Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá nóvember, 2008

Smá grín - eða ekki...

Til að lífga uppá gráan hversdagsleikann og gera dagana meira spennandi og innihaldsríkari, mæli ég með að þú gerir eitt/fleiri/öll eftirtalin atriði reglulega.... 1. Í hádeginu: leggðu bílnum og sittu í honum með sólgleraugu. Miðaðu með hárþurrku á bílana sem keyra framhjá. Athugaðu hvort þeir hægi á sér. 2. Kallaðu sjálfa þig upp í innanhúss kallkerfinu. EKKI reyna að breyta rödd þinni. 3. Stattu föst á því að netfangið þitt sé: Xena-Warrior-Princess@OCDSB.edu.on.ca eða Elvis-the-King@OCDSB.edu.on.ca 4. Hvert skipti sem einhver biður þig að gera eitthvað fyrir sig, spyrðu "má bjóða þér franskar með þessu?" 5. Stilltu ruslafötunni upp á skrifborðið með miða á sem segir "Innbox" 6. Þróaðu með þér óeðlilega hræðslu við prjónadót 7. Fylltu kaffivélina með koffínfríu kaffi í þrjár vikur. Þegar allir eru búnir að losna við koffínfíknina, fyllirðu á með espresso. 8. Á allar kvittanir skrifar þú; Fyrir kynlífsþjónustu. 9. Ljúktu öllum setningum þínum með; Samkvæmt spád...

Alive

Við mæðgurnar skelltum okkur norður til Akureyrar um síðustu helgi. Vorum svo að njóta þess að vera saman í skvísuferð. Flugum norður um kl. sex á föstudagskvöldið, flugið tekur aðeins 45 mínútur. Rétt náðum að spenna á okkur beltið og koma okkur fyrir, daman gerði heimanámið sitt og ég las í einhverju blaði. Ein flugfreyja um borð - hún talaði svo hratt að ég velti því fyrir mér hvort hún væri í akkorði, varla hægt að skilja orð sem hún sagði. Svo þegar flugstjórinn sagði nokkur orð að venju mátti ég hafa mig alla við að skella ekki uppúr. Ég minntist ársins 1997, Florida, ég að versla í matinn í Publix, komin á kassa til að borga, verið að raða í poka fyrir mig. Gamli maðurinn sem afgreiddi mig, einu sinni sem oftar, bað mig um að segja nafnið mitt. Nei ekki Lóa - Kjartansdóttir, já fínt þetta hlaut að vera rétt manneskja sem rétti fram Visakortið. Hann var nefnilega búinn að reikna það út að ekki nokkur annar gæti sagt eftirnafnið mitt. Skítt með að það var mynd af mér á kortinu - r...

My plans...

Á svona miða í fimmtudagsbíó í Kringlunni - 2 fyrir 1. Þokkalega sem ég var búin að plana að draga minn mann í bíó þennan fimmtudag og borga minna fyrir. Kreppan og allt það - nýta hverja krónu og vera sparsöm. Hmm já búin að bíða í viku - var upptekin síðasta fimmtudag. Í gær datt mér í hug að athuga hvort myndin væri ekki örugglega sýnd í Kringlunni. Fannst að það hlyti að vera. Niiii enginn Bond í Kringlubíói. BÚHÚ - Sendi deitinu mínu msn skilaboð - ekkert 2 fyrir 1 á Bond, hvað ættum við eiginlega að gera. Fékk svar, er ekki bara bíó samt, kíkja í lúxus-sal bara. Tók hann á orðinu og pantaði í dag miða á netinu í lúxus-salinn í Smárabíó. Ulla bara á þessa kreppu og fer niður með stæl. Enduðum klukkan átta í bíó - damn þetta er nice, betra en heima í stofu. Og þessi Bond stóð alveg fyrir sínu - ég meira að segja náði alveg að fylgja söguþræði og allt saman. Var í smá flækju með það í síðustu mynd :Þ Eitthvað var búið að ræða það að þessi mynd væri ofbeldisfyllsta Bond myndin, ehe e...

