Ég er farin að huga að og versla jólagjafir. Nei ég er ekki svona áhrifagjörn vegna allra auglýsinganna ég er að dreifa álaginu á budduna. Svona svo maður sé ekki að borga allt í einu. Svo tekur bara tíma að hugsa og finna góða gjöf fyrir hvern og einn. Held hreinlega að ég sé með allt í huganum fyrir alla núna nema heimilisfólkið mitt hérna sem allta er til vandræða. Það virðist endalaust vera erfitt að finna eitthvað nothæft og skemmtilegt fyrir þau þrjú hérna. En það tekst nú alltaf á endanum svo ég hef ekki of miklar áhyggjur af því.
Svo erum við fjölskyldan búin að undirbúa smá piparkökuskreytingar - það á eftir að ákveða dag en búið að kaupa allt efni í það. Það verður vonandi skemmtilegt. Ekki var hægt að nota þessa helgi í piparkökurnar því KBB skellti sér í félagsútilegu á Stokkseyri með skátunum. Hún hlakkaði svo mikið til og ég vona að hún skemmti sér vel. Það á að vera ofurmannaþema svo hún útbjó sér búning, skikkja og læti. Teiknaði sér grímu og litaði og klippti út. Allt heimatilbúið og flott hjá henni. Þær Diljá voru að græja þetta dálítið saman og ætluðu að vera í stíl svo þær hjálpuðust að. Þær eru góðar saman.
Later

Ummæli