Við Baldvin fórum í göngutúr í gær. Ég segi aldrei nei ef hann spyr, því það gerist ekki oft. Var að drepast úr þreytu en dreif mig samt. Ástæðan fyrir að hann spurð var að hann þurfti að ná bláum lit undan sólunum á skónum sínum. Hafði breytt fundarherberginu í vinnunni í sprautuklefa og eitthvað verið að græja bláan lit á eitthvað tæki. Svo nú þurfti hann göngutúr til að ná litnum undan skónum því minn var að fara í dag í flug til Belgíu og á Spa á Formúluna. Bræðurnir með VIP miða og læti. (og ég er hundspæld að komast ekki með.) Alla vega við vorum að labba ofan við golfvöllinn fyrir neðan byggðina hérna þegar við heyrum svona háan hvin fyrir aftan okkur og BH spyr hvaða læti ætli þetta séu. Við lítum aftur fyrir okkur og ég svara honum að það sé á leiðinni til okkar hávaðarok og við sjáum það bara koma. Sáum öldurnar á sjónum myndast í átt til okkar og trén byrja að hreyfast nær og nær okkur. Við bókstaflega sáum vindinn koma til okkar. Stóðum þarna í logni (það er sjaldan logn á þessum göngustíg) og fengum svo bara rokið í fangið - og það ekki litla rokið. Bara fyndið. Einhvers staðar frá verður vindurinn að koma og í gærkvöldi kom hann úr Esjunni sennilega - var eitthvað að hvíla sig þar áður en hann hélt áfram til Reykjavíkur.
Ég og krakkarnir erum ein hérna í kotinu vælandi yfir að komast ekki með á SPA - ég er ekki að grínast við vorum öll á bakinu á honum að við vildum fara.
Þegar við vorum að byrja að fylgjast með F1 þá var KEB um 4 ára sennilega. Við vorum forfallið Ferrari fólk - Schumi rúlar og við, eins og litlu börnin, höldum með þeim sem vinna. En í næsta húsi voru Gummi og Harpa og krakkarnir þeirra - Gummi og Pétur voru (eru sennilega enn) McLaren menn. KEB sagði eitt sinn er keppni var búin, "aumingja Pétur, hann heldur með McLaren". Hann vorkenndi honum svo fyrir þessa fötlun að halda ekki með réttu liði. Þetta sama ár fórum við á ættarmót vestur til Bolungarvíkur. Vorum á leið heim, BH ekki þekktur fyrir jarðarfararakstur, en afi hans öllu rólegri í tíðinni. Við vorum komin hálfum firði á undan gömlu hjónunum þegar KEB segir í aftursætinu "Afi er bara eins og Hakkinen, alltaf síðastur". Segið svo að barnið sé ekki vel upp alið.
Helgin er fullbókuð - ég ætla að reyna að komast í að læra eitthvað, það svo miklu betra að koma undirbúin í tíma - tekst ekki alltaf en reyni mitt besta. KEB er í fimleikum og það er Skógarmannahátíð fyrir 9-13 ára. Eitthvað verið að rifja upp sumarið. Svo á sunnudaginn er fimleikadagur hjá Aftureldingu og réttir hjá Svandísi - þannig að ég vona að KBB vilji heldur fara í réttir og hanga með frænku sinni allann daginn og þá get ég lesið. Spurning hvort hún þurfi sálfræðing eftir sunnudaginn, Snoppu verður sennilega slátrað í ár og það er búið að valda miklum sálarkvölum síðasta vetur hjá KBB að vita það. Snoppa er kind, en hegðar sér meira eins og hundur. Alger heimalingur, trítlar á eftir krökkum og er ekki feimin. M.a.s. Týri er smá afbrýðisamur út í athyglina sem rollan fær.
Er byrjuð að spá í BA ritgerðina AGAIN, tala við kennara um miðjan október og þarf þá að vera búin að spá aðeins í um hvað ég vil skrifa, svona gróft svið eitthvað - er svo mikið fiðrildi að ég næ ekki að festa mig á neitt ákveðið. Efnið verður samt Íslenskt og gott, tímabilið svona 17. -18. öld. Vona að það komi eitthvað gáfulegt út úr þessu hjá mér - hugmyndir vel þegnar. Lofa alls ekki að fara eftir þeim hugmyndum samt.
Frí í Lágafellsskóla í dag, starfsdagur. Af hverju er ekki svona starfsdagur í Háskóla Íslands? Hefði alveg getað notað það í morgun þegar ég komst ekki framúr vegna þreytu. Aulaðist þó á fætur kl. 7 og farin út klukkan 7:30. Ég er alvarlega farin að spá hvort ég eigi að sofa með gúrkusneiðar á augunum. Þau eru sorglega bólgin á morgnana svona í lok vikunnar eftir lítinn svefn. Sérstaklega í morgun - er svona eins og timbruð með háglansandi og sokkin augu. Er ég bara gömul kannski? Síðasta Föstudag svaf ég 2 klukkutíma milli 16 og 18, eina ástæðan fyrir að ég svaf ekki meira var matur hjá Lilju kl. 18. Hélt ég yrði góð um kvöldið - en nei, mín bara alveg að tapa sér úr geispum og þreytu og inn í rúm fyrir miðnætti. Stillti klukkuna á 8, taldi mig hafa sofið nóg þá og byrja daginn bara snemma. Nei nei - komst ekki framúr fyrr en kl. 10 morguninn eftir. En þá var ég orðin endurnærð og búin að ná í smá orku greinilega. Svona líka útkeyrð eftir vikuna. Vona að þetta verði ekki svona alla haustönnina.
Þetta er kannski orðið pínlega áberandi að ég nenni ekki að skella bókunum á borðið og byrja að lesa - orðið heldur langt hjá mér.
Grasekkja (Fúl að sitja heima en ekki í VIP stúkunni á SPA)

Ummæli