Ég fæddist á Hvítasunnudag, átti svo 12 ára afmæli á Hvítasunnudag líka. Í dag á SBK afmæli og það er Hvítasunnudagur. Páskarnir extra snemma á ferðinni í ár og hún nær þessum degi á sinn afmælisdag. Ég á ekki séns nema páskarnir séu extra seint á ferð. Til hamingju með afmælið mín kæra og njóttu dagsins vel. Þrátt fyrir bilaða rigningu þá bjargast þetta vonandi, þú verður sennilega eitthvað minna að ríða út í dag en undanfarið. Það rignir víst á réttláta þannig að þú ert í góðum málum. Það er búið að vera svo gaman að fylgjast með grasinu grænka í rigningunni sem hefur komið undanfarna daga. Sumarið er á leið í hlað og við vonum náttúrulega að það verði svipað gott og í fyrra.
Held þá áfram að lesa, komin í barnaverndarmálin nær okkar tíma - held það sé i alvöru kominn tími til að stokka upp þetta barnaverndarkerfi eitthvað.
Later
Held þá áfram að lesa, komin í barnaverndarmálin nær okkar tíma - held það sé i alvöru kominn tími til að stokka upp þetta barnaverndarkerfi eitthvað.
Later
Ummæli