Fara í aðalinnihald

það er sannarlega vandlifað fyrir dömurnar

Fékk þetta í tölvupósti og gat ekki annað en hlegið...

Það er sagt að maður eigi að borða eitt epli daglega útaf járninu og einn banana til að fá kalíum

Líka eina appelsínu, útaf c-vítamíninu og einn bolla af grænu te án sykurs, til að forðast sykursýki. Svo má ekki gleyma lýsinu sem er náttúrulega allra meina bót.

Drekka tvo lítra af vatni alla daga (Já, og síðan að pissa því, sem tekur tvöfaldan tímann sem það tók að drekka það)

Á hverjum degi borða jógúrt og eitt skot af LGG út af gerlunum sem enginn skilur hvað gera, en ef þú færð ekki eina og hálfa milljón á dag mun það hafa skelfilegar heilsufarslegar afleiðingar.

Daglega taka inn eina aspirín til að koma í veg fyrir hjartaáfall, og drekka eitt rauðvínsglas í sama tilgangi.

Og annað hvítt fyrir taugakerfið.

Og einn bjór, sem ég man ekki hvaða gagn á að gera.

Ef þú færð þér þetta allt í einu, skaltu gæta þess að eiga einn Red Bull ísskápnum til að drekka daginn eftir, nema náttúrulega ef þú ert þá búinn að fá heilablóðfall. Ef það gerist, muntu ekki taka eftir því.

Daglega borða trefjar. Mikið, mjög mikið af trefjum. Þar til þú kúkar heilli peysu. að á að borða fjórar til sex máltíðir á dag, hollar, fitulitlar máltíðir og ekki gleyma að tyggja hvern munnbita hundrað sinnum.

Með smá útreikningi er ljóst að það tekur þig um fimm klukkustundir á dag að borða.
Ó, og síðan má ekki gleyma að bursta tennurnar eftir hverja máltíð.
Á eftir jógúrtinu og trefjunum, tannbursta; á eftir eplinu, tannbursta; á eftir banananum, tannbursta...

Og á meðan þú ert á annað borð með tennur máttu ekki gleyma tannþræðinum og munnskolinu með tilheyrandi gurgli.

Best að stækka baðherbergið og setja þar inn hljómflutningstækin þín, því þar áttu eftir að dvelja drjúgan tíma: vatnsþambið, trefjarnar, tennurnar...

Síðan á að sofa í átta stundir og vinna aðrar átta plús þessar fimm sem fara í að borða. Þetta gerir tuttugu og eina klukkustund. Þá áttu þrjár stundir eftir, það er að segja ef ekkert sérstakt kemur uppá þann daginn.

Samkvæmt könnunum eyðum við þremur stundum daglega í sjónvarp...og ekki gleyma tölvunum!!! En þú hefur engan tíma í svoleiðis, því daglega áttu aðfá þér a.m.k. hálftíma göngutúr (Ég tala af reynslu: Snúðu við eftir 15 mínútur, því annars verður hálftíminn að klukkustund).

Síðan verður að huga að vinunum því þeir eru eins og blóm: það þarf að vökva þau daglega. Líka þegar þú ferð í frí. Það er að segja ef þú ferð í frí.

Síðan þarf að vera vel upplýstur. Lesa að minnsta kosti tvö dagblöð og eina grein í tímariti til að bera upplýsingarnar saman.

Ah! Síðan er það kynlífið. Kynlíf daglega og þar að auki á það að vera frumlegt og skapandi . Þetta tekur sinn tíma!!! Að maður tali nú ekki um tantra kynlíf!!!

Að öllu framansögðu vil ég minna þig á: Það á að tannbursta sig eftir hverja máltíð. Það þarf líka að skúra, þurrka af, þvo þvott, fara í sturtuog vaska upp og áttu kannski hund að auki eða hamstur? Börn?!

Nú reiknast mér til að þetta kalli á um 30 stundir á dag. Eina lausnin á þessum vanda, er að framkvæma eitthvað af þessum atriðum í einu. Til dæmis: Þú ferð í kalda sturtu með opinn munninn og drekkur þannig lítrana tvo af vatni. Þegar þú gengur út úr baðherberginu með tannburstann í munninum nýturðu um leið ásta (tantrískt) standandi með makanum þínum, sem um leið horfir á sjónvarpið og segir þér frá á meðan þú burstar tennurnar.

Var ein hendi laus? Hringdu í vinina!!! Og foreldrana!!!

Fáðu þér rauðvín (eftir spjallið við foreldrana muntu þurfa á því að halda) eplið getur makinn þinn matað þig á á meðan þú borðar bananann með jógúrtinu. Úffffff! En ef þú átt tvær mínútur eftir , sendu þetta þá á vinina (sem þú þarft að vökva eins og blóm) um leið og þú tekur inn eitt hvítlaukshylki sem er svo gott fyrir...

En nú verð ég að hætta því eftir jógúrtið, appelsínuna, bananann,bjórinn, fyrri vatnslítrann, þriðju máltíðina með trefjum, hef ég ekki hugmynd um það hvað ég er að gera og þarf nauðsynlega að komast á klósettið.

Aha, ég ætla að nýta tímann og kippa tannburstanum með mér.

Ef ég er senda þér þetta í annað sinn , er það vegna þess að þrátt
fyrir að fylgja öllum þessum ráðum er ég samt komin með alzheimer.

Vesgú

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...