Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá nóvember, 2009

Ber er hver að baki...

KBB var frekar stúrinn í gær þegar hún kom heim úr skólanum. Við KEB vorum í eldhúsinu þegar hún kom inn og tjáði okkur að það hefði nú ekki verið svo gaman í dansi þennan daginn. Sko strákarnir vildu dansa við hinar stelpurnar en þegar kom að henni (geri ráð fyrir að þau hafi skipt um félaga reglulega) þá krosslögðu þeir bara hendur og neituðu pent og takk fyrir það. Hún var frekar móðguð og var ekki að skilja þetta. Ég reyndi eitthvað að gera "gott" úr þessu og spurði hvort þessir dvergar (sem enginn nær henni hærra en upp að handakrikum) væru ekki bara hræddir við hana? Henni fannst eitthvað lítið til spurninga minna koma og spurði í kvörtunartón hvort ég yrði ekki móðguð ef allir strákar neituðu að dansa við mig? Jú ég gat ekki neitað því að mér þætti það sennilega heldur leiðinlegt. Þá opnaði bróðir hennar munninn og spurði í rólegheitum "hvar búa þessir strákar?" og á meðan sló hann ákveðið (en rólega) hægri hnefa í opinn vinstri lófann LoL. Þetta var nóg til ...

Vinir og vandamenn

Það er alltaf talað um að maður eigi að vera duglegur að vera í sambandi við vini sína og vandamenn. Ég reyni nú að hafa þetta á bakvið eyrað og hitta vini reglulega og heimsækja mína nánustu líka. Því miður er ég ekki nógu dugleg og hitti vinkonurnar of sjaldan. Og þær eru lítið skárri þessar elskur því allir hafa nóg að gera. Þegar við loksins reynum að hittast, oft ekki fleiri en þrjár eða fimm, þá tekur smá stund að pússla saman tíma sem allir geta komið. Svona er þetta líka þegar við BH ætlum að hitta fólk, ekki alltaf hægt að finna tíma í hvelli. En það reddast nú alltaf og við hittum á vini okkar til að gera eitthvað skemmtilegt saman. Í gær fór ég og hitti bestustu æskuvinkonur mínar - það er svo gaman því það er alveg sama hversu langt líður á milli hittinga þá er eins og við höfum hist daginn áður. Í þetta sinn sparkaði ég boltanum af stað (eins og oft áður) og við ákváðum að hittast á Saffran og borða saman og spjalla. Þetta var brilliant og við ákváðum að láta ekki líða lan...

BrúmmBrúmm

Í útvarpinu í dag heyrði ég að búið sé að slá af allar hugmyndir um áframhaldandi tvöföldun á Vesturlandsveginum. Hér keyra aðeins 16 þúsund bílar á dag. Það var rosaleg samgöngubót þegar þessi kafli á milli Reykjavíkur og Mosfellsbæjar var tvöfaldaður - alveg rosalegur munur. Hins vegar má ekki styggja landsbyggðina og Vaðlaheiðagöng, sem eru í kjördæmi samgönguráðherra, eru enn á dagskrá og lítur út fyrir að þau verði gerð. Það keyra þar alveg 600 bílar á dag hvorki meira né minna. Ég segi bara aftur, það er sami rassinn undir öllu því fólki sem kemst í ríkisstjórn. Ég veit ekki hvað oft ég er búin að heyra samgönguráðherra afsaka sig í bak og fyrir vegna peningaleysis. o

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Kick a ginger day...

Yup auðvitað tek ég þátt og fyrsta sem ég geri á morgun er að heimsækja aldraða ömmu mína og sparka í hana. So what þó hún sé komin með hvítt fallegt hár - ég veit vel að hún var með rautt hár í denn. Og ég veit líka að móðir mín hélt í fyrstu að ég yrði rauðhærð... og það glitti í rautt hjá dóttur minni líka þegar hún fæddist, þó þessi rauði litur okkar mæðgna átti eftir að víkja fyrir ljósum lokkum - hjúkk því þá verður ekki sparkað í okkur á morgun! BH á líka nokkur frændsystkini sem við gætum dundað okkur við að sparka í... já já þetta verður fjör! Eða ekki - það hlýtur eitthvað að vera að heima hjá fólki sem lætur sér detta í hug svona vitleysa. Hvaða öfund er þetta út í fólk með rautt hár? o

okílídókíli

Well - við verðum heldur vinafá næsta sumar. KEB er endalaust að selja í fjáröflunarskyni fyrir ferðina til Danmerkur næsta júlí. Allir verða hundleiðir á okkur og svara ekki símanum, segjast ekki hafa fengið tölvupóst og koma ekki til dyra þegar við erum annars vegar. Og til að tryggja að enginn nenni að lesa þetta hérna áfram þá ætla ég að koma því hér á framfæri að hann er að selja jólarósir, kerti, jólakort, súkkulaðidagatöl, kaffi og m.a.s. sokka. Þannig að það væri vel þegið að ef fólk er í þeim hugleiðingum að kaupa þessa hluti hvort sem er að styrkja drenginn svo mamman fari ekki endanlega á hausinn og barnið komist í þessa skemmtilegu ferð :o) Væri t.d. ekki tilvalið að setja gott kaffi frá Kaffitár í jólapakkann til ömmu og afa og senda falleg jólakort teiknuð af Heklu (þekkið myndirnar þegar þið sjáið þær) til vina og vandamanna? Kaupa ekki allar alvöru húsmæður jólarósir á aðventunni? Súkkulaðidagatölin eru sko með 25 gluggum - já já einn auka fyrir góða krakka (eða þau kom...

