Fara í aðalinnihald

Á dauða mínum átti ég von

en ekki að Ísland kæmist áfram í Eurovision - ekki séns. Hafði ekki trú á þessu öllu saman, finnst þetta allt frekar hefðbundið og boring - bæði lagið og umgjörðin um það. En það er nú bara ég. Hér var stiginn stríðsdans af krílum sem muna ekki annað en spól í undankeppninni. Þannig að við erum nú mjög sátt við að fá að taka þátt á laugardaginn, ánægjuleg tilbreyting.

Vorum í afmæli hjá Hugrúnu áðan - skvísan orðin 16 ára. Ég fékk sjokkið þegar ég velti fyrir mér í dag að hún fær bílpróf á næsta ári. Erna Eurovision Fan fjölskyldunnar var spurð hvort Ísland kæmist upp úr undankeppninni og hún hélt það nú - engin spurning. Við hin vorum ekki eins sannfærð og svona hummuðum eitthvað - Hansi greip það á lofti og sagði að þetta væri nú aðeins spurning um hvar við ættum að halda keppnina að ári. Þá var nú hlegið - það trúir því enginn. En hver veit - Erna hafði rétt fyrir sér, við verðum með á laugardaginn það er hálfur sigur.

BH kom heim í gær, sótti hann út á völl - taskan varð eftir í Köben. Fengum hana núna undir kvöld aftur. Skárra að vera töskulaus hér heima en þegar maður er komin til útlanda. Höfum lent í því líka. Ég raða alltaf þannig í töskurnar að þó ein verði eftir þá eru föt fyrir alla í öllum töskum. Þannig að einn standi ekki á brókinni þegar taskan bregður sér í frí annað en fjölskyldan. En þetta var nú bara ein lítil taska með öllu fyrir einn, þannig að það væri verra að týna henni á leiðinni út. Og fá hana svo aftur þegar maður er á leiðinni heim úr stuttri ferð.

Hér eru allir með sinn kassa af súkkulaði. Ég fékk hrikalega gott súkkulaði - svo gott að ég get ekki hætt að éta það. Það er ekkert afgangs fyrir gesti. Verð samt að hemja mig því ég lofaði Helenu að gefa henni með mér. Við erum forfallnir aðdáendur belgísks súkkulaðis. KBB fékk Mozart kúlu kassa í laginu eins og fiðla og KEB fékk ekta súkkulaði/kakóduft til að blanda heitt súkkulaði. Allir spriklandi glaðir með sitt. Ég reyndar fer á bömmer þegar allt er búið og kenni þá BH um slæmt líkamlegt ástand mitt - en það seinni tíma hausverkur, hann kemur sennilega um helgina.

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...