Það er á plani í dag að vinna, læra, skipuleggja glósurnar og námsefnið í möppur, versla og allt þetta skemmtilega.
Helgin var ágæt - laugardagurinn þaut hjá, gerði lítið gáfulegt. Slátur í matinn og amma og tengdó í mat. Fór og sá KEB í fimleikum, snáðinn frekar svekktur að ég kom ekki fyrr eins og ég ætlaði. Þeir voru nýbúnir á trampólíninu þegar ég kom. Sá hann samt fara afturábak heljarstökk. Hann er spriklandi glaður með þessa tíma það er svo gaman. Nú bíður hann spenntur eftir hverjum einasta tíma. Það eru skemmtilegir strákar sem eru að kenna þessum hóp og það skiptir ekki síst máli. Alltaf fjör í tímum.
Í gær vorum við bara að hanga eiginlega, BH fór að vinna, við krakkarnir skottuðumst á lagersölu hjá Egilssyni. Keyptum okkur alls konar óþarfa og skemmtilegheit. Spil, pússl, föndur o.þ.h. Ég endaði að sjálfsögðu í því að finna út úr þessari armbanda og hringagerð sem KBB hafði fundið sér. Svo matur hjá Lilju bara og komið heim og hrúgast í sófann og horfa á The Tudors. Sem sagt gerði ekkert af viti - átti að vinna, þarf að vera búinn með virðisaukann áður en mamma fer til útlanda. Átti líka að læra, þarf að lesa slatta og byrja að undirbúa verkefni. Þannig að í það fer dagurinn sennilega.
Mrs. Busy

Ummæli