Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá október, 2011

Æfingin skapar meistarann

Fór í fyrradag og æfði mig að skjóta. BH og Olga skunduðu með sínar byssur og æfðu sig líka. Þau eru nú öllu skárri en ég í þessu en ég er bjartsýn á að ná þessu hratt. Ég var ekki lengi að ná að staðsetja vopnið rétt á öxlina og átta mig á hvernig ég vil hafa þetta þannig að ég hitti kannski eitthvað. En ég hitti alls ekki allt. Fórum aftur í dag reynslunni ríkari og ögn ákveðnari. Ég held ég hafi plaffað í mark í hverju skoti, svona 95%. Skaut rúmlega 30 skotum. En þetta er víst haglariffill svo maður á ekki að miða mikið. Bara leiða og skjóta og hitta. Ég er ekki komin á þann stað í lífinu. Ég er enn að vanda mig að setja vopnið rétt á öxlina, þrýsta því ákveðið aftur og miða like craaazzzy - með annað augað lokað og alles. Mitt næsta verk er því að æfa að setja byssuna á réttan stað án þess að hugsa og reyna að hitta án þess að miða mikið og hafa bæði augun bara opin á meðan. Þetta hljómar allt brjálað einfalt en heilasellurnar mínar senda boðin voða hægt og ég þarf að æfa þett...

007 Licence to kill

Fór í gær með eiginmanninum og við völdum okkur sitthvorn haglarann - yup erum komin í hóp rednecks! Fórum svo til Sýslumanns þar sem útbúið var fyrir okkur leyfi til að kaupa gripina - í þríriti. Allt eftir kúnstarinnar reglum til að allt sé löglegt og ekkert vafasamt í gangi. Trítluðum í búðina og fengum að borga og brosa og taka herlegheitin með heim. Fór svo aftur í dag með eintak undirskrifað af seljanda til sýslumanns og fékk afhent skotvopnaleyfin okkar fínu. Leo hafði sett mark sitt á pappírana. Hann var í skottinu á bílnum, ég brá mér frá í smá stund og hann notaði tækifærið og dreif sig í mjúkt aftursætið til að hvíla sig. Þar voru pappírarnir sem ég var að passa að hafa slétta og fína. Hann búinn að setja gott loppufar á efra blaðið og svona aðeins krumpa þetta allt til. Ég gat ekki annað séð en að hann hafi lagt blessun sína yfir þetta. Hann er örugglega sáttur við hjálpartækin á veiðar. Viss um að hann telji sig færan um veiðarnar sjálfur, en ekki verra að hafa backup ...

Hressandi

Er ekki eins dugleg að drífa mig út að hlaupa núna eins og í sumar. En fer samt lágmark tvisvar í viku og það er alltaf jafn hrikalega hressandi þegar heim er komið aftur. Hljóp með Ronju og Úlfi síðast liðinn föstudag í öskrandi roki og úrhelli. Var ekki að nenna út en ákvað að vera Íslendingur og skellti mér í gallann. Það var ekki næstum eins slæmt eins og það leit út fyrir að verða. En aðalatriðið er að koma heim aftur og fara beint í heita sturtu. Brrr annars verður manni illa kalt. Var að skoppa með þau áðan í þessu líka frábæra veðri. Ekkert verra þó það sé aðeins kalt úti. Maður græjar sig bara í kisugallann og drífur sig af stað. Ég fer bara þessa standard fimm kílómetra. Spurning um að auka aðeins í ef ég læt verða af því að hlaupa markvisst. Það er á stefnuskránni :o) Annars er líka á stefnuskránni að klára göngupilsið sem ég er að prjóna. Ofursvalt og ég á bara eftir um þrjá cm, þá er ég búin. Geri ráð fyrir að geta þá notað kisu (coldgear) buxurnar mínar í gönguferðu...

Cat Woman on her kittens bike !

Hjól er hin mesta uppfinning. Mjög gott að notast við hjól þegar maður er með þrjá hunda á heimilinu sem þarf að hreyfa. Hljóp í gær með einn þeirra og nennti ekki að hlaupa með þau öll aftur núna. Hef ekki tíma eða orku til að sinna þeim ein á hlaupum. Sérstaklega þegar ég fæ mestu hreyfinguna því ekki kemst ég með þau öll í einu. Hætt við að rakkakvikindin myndu annað hvort a) ræða málin í einlægni með ekki svo fallegum afleiðingum, eða b) þau myndu ná mér niður á hnén svo magann og loks draga mig á nefinu áfram með ekki svo fallegum afleiðingum. Svo hjólið var notað með prýðis árangri og það fór ekki allur dagurinn í að hreyfa þau. Ronja og Úlfur drógu mig um 6-7 kílómetra í kringum bæinn. Þegar þau voru komin heim og út í gerði tók Leloo við og dró mig annan hring (ekki sömu leið) í kringum bæinn, 6-7 kílómetra. Má ekki minna vera. Nú geri ég ráð fyrir að þau verði sátt þar til í kvöld eða á morgun. Sé fram á bjartari tíma í hundamálum því BH er á leiðinni akkúrat núna yfir Atl...

Mjá

Ég smeygði mér í svörtu ofursvölu coldgear spandex hlaupabuxurnar, nýja anita toppinn, svarta spandex ofursvala hlírabolinn, svarta ofursvala drifit peysuna og malaði lágt er ég klæddi mig í nike bláa og hvíta jakkann yfir. Það var eina stílbrotið því ég fílaði mig eins og CatWoman í öllu svörtu og súperþröngu. Nú vantaði bara ipodinn og beislið um mittið - því var reddað - komin í sokkana og skóna. Úlfurinn kominn í beislið og við Leloo vorum ready út í myrkrið. Það þarf aðeins að ala upp í honum dráttareðlið... þ.e. að hann eigi að vinna þegar við erum saman á hlaupum eða á hljóli. Hann er dáldið á þefvaktinni ennþá þessi elska. Þarf að ná honum í að toga mig áfram - það vantar ekki kraftinn þegar eitthvað áhugavert er framundan. Hljóp þessa standard fimm kílómetra og líður vel á eftir - ekki að skemma að ég er búin með alla vinnu til að borga virðisaukann á morgun og ég get sofið róleg. Enn og aftur þarf ég að éta ofan í mig það sem ég hef áður fullyrt - það er opinbert - gell...

Gott teymi

Var að tala við BH i símann - hann á meginlandinu og ég á eyjunni fögru. Vorum að tala um úr og ég leit á mitt hérna á borðinu við tölvuna og sá að dagsetningin var 31. og spyr eiginmanninn þvi "er ekki fyrsti í dag?" Hann hélt að það væri á morgun og við ræddum það aðeins og hann sættist á að það væri fyrsti í dag. Á meðan var að ég gramsa í úrinu til að stilla dagsetninguna rétt. Hann spyr þá "er það ekki einhver dagur?" Ha segi ég, einhver dagur ? Nei er það... en hugsa 1. október og segi JÚ það er einmitt einhver dagur :o) Hann hélt ég væri að spyrja út af því að dagurinn væri spes... nei sagði ég - er bara að stilla úrið mitt :o) Gleymi alltaf þessum degi samt einhvernveginn. Það eru tuttugu ár síðan við trúlofuðum okkur. Það tók okkur aðrar þrjár mínútur að rifja upp hversu mörg ár væru liðin. Eina sem ég mundi var... var ég ekki 18 þá ? Var ég ekki 18 þegar við vorum á Mallorca ? Mundi það alla vega - sama ár og við fórum þangað. Svo við vorum sammála um að...