Á svona miða í fimmtudagsbíó í Kringlunni - 2 fyrir 1. Þokkalega sem ég var búin að plana að draga minn mann í bíó þennan fimmtudag og borga minna fyrir. Kreppan og allt það - nýta hverja krónu og vera sparsöm.
Hmm já búin að bíða í viku - var upptekin síðasta fimmtudag. Í gær datt mér í hug að athuga hvort myndin væri ekki örugglega sýnd í Kringlunni. Fannst að það hlyti að vera. Niiii enginn Bond í Kringlubíói. BÚHÚ -
Sendi deitinu mínu msn skilaboð - ekkert 2 fyrir 1 á Bond, hvað ættum við eiginlega að gera. Fékk svar, er ekki bara bíó samt, kíkja í lúxus-sal bara. Tók hann á orðinu og pantaði í dag miða á netinu í lúxus-salinn í Smárabíó. Ulla bara á þessa kreppu og fer niður með stæl. Enduðum klukkan átta í bíó - damn þetta er nice, betra en heima í stofu. Og þessi Bond stóð alveg fyrir sínu - ég meira að segja náði alveg að fylgja söguþræði og allt saman. Var í smá flækju með það í síðustu mynd :Þ
Eitthvað var búið að ræða það að þessi mynd væri ofbeldisfyllsta Bond myndin, ehe eitthvað er ég orðin sljó því mér fannst hún ekkert slæm. Síðasta mynd fannst mér eiginlega slá þessari við í ofbeldi.
Bara fyndið - settist hérna niður við tölvuna og BH hafði kveikt á sjónvarpinu. Hvað haldið þið að sé verið að sýna? Jú of course Bond - James Bond, The Moonraker. Gubb - nenni ekki Roger Moore sem James Bond, þurfti þrjá ælupoka eftir síðustu mynd. Og ég sneri baki í sjónvarpið meira og minna allan tímann, var upptekin við Scrap á borðstofuborðinu. En lokasetningin fór alveg með mig - vælulegt ohh James - og mér var allri lokið og gubbaði innyflunum!
Later

Ummæli
Annars finnst mér kominn tími á hitting bráðlega. Allt of langt síðan ég hef heyrt í þér.
kv. Sonja