Fara í aðalinnihald

Klikka ekki

Þær komu hægt og sígandi í gær - HARÐSPERRURNAR sem ég átti von á. Endaði daginn á lööngum göngutúr með Magneu og var frekar stíf í kroppnum á eftir og í morgun - yikes - en er nokkuð góð núna svona miðað við. Það liggur við að maður hætti við að byrja að hreyfa sig þegar maður veit að það er ekki nokkur leið að losna við harðsperrurnar til að byrja með.

Tími í morgun kl. 8:20 og ég lagði af stað kl. 7:30, það var samt slatti umferð en maður komst þó hratt áfram. Er að reyna að vera dugleg að sinna því sem ég á að gera - fór því upp í vinnu og þreif aðeins - til að halda í horfinu - þríf betur næst. Reyna að halda þessu snyrtilegu, það er ótrúlegt hvað verður skítugt hjá okkur þegar ég mæti ekki að þrífa. Það er líka gott að koma við mjög reglulega og halda borðinu sínu hreinu, þ.e. raða öllu strax í möppur og ganga frá þannig að það sé auðvelt að klára það sem liggur fyrir. Þurfa ekki að byrja á því að sortera allt og koma sér inn í málin aftur. Sjáum til hvernig það gengur - skrifa allt í dagbókina mína og strika svo yfir það sem búið er - það virkar ágætlega, alla vega ennþá - smá aðhald. Og svo er þetta nauðsynlegt því ég er svo GLEYMIN að það er til skammar.

Farin heim - klára að þrífa þar líka, svo ég geti strikað það út af listanum í dagbókinni.

Reglugerðafasistinn

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Hey - harðsperrur eru svo góðar - ég á þvílíkum erfiðleikum með að labba núna en líður þeim mun betur ;0) veit þú skilur hvað ég á við. þetta er fín lungnaæfing miðað við hvað við tölum mikið hehe kv. Magnea
Lóa Björk sagði…
Ó já lungun eru í góðri þjálfun - takk fyrir göngutúrinn í gær, förum aftur eftir helgi.
kv. Lóa

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...