Það er ekki hið týpíska 1. maí veður úti núna. Yndislegt veður - við erum samt búin að slá Esjuferð á frest. Vonandi drífum við okkur á góðum degi þegar við gefum okkur betri tíma.
BH verður hundgamall í dag - hí hí - honum finnst svo erfitt að eldast. Við ætlum að taka því rólega. Venjan er að vekja afmælisbarnið með afmælissöngnum en það mistókst í dag. Gaurinn var vaknaður og kominn inn á bað þegar ég stóð við rúmið hans KEB, sem hafði lagt sig aftur eftir útburðinn. Á meðan ég hvíslaði að Kjartani að vakna þá rykti BH upp baðhurðinni (sem er beint á móti herberginu hans KEB) og gaulaði sjálfur afmælissönginn með þvílíkum látum. Ég missti úr slag og meig næstum á mig, hló síðan þvílíkum taugaveiklunarhlátri á meðan ég reyndi að skamma hann. KEB glotti út í annað, sneri sér á hina hliðina og hélt áfram að sofa.
Við KBB vorum búnar að baka súkkulaðiköku í morgun og leggja á borð fyrir morgunmat. Við settumst þrjú og tókum til við að gera veitingunum skil á meðan gelgjan lá skotin inni í rúmi. Kakan hitti beint í mark svona nýbökuð og fín, KEB vaknaði ekki fyrr en ég tjáði honum að við værum að borða köku. Þá spratt hann framúr og kom fram - frekar myglaður samt.
Pakkarnir voru opnaðir - PUMA skór, kantlausir svo gott sé að keyra SPIDER-inn í þeim og svo inniskór í vinnuna. Ekki má gleyma myndinni af Gosa sem KBB gaf honum, hún teiknaði hana á myndlistarnámskeiðinu í vetur.
Ég fer eitthvað með mömmu og systkinum hennar í garðinn hjá ömmu í dag. Aðeins að snyrta þar til eftir veturinn. Ómögulegt að hún - 86 ára - sé að stússast í því ein, ekki eins og liðið í kjallaranum hjálpi til. Amma var að spá í að fá krakkana í vinnuskólanum til að sjá um þetta í ár. En það er ekki góð reynsla af þeim - þau koma ekki fyrr en um mitt sumar og það er ekki slegið fyrr en grasið er komið svo hátt að maður myndi villast í garðinum. Fyrir utan að þau virðast ekki öll þekkja mun á arfa og blómum greyin.
Svo stefnum við seinnipartinn á kaffisölu á Háaleitisbrautinni - það er ferlega nice, hafa afmæliskaffi þar og hver borgar fyrir sig og sína og ég þarf ekkert að hafa fyrir þessu og samt hittum við fullt af liði :o)
Later

Ummæli