Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá febrúar, 2012

Frjáls eins og fuglinn

Stundum þarf að fá að hlaupa frjáls og leika sér. Jökull heppinn að vera ekki étin í þessari ferð held ég :) Það er svo gaman að fylgjast með þeim hlaupa um allt. Það hefur verið tekið eftir því undanfarið í lausagöngu að Ronja þykir ansi ágætur smalahundur. Hún smalar reyndar hundum, ekki kindum (meira étur kindur ef hún kæmist í þær). Svo fær hún þau öll til að elta sig í einhverri útgáfu af þrautakóngi. Ansi skondið að fylgjast með þessu. Leo og Zizou þarna búin að finna hvort annað, léku sér greinilega heilmikið saman... þar til Úlfur þurfti eitthvað að skipta sér af og athuga hvort hann legði blessun sína á sambandið. Við vitum ekki úrskurðinn og ég held að Leo og Zizou sé reyndar alveg saman hvað honum finnst. Þeim þótti þetta fjör. Hríma litla var alveg á því að tími væri fyrir helgarnammi. Það var jú laugardagur og hún búin að vera súper ofur dugleg í átakinu. Átakinu sem hún reyndar gaf ekkert samþykki fyrir, setti aldrei sína loppu á neinn pappír og skilur ekki alveg h...

Ítölsku Alparnir

Við mæðgur komnar heim aftur frá Ítalíu. Við skemmtum okkur konunglega í Dolomiti fjöllunum. Þar lærði litla drottningin á skíði og kemst nú niður allar þær brekkur sem ruddar hafa verið til að skíða. Það var svo gaman hjá okkur að við erum strax byrjaðar að safna fyrir næstu ferð. Og söfnum í leiðinni fyrir okkar eigin skíðaútbúnaði. Hva, heilt ár í næstu ferð þetta verður ekkert mál. Myndin hérna af okkur mæðgum er tekin á Shell bensínstöð. Vorum á leiðinni frá Verona upp í fjöllin á hótelið. Þarna var aðeins stoppað svo fólk gæti fengið sér smá að borða og kannski pissa... fyrir þá sem höfðu lyst á því - ég sneri við í hurðinni út aftur. Hér eru frábæru ferðafélagar mínir á leiðinni upp í fjall á sunnudagsmorguninn, fyrsta morguninn okkar. Það er ekki hægt að fá betri ferðafélaga en þetta fólk, þau eru æðisleg. Allir slakir, allir gátu gert það sem þeir vildu þegar þeim hentaði og enginn háður neinum. Þó við mæðgur höfum dálítið verið límdar saman og Svandís var mikið með ok...