitir. Svo á Beta amma afmæli í dag - 76 ára og alltaf hress. Við Karlotta ætlum að halda uppi heiðri okkar greinar fjölskyldunnar því ekki mæta pabbi og mamma, eru í Skorradalnum og Svandís fór austur að sjá um hrossin sín og girða og og og eitthvað meira. Kjartan og Baldvin eru farnir í Vatnaskóg og þá erum við tvær eftir. Annað er nú ekki á dagskrá í dag, enda er þetta alveg nóg, við skellum okkur bara heim og kúrum bara hérna í rólegheitum. Later