það er sannarlega vandlifað fyrir dömurnar

Fékk þetta í tölvupósti og gat ekki annað en hlegið... Það er sagt að maður eigi að borða eitt epli daglega útaf járninu og einn banana til að fá kalíum Líka eina appelsínu, útaf c-vítamíninu og einn bolla af grænu te án sykurs, til að forðast sykursýki. Svo má ekki gleyma lýsinu sem er náttúrulega allra meina bót. Drekka tvo lítra af vatni alla daga (Já, og síðan að pissa því, sem tekur tvöfaldan tímann sem það tók að drekka það) Á hverjum degi borða jógúrt og eitt skot af LGG út af gerlunum sem enginn skilur hvað gera, en ef þú færð ekki eina og hálfa milljón á dag mun það hafa skelfilegar heilsufarslegar afleiðingar. Daglega taka inn eina aspirín til að koma í veg fyrir hjartaáfall, og drekka eitt rauðvínsglas í sama tilgangi. Og annað hvítt fyrir taugakerfið. Og einn bjór, sem ég man ekki hvaða gagn á að gera. Ef þú færð þér þetta allt í einu, skaltu gæta þess að eiga einn Red Bull ísskápnum til að drekka daginn eftir, nema náttúrulega ef þú ert þá búinn að fá heilablóðfa...

Hver ræður mestu?

Dóttir mín fylgist með fréttum eins og aðrir - þ.e. hún kemst ekki hjá því. Í gær var mikið rætt um Davíð Oddson og ræðu hans í gærmorgun. Fréttirnar fullar af upplýsingum um gagnrýni á ræðuna og ræðuna sjálfa. KBB spurði í miðjum látunum - hvað er Davíð Oddsson? LBK - hann er seðlabankastjóri KBB - nú ekki forseti? (hún er aðeins búin að vera að hringla með þetta undanfarið) LBK - nei hann er ekki forseti KBB - var hann ekki forseti einhverntímann? LBK - nei hann var forsætisráðherra KBB - nú bara það? (henni finnst endilega að forsetinn sé valdamestur, oft búin að reyna að leiðrétta hana) BH - nei hann var forsætisráðherra, svona eins og þú ætlar að verða þegar þú verður stór :o) Hún hefur nefnilega oft gefið í skyn að þegar hún verður stór, þá ætlar hún að ráða öllu - ná sér í starf þar sem hún ræður. Var ekki há í loftinu þegar það kom fyrst í ljós. Hún hefur alltaf fulla trú á að hún geti það sem hún ætlar, sem er góður kostur. Vona samt að hún leiðist aldrei út í stjórnmál, það e...

Bizarre

Las frétt í mogganum í morgun um föður sem segist sannfærður um að tölvuleikir geti verið skaðlegir - haft skaðleg áhrif. Þessu komst umræddur faðir að þegar hann þurfti að fara með unglingsdrenginn sinn á sjúkrahús eftir að hann hné niður. Drengurinn hafði þá spilað í heilan sólarhring með vinum sínum tveimur einhvern netleik. Varla étið, drukkið né sofið. Ég er ekki viss um að tölvuleiknum sé um að kenna. Kannski foreldrar drengjanna hefðu átt að fylgjast pínu oggu ponsu betur með? Ég tel að tölvuleikir geti verið skaðlegir en það er á ábyrgð foreldra að kenna börnum sínum að umgangast þá. Láta ekki ung börn spila ofbeldisleiki, leyfa þeim ekki að hanga tímunum saman fyrir framan tölvuna o.s.frv. Er það annars ekki á ábyrgð foreldra að koma börnum sínum til manns? Alltaf jafn fyndið þegar maður heyrir fólk kenna skólum og kennurum og þjóðfélaginu um ábyrgðaleysi, ókurteisi og kjánalæti barna sinna :o) Later

