Vikan byrjaði með látum, vaknaði kl. 7:50, veit ekki af hverju. Ég hafði greinilega slökkt á kukkunni í morgun án þess að vakna við það. Þannig að allir voru rifnir upp á rassgatinu og settir í það að koma sér í skólann. Held að krakkarnir hafi skriðið þar inn á slaginu 8:10, vorum alla vega ansi snögg að gera allt tilbúið og hlaupa út. Ég reyndar varð eftir átti ekki að mæta fyrr en 10. Fór í tíma í undirbúningi fyrir BA ritgerð - sem ég ætla reyndar ekki að skrifa fyrr en næsta sumar. En það er bara boðið upp á þessa tíma í september.
Fór í hádeginu til ömmu Lóu og spjallaði við hana í rúman klukkutíma - er allt of léleg að fara til hennar, verð að bæta úr því í vetur.
Dagurinn heldur viðburðalítill, bókasafn, versla, o.s.frv.
Fór í hádeginu til ömmu Lóu og spjallaði við hana í rúman klukkutíma - er allt of léleg að fara til hennar, verð að bæta úr því í vetur.
Dagurinn heldur viðburðalítill, bókasafn, versla, o.s.frv.
Ummæli