Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá maí, 2008

Í spreng

Við BH ákváðum að gifta okkur þennan dag fyrir 14 árum síðan, en þar sem presturinn var upptekinn ákváðum við að fresta því þar til í júní. Fyrir 6 árum síðan 28. maí kl. 9:35 lá ég á skurðarborðinu í aðgerð sem tók nokkra klukkutíma. Átti að fara inn kl. 8 en var trillað út aftur því læknirinn var á fundi til kl. 9 - akkúrat það sem mann vantar þegar verið er að krukka í mann. Ég var vakin um kl. 13. Það er ekki liðinn nógu langur tími til að minningin um hversu hrikalega mikið ég þurfti að pissa sé horfin. Hef aldrei á ævinni verið eins mikið í spreng í eins langan tíma eins og þennan dag árið 2002. Ég grátbað um að fara á klósettið en það var ekki í boði. Ekki vegna þess að þær treystu mér ekki framúr, því ég hefði getað það á lyginni - nei sko það er ekkert klósett þarna nema frammi og ef maður fer fram þá fær maður ekki að koma inn aftur - því þarna er allt dauðhreinsað. Þær reyndu að koma með bekken og ég reyndi mikið að nota það - það kom bara ekki dropi þó ég væri gjörsamlega a...

Tilhlökkun

Held í alvöru að ég hlakki meira til þegar grunnskólanum verði slitið heldur en krakkana. Það er svo nice þegar þau eru búin í skólanum. Þá er ekki þetta stress að koma þeim í rúmið og vakna á ákveðnum tíma. Við KEB reyndar höldum áfram að bera út, en það er bara hægt að leggja sig þegar það er búið. KEB fékk bréf í pósti í gær. Ægilega fínt umslag og aftan á var íslenska skjaldamerkið og alles. Kom í ljós að honum er boðið að koma og vera viðstaddur afhendingu íslensku menntaverðlaunanna. Það er ekkert annað - vissi að það væri haldið í Lágafellsskóla í ár. Spurði Lilju hvað þetta væri eiginlega - en hún gat ekki svarað mér almennilega. Ég er helst á því að þetta sé bara svona athöfn fyrir forsetann og ráðamenn að sýna sig og sjá aðra. Þetta verður sýnt í kastljósinu beint. Það er verið að þrífa skólann með tannbursta í tilefni hátíðarinnar. Ég nenni nú eiginlega ekki að mæta. Sitja þarna og hlusta á innantómt blaður innan um misfínt fólk. Ég er ein af ekki fína fólkinu - og hef ekki ...

Farin í hundana

Fimleikasýningin hjá Ármanni gekk vel. KEB hefur farið mikið fram í vetur. Það eru alltaf búningar á svona sýningum og áttu drengirnir í hópnum hans að vera í leðurjakka með sólgleraugu. Gallinn er að KEB á ekki leðurjakka, mamman lagði höfuðið í bleyti og mundi allt í einu eftir að Björgvinssynir eiga slíkar flíkur. Það reyndist lítið mál að fá jakkann hans Jóns Gísla lánaðan og KEB var svo glaður að geta verið eins og hinir í hópnum. Púff, ég var ekki alveg að fara að kaupa leðurjakka fyrir 3 mínútna atriði í klukkutíma sýningu. Þeir voru rosalegir töffarar, en fóru úr jökkunum og tóku af sér sólgleraugun áður en þeir stukku af trampólíninu og sneru sér í alls konar hringi og skrúfur í loftinu, og fóru svo heljarstökk á loftdýnunni. En þeir voru voða ánægðir með sig í jökkunum. Alla helgina er búið að pressa rosalega á okkur hjónin - svo svakalega að okkur líður eins og valtað hafi verið yfir okkur á jarðvegspressu. Erum gjörsamlega að gefast upp og erum farin að hljóma eins og biluð...