Falleg fyrirheit

Fór í líkamsrækt klukkan átta í gærmorgun - svo í göngutúr í tæpan klukkutíma með Ronju á Lágafellinu. Vinna svolítið og svona bara venjulegur dagur. Takmarkið var að fara snemma að sofa. Hringdi samt í SBK og athugaði hvort við ættum að hittast og skrappa/búa til jólakort um kvöldið eða næsta kvöld. Hún ætlaði að sjá hvernig það hentaði er hún væri búin að taka stöðuna i hesthúsinu. Fengum okkur kvöldmat um sexleytið og BH fór út aftur - líkamsrækt og svo vinna, reyna að koma bilasolur.is í loftið. Þeir eru búnir að liggja sveittir yfir nýrri útgáfu. Eftir matinn slökknaði á mér - gjörsamlega búin eftir daginn. Spilar kannski smá inní að ég hef farið seint að sofa undanfarið. Sofnaði yfir fréttum og Kastljósinu - krakkarnir furðu spakir að skipta ekki yfir á Simpson´s á stöð 2. Kannski hrædd um að móðirin myndi vakna og vera ekki hress með afskiptasemina. Sjálf efast ég um að ég hefði tekið eftir því. Aumingja HMS læddist hérna inn og kallaði ljúflega - Halló - Lóa - Lóa. Fékk tilbaka...

Skvísur

Við mæðgurnar ætlum að vera flottar á því næstu helgi. Við ætlum að fljúga í snjóinn á Akureyri, gista á Hótel KEA og fara í leikhús á laugardagskvöldið. Allt í boði dótturinnar sem vann þessa ferð í vinning á síðasta jólabingói í Lágafellsskóla. Litla sem hún var spæld að jólabingó þessa árs verður á sunnudaginn og við getum ekki tekið þátt. Hún hefur sennilega ætlað að vinna aftur. Það er um að gera að drífa sig því vinningurinn fer að renna út. Við ætluðum öll fjölskyldan að skella okkur norður í apríl s.l. En það hentaði ekki vegna þess að við vorum að flytja fyrirtækið þá. Svo bara líður tíminn og maður gerir ekkert. Við ætlum að sjá Músagildruna hjá leikfélagi Akureyrar. Hlakkar ekkert smá til að pæjast þarna fyrir norðan með litlu drottningunni. Taka með sér hlýju fötin og leika sér í snjónum. Fara út að borða saman og skoða bæinn. Hmm, veit lítið um Akureyri - einhver með góðar (ódýrar) hugmyndir að skemmtun fyrir okkur mæðgurnar? O

Sunnudagsmorgun

Við mæðgin fórum til messu klukkan ellefu í morgun. Vorum mætt 10 mínútum fyrr því drengurinn hafði verið beðinn um að lesa ritningarlestur ásamt skólafélaga sínum. Þeir voru svo flottir drengirnir. Lásu flott upp, enda í fyrsta og öðru sæti í stóru upplestrarkeppninni í vor. Þeir voru kynntir í upphafi messunnar - Friðrik Sigurðsson og Kjartan Elvar Birgisson. Who the f... is Birgir??? Það var byrjað á skírn - aawww, ferlega krúttlegt. Alltaf gaman að fá að vera "með" í svona athöfnum. Í þetta sinn var bara allt í lagi að hlusta á prestinn og vera í messu. Síðast þegar ég fór með KEB var ég að deyja úr helgislepju - hún bókstaflega lak út um eyrun á mér. Þetta var léttara og skemmtilegra. Guðni Kolbeinsson kom og var með ræðu í tilefni dagsins - Dagur íslenskrar tungu. Hann var mjög skemmtilegur, bæði krakkarnir og hinir fullorðnu skildu vel hvað hann var að fara og skemmtu sér vel. Hann kom því vel til skila að unglingar væru ekki að eyðileggja íslenskuna, það væri gömul tu...

