Fara í aðalinnihald

Sjokkk

Ég bara í ágætismálum, ritgerðin að klárast á bara eftir að lesa hana yfir í síðasta sinn og þá get ég skilað. Skila viku fyrir próf, prófið 13. maí þannig að ég er á góðum tíma, get skilað í fyrramálið þegar ég hef lesið yfir einu sinni enn. Betra að gera það á morgun, smá tími á milli þess sem maður er alveg djúpt sokkinn í efnið. Já eða það hélt ég, alveg þar til ég las póst frá kennaranum þar sem hann tjáði okkur að skil væru fyrir miðnætti í kvöld - 5. maí, ekki 6. maí eins og ég gerði ráð fyrir. SJOKK - smá hjartsláttur, en samt myndi ég ná þessu - lítið mál. Las svo næsta bréf þar sem hann lengdi frestinn þar til á morgun því bréf frá nemanda hafði vakið athygli hans á því að sennilega gerðu flestir ráð fyrir að nota morgundaginn til að klára, því 6. maí er viku fyrir próf í okkar huga. HJÚKK - smá meiri tími til að átta sig á ef lagfæringa er þörf.

Helena var sátt við útkomuna er hún las yfir, Sonja ætlar að lesa meistarastykkið líka svo ég ætti að geta skilað þokkalegri ritgerð.

Best að klára...

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...