Á dauða mínum átti ég von

en ekki að Ísland kæmist áfram í Eurovision - ekki séns. Hafði ekki trú á þessu öllu saman, finnst þetta allt frekar hefðbundið og boring - bæði lagið og umgjörðin um það. En það er nú bara ég. Hér var stiginn stríðsdans af krílum sem muna ekki annað en spól í undankeppninni. Þannig að við erum nú mjög sátt við að fá að taka þátt á laugardaginn, ánægjuleg tilbreyting. Vorum í afmæli hjá Hugrúnu áðan - skvísan orðin 16 ára. Ég fékk sjokkið þegar ég velti fyrir mér í dag að hún fær bílpróf á næsta ári. Erna Eurovision Fan fjölskyldunnar var spurð hvort Ísland kæmist upp úr undankeppninni og hún hélt það nú - engin spurning. Við hin vorum ekki eins sannfærð og svona hummuðum eitthvað - Hansi greip það á lofti og sagði að þetta væri nú aðeins spurning um hvar við ættum að halda keppnina að ári. Þá var nú hlegið - það trúir því enginn. En hver veit - Erna hafði rétt fyrir sér, við verðum með á laugardaginn það er hálfur sigur. BH kom heim í gær, sótti hann út á völl - taskan varð eftir í Kö...

Ég vissi það...

Var að lesa 24 Stundir og fékk staðfest það sem ég hef lengi vitað. Danskan er erfitt tungumál - orðin renna saman þegar Danir tala og það er varla nokkur leið fyrir heilvita mann að skilja þá. Kom ekki bara í ljós að ungabörn í Danmörku eru sein til máls af þessari einföldu ástæðu. Ég er hér með opinberlega hætt að skammast mín fyrir að geta ekki bjargað mér á dönsku þrátt fyrir nokkur löng ár í dönskunámi. Helena er eflaust sammála mér - námshesturinn sá - held samt að hennar danska sé betri en mín. Verð samt að segja að ég hef þurft að lesa texta á Norðurlandamálunum í skólanum og það gekk bara lygilega vel. Og alltaf verð ég jafn montin þegar ég uppgötva að ég actually skil samhengið. Við Helena sátum á hóteli í Kaupmannahöfn og snæddum morgunverð hérna um árið. Að venju vorum við djúpt sokknar í mjög merkilegar samræður. Þjónninn kom að borðinu okkar og bauð okkur kaffi. Helena var eldsnögg að svara "no thank you" enda daman snilldar ensku nemi. Þjónninn fór að hlæja og...

Það eru engin takmörk

Not even the sky - Ég tala stundum um það hvað sonur minn sé utan við sig - hann hefur það að hluta frá mömmu sinni, en pabbi hans er ekki mikið skárri. Við hjónin toppuðum okkur núna - erum í sjokki yfir meðvitundarleysinu í okkur. Í síðustu viku pantaði ég flug fyrir BH til Vínar, rándýrt og ekki verjandi að borga tæplega 200 þús fyrir ferðina. Töluðum við Walther og komumst að því að betra væri ef þeir hittust í Brussel og myndu svo fljúga þaðan saman til Vínar. Það krafðist þess að ég myndi breyta fluginu til Vínar til Brussel, sem ég og gerði. Jafnframt var nauðsynlegt að fljúga út einum degi fyrr, þ.e. 19. maí í stað þess tuttugasta. Anyways - ég vaknaði í morgun, bar út, kom börnum í skólann og fór svo í vinnuna - skildi manninn eftir sofandi heima. Kl. 10 mætti hann samviskusamlega og af rælni ákvað hann að athuga hvenær á morgun hann myndi fljúga. Svo var bara hrópað - LÓA - ég trúi þessu ekki - ég er að fljúga út klukkan eitt. Ég missti úr slag, leit á klukkuna - höfum þrjá t...