Kossasjúk

Mussisjúk Hansara varrar bleytar og blíðar Fagrari harri aldri mær bíðar Og ongantíð møtti mær tunga so mjúk Ella eri eg bara mussi sjúk Hansar varrar mær eru ein gáta Tær kyssa upp á ein heilt annan máta Og ongantíð møtti mær tunga so mjúk Ella eri eg bara mussi sjúk Hansara varrar tær gera meg villa Lokka meg nærri og kitla meg illa Nei ongantíð møtti mær tunga so mjúk Ella eri eg bara mussisjúk Man eg nú nakrantíð fara at vita Ella so má eg so barasta gita Varrar og kossar ein kensla so mjúk Og eg eri helst bara mussisjúk Finnst þetta lag með Eivöru svo frábært. Heyrði hana flytja það í annað sinn í gær hjá henni Ragnhildi. Sá það fyrst í Kastljósinu fyrir þó nokkru síðan. Vissi ekki að mússísjúk þýðir kossasjúk, fyrr en í gær. Bara eitthvað svo kósí við þetta lag! Svo er alltaf gaman að skemmta sér við að lesa færeyskuna. Later

Málsháttur

Var að taka til hérna hjá mér - villtist inn í það sem við hérna köllum græna herbergi - þar sem öllu drasli er hent inn og svo lokað. Er þar að þrífa og komast niður á skrifborðið og raða svo öll fínt inn aftur til að við getum haldið áfram að henda drasli, sem við vitum ekki hvað við eigum að gera við, þangað inn. Á skrifborðinu fann ég málshátt - "Vandfenginn er vinur í nauð" How true. Varð hugsað til ástandsins á Íslandi og hversu fáa vini við eigum í raun þegar á reynir í alþjóðasamfélaginu. Það lítur alla vega þannig út svona miðað við fréttir og sögur sem maður heyrir. IMF veitandi lán hægri vinstri til landa eins og Úkraínu þar sem mér skilst að spilling sé viðurkennt ástand. Bretar alltaf jafn Lovely þegar á reynir - skil þá reyndar svo sem - en engu að síður þá hafa þeir sýnt sitt rétta andlit, heimsveldi í dauðateygjunum að rembast við að sýna mátt sinn og megin gagnvart peðinu. Enn svekktir eftir þorskastríðin greyin - he he, gott á þá :o) Vona að það verðum við s...

Hand me downs

Heiða hringdi í mig á laugardaginn var og spurði hvort ég vildi föt af Hugrúnu fyrir KBB. Ójá takk, þvílík búbót, og sko nú er kreppa líka! Daman fékk fullan svartan poka af fötum frá frænku sinni. Og hún passar í hverja flík núna strax. Nú getur litla daman mín verið eins og penelópa prinsessa og farið í nýtt dress á hverjum degi. Og hún er ekki lítið ánægð og algjör skvísa. Það er nú ekki leiðinlegt að eiga svona flotta frænku og erfa fötin hennar. Það er sjaldan sem ég þarf að kaupa föt á stelpuna. Það hefur nú bara verið svona þegar mamman er í bænum og sér eitthvað "must have". Fór samt í smá jólaleiðangur í Kringluna í gær og fékk jólaföt á drottninguna. Það tók svo á að ég lagði mig kl. 16:30 þegar ég stóð varla í lappirnar lengur. Ég var vakin kl. 19 af hungruðu barni sem heimtaði mat. Ég legg mig ekki í korter - ekkert power nap hjá þessari konu - það er bara sofið almennilega eða sleppt því. Jólapilsið var ekki alveg að gera sig - rennilásinn eitthvað ónýtur, fór og...