Fréttahelstið...

Í gær tók litla drottningin það að sér að elda matinn. Púff - það er best að ég geri þetta bara því gikkurinn ég fékk í magann þegar ég heyrði matseðilinn. Jú sko mín fór með mömmu sinni í fiskbúðina og var alsæl þegar hún sá í glugganum auglýsta GLÆNÝJA LÍNUÝSU. Okkur vantaði einmitt ýsu. Hún ákvað samt að spyrja hvað er "línuýsa"? Hún tjáði manninum í fiskbúðinni að hún vildi ýsu, roð- og beinlausa og þegar hann spurði hvað hún vildi mikið þá svaraði hún "það veit ég ekkert" LoL Öllu vanur spurði gaurinn hve margir væru í mat og svarið var fjórir. Vorum við sátt við 800gr. - kg. Og hann skellti sléttu (alveg sléttu) kílói á bakkann og allir sáttir. Sko ég var ekki alveg að nenna þessum rétti gott fólk. Ég sótti dömuna í skólann í gær því hún missteig sig á sunnudaginn svo illa að hún var bólgin og haltrandi. Á leið frá skólanum í fiskbúðina var þetta rætt. Jú það er sko laukur LAUKUR ojj - mínar verstu martraðir í æsku við matarborðið (fyrir utan lifur *hrollur*) ...

Þétt dagskrá...

Alltaf nóg að gera fyrir jólin. Krakkarnir eru út um allt - spila á tónleikum, keppa í íþróttum, tómstundir með bekknum sínum, jólabingó o.s.frv. Þetta er alltaf annasamur tími en mjög skemmtilegur. Veit fátt skemmtilegra en að fara t.d. á tónleika hjá þeim. Gaman að sjá þau spila fyrir framan fólk eftir að þau hafa æft sig vel og allt gengur upp hjá þeim. Gaman að sjá þau í íþróttum þar sem þau æfa að kappi að gera sitt besta og mér finnst þau að sjálfsögðu alltaf flottust. Best finnst mér þó að þau hafa bæði öðlast öryggi í að koma fram fyrir framan fullt af fólki og þrátt fyrir pínu sviðskrekk öðru hvoru þá skila þau alltaf sínu svo vel og við erum alltaf svo ánægð með þau. Reyndar verður að viðurkennast að KBB nýtur sín alltaf með smá áhorfendur í kringum sig, það virðist ekki há henni eins og foreldrum hennar að láta ljós sitt skína :o) Það eru sem sagt tónleikar hjá þeim báðum í næstu viku, KEB er að keppa um helgina á Akranesi í fimleikum og KBB tekur beltapróf í karate í desemb...

Ljósadýrð...

Það er svo flott hérna hjá okkur núna - var að setja jólaljós í alla gluggana við Leirutangan og í hornið í stofunni. Hvítar stjörnu ljósagardínur :o) Það er ókostur að búa svona á horninu og með alla þessa glugga því það þarf að kaupa svo mikið af ljósum til að þetta verði flott - en kostur hvað þetta verður svakalega FLOTT! Jólóa ;o)

Hrmphf...

Vaknaði í morgun, er aldrei hress á morgnana. Held það geti stafað að því að ég kveiki oftast á Bylgjunni þar sem þáttastjórnendur eru venjulega neikvæðir með neikvæða umræðu, þrátt fyrir að neita því staðfastlega sjálf. Þau halda kannski að það sé nóg að hlæja einstaka sinnum að fyndinni athugasemd eða brandara til að vega upp á móti tuðinu í þeim og gestum þeirra! Svo voru fyrirsagnir morgunblaðanna ekki að hjálpa heldur - allir vissu að svona yrði þetta en það er samt fúlt að lesa það svart á hvítu. Ég bara spyr fólk sem kaus þessa ríkisstjórnarflokka - hélduð þið í alvöru að þetta fólk gæti komið okkur útúr þessari vitleysu allri án þess að keyra okkur endanlega í kaf? Nú held ég svo sem ekkert að hinir gætu gert mikið betur - en ég sé ekki hvernig þeir gætu gert verr! Í morgun hugsaði ég alla vega í fullri alvöru - "af hverju drífum við okkur ekki bara burtu og komum aldrei aftur" Og nei Danmörk heillar mig ekki vitund og þá ekki Noregur eða Svíþjóð. Hef engan áhuga á að...

sjónvarpsgláp og göngutúr!

