Í útvarpinu í dag heyrði ég að búið sé að slá af allar hugmyndir um áframhaldandi tvöföldun á Vesturlandsveginum. Hér keyra aðeins 16 þúsund bílar á dag. Það var rosaleg samgöngubót þegar þessi kafli á milli Reykjavíkur og Mosfellsbæjar var tvöfaldaður - alveg rosalegur munur.
Hins vegar má ekki styggja landsbyggðina og Vaðlaheiðagöng, sem eru í kjördæmi samgönguráðherra, eru enn á dagskrá og lítur út fyrir að þau verði gerð. Það keyra þar alveg 600 bílar á dag hvorki meira né minna.
Ég segi bara aftur, það er sami rassinn undir öllu því fólki sem kemst í ríkisstjórn. Ég veit ekki hvað oft ég er búin að heyra samgönguráðherra afsaka sig í bak og fyrir vegna peningaleysis.
o&o

Ummæli