Dóttir mín fylgist með fréttum eins og aðrir - þ.e. hún kemst ekki hjá því. Í gær var mikið rætt um Davíð Oddson og ræðu hans í gærmorgun. Fréttirnar fullar af upplýsingum um gagnrýni á ræðuna og ræðuna sjálfa.
KBB spurði í miðjum látunum - hvað er Davíð Oddsson?
LBK - hann er seðlabankastjóri
KBB - nú ekki forseti? (hún er aðeins búin að vera að hringla með þetta undanfarið)
LBK - nei hann er ekki forseti
KBB - var hann ekki forseti einhverntímann?
LBK - nei hann var forsætisráðherra
KBB - nú bara það? (henni finnst endilega að forsetinn sé valdamestur, oft búin að reyna að leiðrétta hana)
BH - nei hann var forsætisráðherra, svona eins og þú ætlar að verða þegar þú verður stór :o)
Hún hefur nefnilega oft gefið í skyn að þegar hún verður stór, þá ætlar hún að ráða öllu - ná sér í starf þar sem hún ræður. Var ekki há í loftinu þegar það kom fyrst í ljós. Hún hefur alltaf fulla trú á að hún geti það sem hún ætlar, sem er góður kostur.
Vona samt að hún leiðist aldrei út í stjórnmál, það er ekki vettvangur sem ég get ímyndað mér að sé spennandi. Er ekki viss um að mamma hennar hefði nógu þykkan skráp til að höndla þann pakka fyrir hennar hönd. Hún hefur svo sem líka tjáð löngun sína til að verða hárgreiðslukona, svo það er aldrei að vita hvað hún tekur sér fyrir hendur á lífsleiðinni.
Mom - (sem ræður öllu á þessu heimili)

Ummæli