Fara í aðalinnihald

Æfingin skapar meistarann

Fór í fyrradag og æfði mig að skjóta. BH og Olga skunduðu með sínar byssur og æfðu sig líka. Þau eru nú öllu skárri en ég í þessu en ég er bjartsýn á að ná þessu hratt. Ég var ekki lengi að ná að staðsetja vopnið rétt á öxlina og átta mig á hvernig ég vil hafa þetta þannig að ég hitti kannski eitthvað. En ég hitti alls ekki allt.

Fórum aftur í dag reynslunni ríkari og ögn ákveðnari. Ég held ég hafi plaffað í mark í hverju skoti, svona 95%. Skaut rúmlega 30 skotum. En þetta er víst haglariffill svo maður á ekki að miða mikið. Bara leiða og skjóta og hitta. Ég er ekki komin á þann stað í lífinu. Ég er enn að vanda mig að setja vopnið rétt á öxlina, þrýsta því ákveðið aftur og miða like craaazzzy - með annað augað lokað og alles.

Mitt næsta verk er því að æfa að setja byssuna á réttan stað án þess að hugsa og reyna að hitta án þess að miða mikið og hafa bæði augun bara opin á meðan. Þetta hljómar allt brjálað einfalt en heilasellurnar mínar senda boðin voða hægt og ég þarf að æfa þetta til að ná þessu. Prófaði að skjóta á leirdúfur sem BH kastaði... hitti enga, en þær voru nú bara þrjár. Hitti næst - vona ég.

Ég ítreka það sem ég hef áður sagt, held að ég sé meira svona rifflatýpan... þar til annað kemur í ljós. Þ.e. ef ég næ góðum tökum á haglabyssunni. það lítur nú út fyrir að það geti orðið fyrr en síðar miðað við hversu hratt okkur fór fram þessi tvö skipti.

Annars er aðalmálið að umgangast vopnin með smá varkárni. Venja sig á réttar umgengisreglur strax og fara eftir þeim alltaf. Ég þarf að venja mig á að setja öryggið á eftir að ég hætti að skjóta, þó byssan sé tóm. Þannig að í dag passaði ég að muna eftir því og að ganga aldrei í burt frá vopninu öðruvísi en að það væri opið og með öryggið á. Hvort sem það var hlaðið eða ekki.

Þetta er hrikalega skemmtilegt - hugsa að ég fái ekki leið á þessu alveg í bili. Hlakka til þegar við drífum okkur aftur. Nennum ekki á morgun þar sem spáð er rigningu. Það þarf að taka þetta allt í sundur eftir notkun í rigningu... nennum því ekki meira en nauðsynlegt er.

Later

Ummæli

Nafnlaus sagði…
...hrædd... :) HMS
Lóa Björk sagði…
Það er alveg ástæða til þess ;o)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...