Fara í aðalinnihald

Langir dagar

Ég er alveg tilbúin bara að fara að undirbúa kvöldmat um kl. 14, ég vakna svo snemma þessa dagana og nýti þá ágætlega, svo mér finnst klukkan alltaf vera seinni partur þegar í hádeginu. Núna er ég líka bara búin á því - sef ekki nóg frekar en fyrri daginn. Við BH erum búin með alla Friends seríurnar og höfðum gaman að. Nú erum við dottin af tilviljun í That´s 70´s show. Við erum að brjálast úr hlátri stundum. Það er voðalega gott að geta gripið í svona 20 mínútna þætti áður en maður fer að sofa. Sérstaklega þau kvöld sem maður horfir ekkert á sjónvarpið, og þau eru þó nokkur þegar maður er að læra eða vinna. En þá fer maður ekki að sofa eins snemma og maður ætlaði - svo auðvelt að horfa bara á einn í viðbót.

Talandi um svefn, eins gott að vera dugleg í kvöld og vakna úthvíld kl. 6:30 í fyrramálið. Ég verð að vera komin út um 7:30 til að komast aðeins á undan umferðinni á morgnana. Ég fékk netta sjokkið á þriðjudaginn, hvað er með þessa umferð og allann þennan fjölda af bílum. Þetta var ekki svona slæmt síðasta vetur. Ég er farin að halda að Kínverjar séu hérna á milli 8 og 9 á morgnana bara til að stífla umferðina - er svona margt fólk á Íslandi með bílpróf spyr ég bara. Ég lagði af stað kl. 7:45 og kom í skólann, of seint, kl. 8:30. Venjulega tekur þessi leið 15 mínútur. Svo ég ætla að fara snemma á ferðina og bíða heldur í rólegheitum í skólanum að hlusta á útvarpið og lesa blöðin eða skólabækur. Eitthvað annað en að hanga í hrúgu með öllum hinum á Íslandi í Ártúnsbrekkunni.

Eitt sem ég verð að minnast á - ég fletti tilbaka Fréttablaðinu í gær til að sjá hvort ég hefði tekið rétt eftir í því sem ég fletti blaðsíðunni. Jú jú ein ljóska, ofurkroppur í turkis bikiní sat á hækjum sér með lax í klofinu að auglýsa veiðivörur á afslætti. Og ég fór að velta fyrir mér - skyldi þetta selja mikið. Ef ég væri karl og hefði gaman að því að veiða í ám landsins, myndi ég þá bara rjúka til núna af því hún var svo mikið krútt konan í auglýsingunni? Eða myndi ég rjúka alveg jafnmikið til þó sveittur karl í fullum veiðiherklæðum hefði staðið út í ánni að kljást við þann stóra. Hefði það ekki verið svona meira real auglýsing? Finnst konugreyið í ánni pínu svona eins og hilling út í eyðimörk - eða eitthvað álíka ímyndað? Talandi um að nota hálfberar konur til að auglýsa allt og ekkert. Ég ætla alla vega að leggja til að næst þegar Rögg auglýsir bilasolur.is, eða Elmar eða sjópóst að það verða alla vega eins og einn vel nakinn kroppur (kona að sjálfsögðu) helst tveir og þá er ég viss um að eftirspurnin rjúki upp úr öllu valdi. Skítt með allann trúverðugleika og slíkt. Og svo má líka spyrja sig ef naktir kvenkroppar fallegra kvenna hafa svona rosaleg áhrif á fólk að það megi auglýsa allann fjandann þannig, af hverju notfæra þær sér þetta þá ekki. Af hverju eru þær ekki í öllum valdamestu embættum fyrirtækja og ríkja? Hmmm skil það ekki. Legg til að fallegir konukroppar leggi undir sig heiminn með dáleiðandi augnaráðinu og þrýstnu vörunum sínum að vopni. Eða bara byrji á því að fá jafnhá laun og fj... karlarnir sem öllu ráða. Ægilega pirruð eitthvað... en samt ekki fannst þessi auglýsing bara alveg bráðfyndin.

Well later

Ummæli

Nafnlaus sagði…
hehe fyndin auglýsing. Lóa við ættum kannski að vera þessar beru konur og ná yfirráðum yfir heiminum :).
Lóa Björk sagði…
ó já - alla vega ofurkroppar - kýs að halda fötunum samt. En veit ekki hver ætlar að vera með mér - bara nafnlaus - en giska á Sonja!
Lóa
Unknown sagði…
oh.do.gleymdi.að.kvitta.Neeeiiii.Þetta.var.Helga

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...