Miðaldra

Fórum í gær hjónin í matarboð til Sólveigar og Hlyns. Krakkarnir fengu að kaupa sér pizzu og svo var bara bíó og nammi frameftir kvöldi hjá þeim. Skýr skilaboð til þeirra var að horfa á eina mynd og fara svo í rúmið bara að sofa. Í morgun kom Karlotta til okkar og fyrsta tilkynning var - "við horfðum á tvær bíómyndir" og svo púkaglottið og beðið eftir viðbrögðum. Þau voru bæði sofnuð þegar við komum heim - ekkert vesen eða vandamál. Ferlega nice, þurfum ekkert að spá lengur í barnapössun fyrir þessa stóru krakka. Höfum reyndar ekki gert það lengi, en þetta verður alltaf minna og minna mál. Fengum kjúkling Indian style að borða - spicy - rosalega gott. Held að allir hafi borðað yfir sig eins og lög gera ráð fyrir. Það var náttlega spjallað fram á rauða nótt og á endanum þurfti að henda okkur út - það þarf víst að fara heim einhvern tímann. Það voru nokkrar góðar sögur sem flugu þetta kvöld, eitthvað sem ekki verður haft eftir á opinberum vettvangi - svona svo enginn lendi í va...

Sumarið er komið

Fórum hjónin í Ikea áðan og keyptum stóla út á pallinn og einhverjar sumarvörur. Þannig að nú má sólin bara fara að skína svo ég geti borið á þetta allt saman og gert fínt hérna úti. Á meðan á Ikea ferðinni stóð dauðsá ég eftir því að hafa dregið hann með mér - alltaf jafn stressaður að komast í vinnuna aftur. Hafði lítinn tíma (engan) til að líta í kringum mig og skoða fíneríið allt saman. Eftir að hafa gengið í gegnum kassann og borgað sá ég að sennilega hefði verið verra ef ég hefði haft meiri tíma - buddan var ansi létt eftir þessa hádegisferð í Hafnarfjörðinn. L8R

Afmælismánuður

Hér hjá mér hefur maí verið afmælismánuðurinn mikli hjá vinum og fjölskyldu. Get nefnt ansi mörg afmælisbörn í maí. Fríða mín á afmæli í dag - vinkonur síðan við vorum sjö ára, þá flutti hún í hverfið. Þó við höfum ekki verið saman í bekk þá gengum við sömu leið heim og þannig kynntumst við. Það voru nefnilega ekki of margir sem gengu heim þarna megin við skólann, flestir fóru í hina áttina - í átt að Heimunum, Álfheimum, Sólheimum o.s.frv. Bestu vinkonur ever since :o) Til hamingju með afmælið kæra vinkona - þú færð aldeilis flottan 35 ára afmælisdag. Það er vel við hæfi kannski því þú ert alltaf brosandi :o) Ég er að reyna að vera dugleg hérna - vinna, græja garðinn, sjá um börn og heimili o.s.frv. Byrjaði ekki vel reyndar. Var hjá Helenu og Davíð í fyrrakvöld. Ræddi það að nú væri það bara komið í vana að vakna tæplega 6 á morgnana, væri ekki mikið mál. Var greinilega svona voðalega afslöppuð eftir að prófið var búið og svaf yfir mig í gærmorgun - týpískt eftir svona fjálglegar yfir...

Búin

Þá er það búið - síðasta prófið til BA prófs og bara ritgerðin eftir. Spurning um að fara að hella sér í það fljótlega. Nota sumarið - ætla að vera eitthvað í Skorradalnum við þetta svo sumarið hentar fínt. Vona bara að ég hafi smá sjálfsaga í mér til að ljúka þessu. En fyrst ætla ég að koma heimilinu í horf aftur - það er nú ekki eins slæmt og oft áður eftir prófatörn - enda bara eitt próf þessa önn. Svo langar mig út í garð að þrífa almennilega og gera fínt hjá okkur. Fullt fullt planað þannig að ég verð að bretta upp ermarnar og vera dugleg. Later

Alveg að klára

Er að lesa og lesa - búin að segja BH að ef ég dett dauð hérna við borðstofuborðið þá er það blóðtappi. Er orðin frekar hreyfingarlaus hérna, sit 12-13 tíma á dag núna undanfarið til að ná yfir efnið. Er samt í ágætismálum því ég var dugleg að lesa þessa önn, svo það hjálpar. En það þarf samt að rifja vel upp, þannig að ég les glósur og greinarnar aftur og bý til nýjar glósur o.s.frv. Brýt upp daginn í dag og fer í afmæli til Magneu - hún er fertug í dag skvísan, Til hamingju með daginn, vona að hann verði eftirminnilegur og skemmtilegur. Sjáumst á eftir :o) Well - lesa meira Later

