Fara í aðalinnihald

life goes on and on and on

Dagarnir allir eins núna - vakna, koma börnum í skólann, fara í skólann, læra, reyna að halda heimili o.s.frv.

Gaf mér tíma í Fréttablaðið áðan á meðan ég fékk mér að borða - las þar um Bush í Ástralíu. Gaurinn er óborganlegur. Hann þakkaði fyrir að vera á þessum OPEC fundi - leiðrétti sig reyndar strax því hann var á APEC fundi. Seinna í ræðunni þakkaði hann stuðning Austrian soldiers í Írak, verst að hann átti að segja Australian soldiers, þetta leiðrétti hann ekki. Svo er ræðan var búin þá gekk hann í öfuga átt af sviðinu, í átt að gryfju í gólfinu og mátti einn fundarmanna hafa sig allann við að stoppa hann áður en illa færi - ég hló bara að þessu því hann er svo yndislega klikkaður - þó fæstum finnist neitt yndislegt við þennan kristna hryðjuverkamann Vesturlanda. Og frekar rosalegt að gaurinn skuli vera einn valdamesti maður heims. Gleymi aldrei ræðunni þegar hann sagði fool me once, shame on you - fool me twice og svo mundi hann ekki meir - sagði bara að fólk ætti ekki að gabba hann tvisvar - eða eitthvað slíkt. Auðvitað er það fool me twice, shame on me. Alla vega í áttina að þessu.

Þetta er það eina sem mér datt í hug er ég las þessa frétt!

Donald Rumsfeld is giving the president his daily briefing.
He concludes by saying: "Yesterday, 3 Brazilian soldiers were killed."
"OH NO!" the President exclaims. "That's terrible!"
His staff sits stunned at this display of emotion, nervously watching as the President sits, head in hands.
Finally, the President looks up and asks, "How many is a brazillion?"

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...