Fara í aðalinnihald

Réttir

Krakkarnir farnir með frænku sinni í réttir, mikil spenna en KBB er dálítið döpur vegna örlaga Snoppu vinkonu sinnar. KEB var komin í reiðbuxurnar og var byrjaður að hnerra innan 10 mínútna. Það hefur nú ekki gerst áður, byrjað að klæja og allann pakkann. Var búinn að taka ofnæmistöflu en engu að síður voru einkennin að koma í ljós. Hann langaði svoooo mikið til að drífa sig af stað og ég lét hann ráða. Þau ætla að hringja í mig ef hann er alveg að deyja úr vanlíðan greyið. Í þetta sinn uppgötvaði KBB í alvöru að það er hundfúlt að vera með ofnæmi. Hún hefur ósjaldan öfundað hann af athyglinni sem hann fær út á ofnæmið. Ég held að hann verði í lagi barnið fyrst þau hafa ekki hringt ennþá - veðrið er þannig - búið að rigna mikið og allt blautt og þungt við jörðina. Það fýkur varla mikið í andlitið á manni þarna. Svo er það bara sturta eða sund þegar gamanið er búið og þá ætti hann að vera góður. Ég er svo glöð yfir því hvað veðrið er yndislegt, þau hafa oft verið að rétta í slagviðri þarna uppfrá - alltaf skemmt sér jafnvel samt.

BH er á SPA núna (snuff, ekki ég), og ég fékk tilskipun um að taka allt saman upp - og Davíð er í gulum æfingabol Madrid (held Madrid, frekar en Barcelona) þannig að ef þeir sjást í sjónvarpinu þá þekkir maður þá á gula bolnum.
Rauk í það mál núna að kveikja á sjónvarpinu áðan til að gleyma þessu ekki, yrði ekki fyrirgefið það. En sko það virkar aldrei neitt hérna þegar karlinn er ekki heima - það kom ekki sjónvarpið upp hjá mér - skjárinn eitthvað skrýtinn. Til að gera langa sögu stutta lentum við KEB í vandræðum í gær og minns hringdi í Mannsa Hansason sem vissi ekkert og var alveg bit - allt reddaðist þegar ég restartaði vélinni og enginn veit hvers vegna. Áðan lenti ég sem sagt í sama skítnum en gat reddað því með því að gera eins og í gær. Þetta Windows Vista er að gera mig vangefna, algjört drasl. BH vill þó meina að í þetta sinn hafi þetta verið sjónvarpið. Þegar þetta virkar allt eins og það á að gera er þetta snilldarkerfi allt saman en gerir mann léttklikkaðann þess á milli.

Nú er planið að nota tímann á meðan krakkarnir draga í dilka að lesa meira um frönsku stjórnarbyltinguna, það gengur ágætlega - hægt en örugglega. Er að glósa upp úr þessu til að muna betur, vona að það eigi eftir að skila sér á prófi. Þarf að velja mér einn þátttakanda byltingarinnar og skrifa ritgerð um hann - einhverjar hugmyndir? Vil ekki velja alveg strax, þekki ekki nógu marga ennþá til að ákveða mig.

Au revoir

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...