Var að lesa 24 Stundir og fékk staðfest það sem ég hef lengi vitað. Danskan er erfitt tungumál - orðin renna saman þegar Danir tala og það er varla nokkur leið fyrir heilvita mann að skilja þá. Kom ekki bara í ljós að ungabörn í Danmörku eru sein til máls af þessari einföldu ástæðu. Ég er hér með opinberlega hætt að skammast mín fyrir að geta ekki bjargað mér á dönsku þrátt fyrir nokkur löng ár í dönskunámi.
Helena er eflaust sammála mér - námshesturinn sá - held samt að hennar danska sé betri en mín. Verð samt að segja að ég hef þurft að lesa texta á Norðurlandamálunum í skólanum og það gekk bara lygilega vel. Og alltaf verð ég jafn montin þegar ég uppgötva að ég actually skil samhengið.
Við Helena sátum á hóteli í Kaupmannahöfn og snæddum morgunverð hérna um árið. Að venju vorum við djúpt sokknar í mjög merkilegar samræður. Þjónninn kom að borðinu okkar og bauð okkur kaffi. Helena var eldsnögg að svara "no thank you" enda daman snilldar ensku nemi. Þjónninn fór að hlæja og sagðist hafa boðið okkur góðan daginn - á dönsku samt. Okkur heyrðist hann vera að bjóða okkur kaffi. Honum þótti þetta mjög spaugilegt því hann vissi að við værum íslenskar og vissi líka að Íslendingar læra dönsku í mörg ár. Við tjáðum honum að þetta væri ekki uppáhaldsfag margra og flestir gætu sennilega lesið og skilið meira en ef þeir hlustuðu á talað mál.
Fór út í garð áðan - líka í gær. Komin með 8 poka þarna úti núna sem þyrftu að komast í Sorpu við tækifæri. Er samt ekki hálfnuð, þetta er endalaust. Planið er að fara út á hverjum degi, alla vega þegar ekki rignir. Nenni ekki að vera úti allan daginn, betra að taka þetta svona í skömmtum. Hlakka til að slá grasið - kominn tími á það. Það verður eitthvað svo hreinn bletturinn eftir fyrsta slátt. En þar sem BH er Austurríki (á leið til Belgíu akkúrat núna) þá ætla ég að bíða með að slá. Af fenginni reynslu þá hef ég hann svona nálægt þegar sláttuvélin er ræst í fyrsta sinn eftir veturinn. Ég verð annars ónýt í hægri handleggnum og tíminn sem fer í að vekja vélina er meiri en ég nenni.
Later

Ummæli