Hætta á toppnum

Við spilum fjögur badminton á miðvikudagseftirmiðdögum. Ég, Beta, pabbi og Valli. Það er alltaf mikið fjör hjá okkur. Jafnastir eru leikirnir er við systurnar spilum saman á móti þeim mágunum. Valli kemst ekki alltaf og þá erum við bara þrjú. Það er erfitt fyrir mig því ég er svona lélegust af þeim. Úthaldið er ekkert að sliga mig neitt - það er frekar skortur á því. Þannig að þegar maður er einn að spila allan völlinn þá verður maður fljótt þreyttur ef maður er vanur að hafa annan til að bakka sig upp. Um daginn mætti Valli ekki - og ég þurfti að spila ein á móti Betu og pabba. Ég er rosalega ánægð ef ég næ einu stigi á móti þeim - hvað þá tveimur. Það er bara spilað upp í sjö þegar við spilum þrjú. Svona til að drepa ekki þann sem spilar einn, það á þá helst við mig :o) Í fyrsta leiknum sem ég þurfti að mæta þeim feðginum ein þá tók ég mig til og VANN þau með 7 stigum gegn einu eða tveimur. Brosið náði hringinn og ég gekk út af vellinum og kallaði yfir "Ég er farin heim og hætt,...

??

Velti fyrir mér kreppunni eins og aðrir. Við hjónin ræðum málin og ég ræði málin við vini og vandamenn. Allir frekar svona dofnir eitthvað og reiðir. Ég hef viljandi ekkert verið að tjá mig um þau mál hér. Velti því fyrir mér hvað á maður að skrifa og segja um þetta ástand allt saman - verð að viðurkenn að mér fallast bara hendur. Hef grun um að fleiri en ég séu með hnút í maganum yfir þessu öllu saman. Áfram heldur maður samt, vonar það besta en býst við hinu versta! Later

Gott að vera drengur

Ég hef oft haft orð á því (jafnvel hvæst það milli samanbitinna tanna) hversu þreytt ég er á því að hirða upp eftir grísina hérna. Þrífa upp eftir þau skítinn og elda mat og ganga frá. Þetta var ekki það sem ég sá fyrir mér sem lítil stelpa - að ég myndi leggja þetta fyrir mig. Svo þróaðist það þannig að ég hef verið meira og minna heima til staðar fyrir börnin mín og getað sinnt heimilinu á meðan BH hefur unnið. Þetta var ekki planið og ekki rætt sérstaklega. Þegar við fluttum út þá var ég heima með KEB og fannst það bara fínt. Við Valgerður höfðum alltaf nóg að gera bæði saman og í sitthvoru lagi. Þegar við komum heim til Íslands aftur ákvað ég að fara í háskóla, gerði það en kláraði ekkert. Þetta var spurning um geðheilsu fjölskyldumeðlima og hvort það stæði hreinlega eftir heil fjölskylda ef ég héldi áfram. Ákvað því að vera heima og sinna krílunum sem nú voru orðin tvö. Hef í gegnum tíðina haft nóg að gera, þrátt fyrir að vera "bara" heima eins og það er orðað - eða heim...

Veðskuldabréf

Vorum að borga upp fyrstu lánin af húsinu, veðskuldabréfin voru að detta inn um lúguna. Lánin voru tekin 1982 og 1983, fyrra lánið var 138.000 krónur og seinna 67.000 krónur. Það tók rúm tuttugu ár að borga þetta. Lánin voru veitt af Byggingasjóði ríkisins. Mjög fljótlega verðum við búin að borga tvö lán í viðbót upp. Því miður eru þetta ekki lánin með háu afborganirnar. En þetta telur allt saman! Ætli ég sé að drepast í bakinu vegna skuldabyrði?? - Skyldi þó aldrei vera! Later

Verkur í rassi

Nei kannski ekki alveg - með svona bilað tak í bakinu. Kallast þursabit ef ég hef greint þetta rétt. Sparaði mér lækni og ákvað sjálf að það væri það sem hrjáir mig núna. Er að tapa mér í bakinu vinstramegin við mjöðmina. Er samt skárri núna í morgun en í gærkvöldi er ég fór að sofa. Gargaði af sársauka við að hreyfa mig og að reyna að komast framúr var óbærilegt. Það er löngu opinbert að ég er eins og gömul kona í skrokknum, þetta er bara enn ein staðfestingin. Bíttu bara á jaxlinn og hífðu þig upp - uppörvandi hvatning frá eiginmanninum í gærkvöldi. Svona á milli þess sem brandararnir flugu og ég baðst vægðar því það var svo sárt að hlæja. Kom úr hörðustu átt að mér fannst því ég er, held ég, ekki þekkt fyrir annað en að bíta á jaxlinn. Helgin var viðburðarík - við erum aldrei heima, frekar erfitt að fara svona hverja helgi. Skildi BH eftir heima svo hann gæti unnið og klárað gerðið fyrir Ronju hérna úti. Hann bjargaði gerðinu, þ.e. nú er ekkert eftir nema hurðin. Það þarf ekki að gr...

