Tókum daginn snemma - miðað við að það er sunnudagur. Planið var að fara á Þingvelli en við hættum við það því BH þurfti að vinna og vinna. Þannig að ég notaði daginn til að læra og læra. Alltaf kemst ég yfir minna efni en ég ætla. Er að glósa uppúr bókinni til að ná þessu betur - mjög auðvelt að lesa hraðar og muna ekki neitt. Vona að eitthvað sitji eftir í hausnum á mér eftir allann þennan lestur. Horfði á Marie Antoinette í gær og verð að vera sammála Önnu um að þessi myndi skilur lítið sem ekkert eftir sig. Fólk er engu nær um Frakkland á 18. öld eftir myndina og eiginlega engu nær um konungshjónin heldur. Var einhvern veginn bara ekki að gera sig, hvorki sem saga né fróðleikur. Eina sem mér fannst flott í þessari mynd eru búningarnir og snobbið sem skín í gegn við hirðina í Versölum. Nú hlakka ég bara til að horfa á The Tudors á stöð 2 í kvöld - framhaldsþættir sem ég nenni að horfa á um Henry VIII í Bretlandi á 16. öld. Þeir eru ágætir.
Þýsk sjónvarpskona var rekin eftir að hafa sagt í viðtali að nasistar hafi verið með góða stefnu í fjölskyldumálum og þeirri stefnu hafi verið hafnað eftir þeirra tíð. Er ekki pínu mikil viðkvæmni að EKKERT megi segja gott í stefnu nasista. Þeir voru vissulega grimmir og leiddu Þýskaland til glötunnar en það þýðir ekki að þeir hafi kannski hitt naglann á höfuðið í einstaka innanríkismálum. Veit ekki svo sem, Þjóðverjar eru hyper viðkvæmir fyrir öllu sem tengist nasisma, eðlilega kannski. Verð samt að segja að þegar ég horfði á kosningaræðu Hitlers, áður en hann komst til valda, í tíma í mannkynssögu IV þá hugsaði ég "ands.... ég hefði kosið hann, enginn spurning". Gaurinn var með þetta allt á hreinu og gerði lítið úr bullinu sem var í gangi á þessum tíma í Þýskalandi og flokkakerfinu - fullt af flokkum með lítinn stuðning hver. Einn flokkur fyrir hverja atvinnugrein og hóp fólks. Hitler náði atkvæðum fjöldans hins vegar.
Er eitthvað sem þið viljið vita um upphaf frönsku stjórnarbyltingarinnar (er ekki komin lengra í lestrinum) - nei ekki, ok þá... bæ
Risaeðlan

Ummæli