Hvítasunna

Ég fæddist á Hvítasunnudag, átti svo 12 ára afmæli á Hvítasunnudag líka. Í dag á SBK afmæli og það er Hvítasunnudagur. Páskarnir extra snemma á ferðinni í ár og hún nær þessum degi á sinn afmælisdag. Ég á ekki séns nema páskarnir séu extra seint á ferð. Til hamingju með afmælið mín kæra og njóttu dagsins vel. Þrátt fyrir bilaða rigningu þá bjargast þetta vonandi, þú verður sennilega eitthvað minna að ríða út í dag en undanfarið. Það rignir víst á réttláta þannig að þú ert í góðum málum. Það er búið að vera svo gaman að fylgjast með grasinu grænka í rigningunni sem hefur komið undanfarna daga. Sumarið er á leið í hlað og við vonum náttúrulega að það verði svipað gott og í fyrra. Held þá áfram að lesa, komin í barnaverndarmálin nær okkar tíma - held það sé i alvöru kominn tími til að stokka upp þetta barnaverndarkerfi eitthvað. Later

Tilskipan um hús-agann á Íslandi - 1746

"3. Foreldrarnir skulu ekki alleinasta sjálfir með stöðugri og alvarlegri bæn befala Guði sín börn, heldur og þar hjá, so fljótt börnin fá skynjað, tala fyrir þeim hið einfaldlegasta um Guð og þeirra endurlausnara og það hið góða, sem fyrir hann er útvegað, og þá þau taka til að tala, að kenna þeim Faðir vor og aðrar guðrækilegar bænir, sömuleiðis að venja þau við að uppbyrja og enda daginn með bæn og andvarpan til Guðs forsómunarlaust." "8. Fremji börnin nokkuð ósæmilegt, þá eiga foreldrarnir ekki eftir hingað til brúkanlegum siðvana að láta of-mikið eftir þeim, heldur straffa þau með alvarlegum orðum (þó fyrir utan blót og ósæmileg illyrði) ellegar og so með hendi og vendi eftir ásigkomulagi yfirsjónarinnar; þó skulu öll höfuð-högg og að slá í höstugri reiði vera hérn með ölldungis fyrirboðin, líka og sá heimskulegi vani, sem hér og þar skal hafa verið brúkanlegur í landinu, að hræða börn með Jólasveinum eður vofum alldeilis vera afskaffaður." Svo áttu prestar a...

Læra og pæla

Á að vera að lesa en það er svo auðvelt að finna sér annað að gera. Ætti samt að hafa vit á að hafa nefið bara í skólabókunum eftir gærdaginn. Þá var ég líka dugleg við að gera eitthvað annað. Sótti tölvupóst og fékk bréf frá kennara KBB þar sem tilkynnt var að krakkarnir væru að læra á klukku. Það reyndist sumum börnum frekar erfitt, svona korter gengin í 12 hugtök. Hún benti á nams.is þar eru klukkuverkefni, ég þangað að kíkja. Þegar ég var í alvöru búin að eyða þremur mínútum í klukkuverkefni - jamm fór að leysa þau - þá fór ég að hugsa - bíddu kanntu ekki á klukku? Væri ekki nær að lesa pínu meira? Lokaði forritinu og sneri mér að bókunum en um leið hringdi síminn. Smá spjall. Svo endaði ég á Facebook og kíkti á eitthvað myndband hjá Ósk Laufey um einhverja strípalinga sem náðu saman. Semsagt nudists sem náðu saman. Mér fannst mest spaugilegt að sjá að þau voru bæði næpuhvít á rassinum. Ef maður býr í Ástralíu, eins og gaurinn gerði, og alltaf að striplast í garðinum sínum í sólinn...

WHY?