Mömmukossar.

Gæti aldrei orðið hjúkrunarkona (hjúkrunarfræðingur). Hef vitað það alla tíð en fékk það endanlega staðfest þegar ég lá sjálf á sjúkrahúsi í fyrsta sinn. Ég hef þetta ekki í mér. Þegar börnin mín meiða sig fá þau vorkun og mjálm en ég er fljót að segja þeim að harka af sér og hætta vælinu samt. Þau ná ekkert að mjólka þetta meira en efni standa til. Ég er svo léleg að mömmukossarnir mínir (sem öllu redda hjá öllum mömmum) virkuðu ekki á KEB þegar hann var stubbur. Ég kyssti á bágtið en fingurinn, hnéð, handleggurinn = meiddið, kom alltaf aftur. Því hann fann ennþá til - hann var ekki nógu vitlaus til að láta einn auman koss duga ef sársaukinn var enn til staðar. Þegar KEB meiddi sig á miðvikudaginn var tilefni til mjálms og æ aumingja þú söngsins. Er við sátum í bílnum á leið heim úr Álfheimunum eftir að hafa sótt hann, og eftir að hafa mjálmað heilósköp með honum sagði ég. "En krakkar ef þið viljið virkilega virkilega fá samúð og mjálm og æ aumingja þú og elskan mín, ástin mín...

Kleppur

Eftir daginn í gær ætti ég að vera komin í kjörþyngd - bömmer að það gerist ekki á einum degi. Fór í leikfimi klukkan átta í gærmorgun, gott að taka daginn snemma. BH sem ætlaði nú að koma með mér alltaf steinlá og svaf á meðan - eins og áður. Ætlaði svo á Þjóðskjalasafnið og eyða deginum þar og dreif mig því um klukkan tíu með Ronju í göngutúr í klukkutíma. Fór ekki á safnið, ákvað að snúast aðeins í bænum heldur. Vinna, fara í banka, ná mér í ljósmyndapappír og á bókhlöðuna að ljósrita grein. Kom þá heim í smá stund að sinna börnum og búi. Fékk mér göngutúr til að ná í AFD til dagmömmunnar og svo göngutúr tilbaka. Dagmóðir drengsins spurði mig hvort ég væri Kjartans? Ehe, jaaá! Og Brynju? Jaaá - hvernig þekkir þú þau? Hún var víst með þeim í JC á sínum tíma. Tjáði mér svo að ég væri NÁKVÆMLEGA eins og móðir mín. Hmm já ég hef dálítið fengið að heyra það í gegnum tíðina :o) Um klukkan fimm drifum við KEB okkur í bæinn. Ég á leið í badminton og hann í fimleika. Við vorum öll fjögur mæt...

Myndarlegt fólk

Jæja Helena mín - loksins er fallega fjölskyldan þín komin á flikcr síðuna mína. Var að hrúga inn myndum. Myndir frá því í sumar og fram í október. Á eftir að skrifa við þetta allt saman. Var heilmikil vinna bara að velja myndir þarna inn, tekur svo enn meiri tíma að skrifa við þetta allt saman. Enjoy