Höfum farið undanfarin sunnudagskvöld í mat til mömmu og pabba og horft á Fangavaktina með þeim. Verulega nice því það er alltaf svo góður matur og skemmtilegt hjá okkur. Nú var verið að sýna síðasta þáttinn en næsta sunnudag verður upprifjunar- eða bakviðtjöldinþáttur. KBB vildi vita hvort við myndum samt fara í Álfheimana næsta sunnudag. Afinn sagði henni bara að hringja ef mamman vildi ekki elda og segja þá ömmu sinni að hún væri svöng. Þá fengi hún örugglega að koma í mat og sjá þáttinn :o) Nú er það búið að vera þannig að við fjölskyldan höfum farið til tengdamömmu á föstudögum undanfarið ár í mat en nú í haust hefur það aðeins breyst en við kíkjum samt öðru hvoru. Svona þegar hún er ekki í sumarbústað að hafa það kósí :o) Það er nú ekki víst að ég nenni að fara að elda sjö daga vikunnar aftur hmmm - smá leti í gangi. Svo slöpp er ég orðin að hér var ekki einu sinni kvöldmatur í gær :o/ Það reyndar kom til af því að við höfðum fengið okkur kaffi um fjögurleytið - brauð og fínerí o...

Jólajól

Ég er farin að huga að og versla jólagjafir. Nei ég er ekki svona áhrifagjörn vegna allra auglýsinganna ég er að dreifa álaginu á budduna. Svona svo maður sé ekki að borga allt í einu. Svo tekur bara tíma að hugsa og finna góða gjöf fyrir hvern og einn. Held hreinlega að ég sé með allt í huganum fyrir alla núna nema heimilisfólkið mitt hérna sem allta er til vandræða. Það virðist endalaust vera erfitt að finna eitthvað nothæft og skemmtilegt fyrir þau þrjú hérna. En það tekst nú alltaf á endanum svo ég hef ekki of miklar áhyggjur af því. Svo erum við fjölskyldan búin að undirbúa smá piparkökuskreytingar - það á eftir að ákveða dag en búið að kaupa allt efni í það. Það verður vonandi skemmtilegt. Ekki var hægt að nota þessa helgi í piparkökurnar því KBB skellti sér í félagsútilegu á Stokkseyri með skátunum. Hún hlakkaði svo mikið til og ég vona að hún skemmti sér vel. Það á að vera ofurmannaþema svo hún útbjó sér búning, skikkja og læti. Teiknaði sér grímu og litaði og klippti út. Allt ...

Kvöldganga

Við KBB þurftum aðeins að hlaupa hérna á milli húsa í gærkvöldi. Ákváðum að taka hundana með okkur svo þau fengju aðeins ferskt loft og pínu göngutúr. Er við vorum komnar hérna við strætóskýlið (sem er ekki upphitað) í Álfatanganum þá mættum við fólki á göngu. Þetta voru hjón á miðjum aldri. Í stað þess að bjóða gott kvöld eða gera athugasemd um augljósa fegurð hundanna þá spurði karlinn hátt og snjallt "HVAÐ KOSTA SVONA HUNDAR?" Mitt svar var að sjálfsögðu "farðu í rassgat" en upphátt sagði ég "Það veit ég bara ekki" Honum fannst það voðalega fyndið og spurði hvort ég hefði ekki borgað fyrir þau. Jú ég varð víst að viðurkenna það en benti honum á að það væri dálítið síðan og það væri bara misjafnt eftir ræktendum hvað þeir seldu sína hvolpa á. Hvað er þetta með svona lið - fólk á öllum aldri hefur ítrekað spurt okkur hvað kvikindin kosti. Fæstir reyndar spyrja, nema þá kannski að hafa spjallað í smá stund, flestir bara bjóða góðan dag/gott kvöld eða spjal...

Svar óskast!

Er mikið að velta fyrir mér þessu útspili stjórnvalda með lækkun á greiðslubyrði verðtryggðra lána. Mikil hefur gagnrýnin verið á þetta allt saman og ég er alveg rugluð - vil svo gjarnan fá 17% lækkun á allt saman hjá mér en vil að sjálfsögðu ekki að greiðslubyrðin verði meiri en ella eftir nokkur ár. Og ég vil alls ekki borga lengur en nú þegar hefur verið ákveðið. Er með lán sem er bara ekkert svo mikið eftir af og ég vil ekki lengja í neinu hérna takk fyrir. Ég vil alls ekki borga meira en nú þegar er búið að smyrja á allt heila klabbið. Stundum væri ég til í að sjá fram í tímann - svona 10 ár eða svo, mikið gæti það einfaldað ákvörðun mína núna. Var að lesa á vefinn sem Hagsmunasamtök heimilanna halda úti - heimilin.is - og þar er grein sem fjallar um fundinn sem var í Iðnó um daginn og þar er ágætis athugasemd við greinina sem ætti að ýta við manni, alla vega hugsa málið. Ætla að birta hana hérna... "Greiðslujöfnunarvísitala 1 Miðvikudagur, 04 Nóvember 2009 00:26 Karl Þessi g...

Hressandi

Var að koma úr göngu með ferfætlingunum mínum - ný lög í mp3 spilaranum og hressandi veður. Gerist ekki betra, ætlaði aðeins að fara í hálftíma því þau voru búin að fara í dag með KEB, en þegar maður er kominn af stað þá er bara svo gott að halda áfram :o) Later