Af hverju er sumt fólk á þingi??? Ég er að hlusta á Bylgjuna og Pétur Blöndal er að ræða málin við þau þarna. Við Pétur erum ekki á sömu bylgjulengd. Hef nú ekki verið að hlusta með neinni athygli en heyri manninn allt í einu segja að allar jökulár hafa verið til óþurftar í gegnum alla Íslandssöguna. Ef þær eru ekki virkjaðar þá renna þær bara út í sjó - engum til gagns. Nú er ég enginn líffræðingur og veit lítið um árnar og lífríkið alla vega ekki meira ein hver annar. En eitthvað segir mér samt að þessi rök séu kannski ekki þau sterkustu til að virkja árnar! En hvað veit ég - ég er bara fáfróð kona

I´m old

Eða það hlýtur að vera - ég hef smá áhyggjur af framtíð barnanna minna. Samkvæmt mínum útreikningum verða þau í hæsta máta óeðlilega útlítandi um 25 ára aldurinn ef þau vilja tolla í flottheitum og tísku. KBB tilkynnti mér í morgun að dömurnar í bekknum hennar hefðu vinsamlegast (ekki í neinum leiðindum) bent henni á að hún væri í gerviskóm. Jább - mamman fór með skvísunni í skóbúð fyrr í vor því hún átti enga létta skó þegar snjórinn var að hverfa og göturnar orðnar þurrar. Við mæðgur vorum sammála um að kaupa skó sem eru svona léttir úr strigaefni og ná aðeins upp á ökklann. Flestir myndi kannast við útlitið þegar ég nefni KAWASAKI skó. Þeir eru málið núna - í fyrra var það CRUISER, sem börn þekkja sem annað útlit. Nú vill svo til að fleiri framleiðendur búa til sömu týpur, bara ekki með réttu nafni. Þannig að "kawasaki" skórnir hennar KBB eru í raun cruiser skór, því þeir eru framleiddir af cruiser. Big deal - bara gerviskór semsagt. Þetta gátu nú 8 ára vinkonur leitt hana...

Sjokkk

Ég bara í ágætismálum, ritgerðin að klárast á bara eftir að lesa hana yfir í síðasta sinn og þá get ég skilað. Skila viku fyrir próf, prófið 13. maí þannig að ég er á góðum tíma, get skilað í fyrramálið þegar ég hef lesið yfir einu sinni enn. Betra að gera það á morgun, smá tími á milli þess sem maður er alveg djúpt sokkinn í efnið. Já eða það hélt ég, alveg þar til ég las póst frá kennaranum þar sem hann tjáði okkur að skil væru fyrir miðnætti í kvöld - 5. maí, ekki 6. maí eins og ég gerði ráð fyrir. SJOKK - smá hjartsláttur, en samt myndi ég ná þessu - lítið mál. Las svo næsta bréf þar sem hann lengdi frestinn þar til á morgun því bréf frá nemanda hafði vakið athygli hans á því að sennilega gerðu flestir ráð fyrir að nota morgundaginn til að klára, því 6. maí er viku fyrir próf í okkar huga. HJÚKK - smá meiri tími til að átta sig á ef lagfæringa er þörf. Helena var sátt við útkomuna er hún las yfir, Sonja ætlar að lesa meistarastykkið líka svo ég ætti að geta skilað þokkalegri ritger...

Myndir

BH opnaði um daginn Flickr síðu fyrir mig. Hvenær er betri tími til að læra og dunda í að setja myndir inn á síðuna? Jú þegar maður er að skrifa ritgerð og ætlar að drífa sig að klára til að geta farið að lesa fyrir próf. Aldrei betri tími en það og þess vegna dundaði ég í gær við að setja nokkrar myndir þar inn. Hægt er að smella hér til að skoða síðuna. BH er með fleiri myndir á sinni síðu BH hægt að skoða þær líka. Flott fyrir ykkur útlandafólk að fylgjast með krökkunum stækka þarna. Later