ROOOOONJAAAAA

Vorum vinkonurnar í Lágafellinu í göngutúr. Ákvað að taka ekki með mér lifrapylsu núna, frekar þurrt kjúklingahundanammi. Smá mistök, geri það ekki aftur. Ekki næstum því eins spennandi og "vel" lyktandi lifrapylsan. Þetta gekk nú allt vel og hundurinn kom með mér heim. Í fyrradag er við fórum hitti hún tvo krumma. Hún óð að þeim og vildi svo gjarnan ná í þá. Þeim fannst nú ekki leiðinlegt að hrekkja hana. Svifu rétt fyrir ofan hana og settust rétt hjá henni til skiptis, flugu svo upp er hún stökk að þeim. Verst að hafa ekki videómyndavél. Hún kom er ég kallaði á hana - enda með lifrapylsuna í vasanum. Núna hins vegar hitti hún aftur krumma - bara einn í þetta sinn. Ótrúlega spennandi að eltast við hann. Og það sem hann gat dregið hana um holt og hæðir. Veit ekki hvort þeirra hafði meira gaman að, grunar samt að krummi hafi hlegið meira að þessu hvolpaskotti sem átti ekki séns. Ég stóð þarna á einum toppnum og kallaði á hana til mín er þau voru á sömu hæð, ekki séns - leit ek...

Fyndið

Heyrði þennan brandara á Bylgjunni í morgun - ég veltist um af hlátri og læt hann því flakka hérna. Vitið þið af hverju konur eru alltaf í háhæluðum skóm og mála sig daglega? Jú af því þær eru litlar og ljótar! :o)

Óþolinmæði

Við fjölskyldan erum ekkert svo óþolinmóð - bara svo lengi sem við fáum það sem við viljum strax. Við höfum aldrei verið mikið í því að gefa afmælis- og jólagjafir fyrirfram, það kostar fólk oftast bara auka gjafir. Við höfum þá heldur bara gefið hvert öðru það sem vantar á þeirri stundu sem hugmyndin kemur upp. Þá eru afmælis- eða jólagjöfin bara minni í það skiptið. Mér þykja börnin mín líka dugleg að bíða eftir jólum og afmælum sínum þegar þau langar í eitthvað. Þó þau eigi pening þá rjúka þau ekki út og kaupa bókina, geisladiskinn, DVD myndina, tölvuleikinn, PetShop dýrið o.s.frv. sem þau langar í. Þau hinkra og athuga hvort þau fái það sem þau helst langar í - á jólum eða afmæli. Já svo lengi sem ekki eru níu mánuðir í jólin eða afmælið. Við BH ákváðum á sínum tíma að vita ekki kynið á börnum okkar er ég bar þau undir belti (var reyndar aldrei með belti). Ég grínaðist með það þá að ég opnaði ekki jólapakkann minn fyrir jól! Og ef það er eitthvað sem ég hef lært á þessum fullt af á...

Ferðalangar

Fórum á föstudaginn í sumarbústað rétt hjá Flúðum, með tengdó, bræðrum hans BH og fjölskyldum. 14 manns takk fyrir það og allir sluppu heilir heim - enginn á leið á Klepp og allir enn vinir. Geri aðrir betur. Þetta hljómar kannski eins og ég hafi átt von á öðru en það er nú ekki svo. Okkur kemur öllum ljómandi vel saman - drulluléleg í að lenda saman eða misskilja hvert annað þannig að einhver verði fúll eða reiður. Er alltaf að heyra sögur um fjölskyldur sem eru stöðugt í hár saman - fólk sem talar ekki saman árum saman eða tengdamæður sem eru að gera útaf við tengdadætur, sjaldnar sem tengdafeður eru með vesen. Finnst alltaf mjög sorglegt að heyra sögur af fjölskyldum sem eru í stríði innbyrðis. Er þess vegna mjög þakklát fyrir mína fjölskyldu þar sem allir eru í sátt, alla vega eftir því sem ég best veit. Samt á ég stóra móður- og föðurfjölskyldu. Og að mér kemur mjög vel saman við tengdafjölskyldu mína, bæði móður- og föðurfjölskyldu BH. Ef ekki, þá er ég of vitlaust til að fatta a...