Hláturinn lengir lífið

Við BH fórum í gær að sjá Hvers virði er ég hjá Bjarna Hauki. Verð að viðurkenna að ég átti nú svo sem ekki von á miklu. Þetta fór svona hægt af stað en endaði þannig að tárin láku því ég hló svo mikið. Þetta var heldur ekkert of langt, bara klukkutími. Mæli alveg með að fólk kíki á hann ef það nennir svona uppistandi. Er á Bókhlöðunni núna, gengur skítsæmilega, alltaf hægar samt en ráð var fyrir gert. Það er skemmtilegra hérna núna en oft áður því ég hitti loksins á Sólveigu og systir hennar er hér einnig að læra. Þannig að nú hef ég einhvern til að fara með í smá kaffi, venjulega sit ég bara þar til blaðran er að springa og ég komin með hausverk af hungri. Það er ekki mjög gott fyrir afköstin. KEB vill endilega fara í bíó í dag - Iron Man heillar drenginn núna. BH ákvað að skella sér með honum en fékk að vita að daman yrði ekki ánægð ef hún fengi ekki að fara í bíó líka. Hann leitaði að bíófélaga sem allar voru uppteknar. Brá á það ráð að athuga hvort amman nennti ekki að fara með ...

Lífið á hlöðunni

Jamms - fólk kemur hingað til að notast við bækur og margir til að fá frið frá heimilis skvaldri og óþarfa hávaða. Núna dynur á mér hátíðnihljóð sem virðist ekki ætla að hætta. OG smá háreisti frá fullorðnum karlmönnum sem liggur allt í einu ekki lágt rómur er þeir sitja og tefla. Eitthvað ekki sammála um leikreglur??? Hmm það eru sem sagt ekki bara börnin mín sem deila um svindl og reglur er þau tefla eða spila. Hátíðnihljóðið er hætt, gaurarnir staðnir upp en rökræða enn stöðuna í taflinu - sýnist þeir ætla að yfirgefa svæðið bara en lækka ekkert róminn samt! Ritgerðin mjakast fram í dagsljósið - er að klára innganginn - pínu erfitt að geta ekki flett upp í bókunum sem liggja heima í bókasafnspokanum fína við útidyrnar. Until Next Time

Hálfnað verk...

Komin á hlöðuna - ætla að vera dugleg og koma nokkrum orðum á prent til að klára þessa ritgerð sem fyrst. Pakkaði öllu samviskusamlega heima og gleymdi svo helmingnum þar. Er ekki með neinar bækur eða greinar með mér til að fletta upp í til að fá meiri upplýsingar ef það þarf þegar ég byrja að skrifa. Gáfulegt - ekki svo mjög. Farin að skilja hvaðan börnin mín hafa þessa gleymsku. Er samt svo heppin að hafa stungið glósunum úr bókunum í töskuna mína þannig að ég get alla vega byrjað og séð til hvað ég kemst áfram. Later

Afmæli

Það er ekki hið týpíska 1. maí veður úti núna. Yndislegt veður - við erum samt búin að slá Esjuferð á frest. Vonandi drífum við okkur á góðum degi þegar við gefum okkur betri tíma. BH verður hundgamall í dag - hí hí - honum finnst svo erfitt að eldast. Við ætlum að taka því rólega. Venjan er að vekja afmælisbarnið með afmælissöngnum en það mistókst í dag. Gaurinn var vaknaður og kominn inn á bað þegar ég stóð við rúmið hans KEB, sem hafði lagt sig aftur eftir útburðinn. Á meðan ég hvíslaði að Kjartani að vakna þá rykti BH upp baðhurðinni (sem er beint á móti herberginu hans KEB) og gaulaði sjálfur afmælissönginn með þvílíkum látum. Ég missti úr slag og meig næstum á mig, hló síðan þvílíkum taugaveiklunarhlátri á meðan ég reyndi að skamma hann. KEB glotti út í annað, sneri sér á hina hliðina og hélt áfram að sofa. Við KBB vorum búnar að baka súkkulaðiköku í morgun og leggja á borð fyrir morgunmat. Við settumst þrjú og tókum til við að gera veitingunum skil á meðan gelgjan lá skotin inni...