Ég þarf iðulega að kíkja niður áður en ég stend upp. Þannig er að Ronja mín leggst stundum undir stólinn sem ég sit í. Oft þegar ég sit að borða og eins ef ég er að vinna hérna í stofunni. Núna t.d. er ég í smá klípu. Hún liggur þvert undir stólnum hjá mér, rassinn öðrum megin og höfuðið hinum megin. Get eiginlega ekki ýtt stólnum tilbaka og varla stigið til hliðar nema vera í basli þannig að hætta sé á að ég stigi á hana. Er þetta vandamál? Nei varla, auðvitað á maður bara að segja henni að drífa sig því ég þurfi að komast. En mér finnst bara svo kósí að hafa hana hérna hjá mér og reyni því að raska ekki ró hennar. Sem er alveg silly stupid því þegar ég er búin að standa upp og ganga í burtu þá stendur hún upp, teygir úr sér og skokkar á annað hvort bælið hérna í húsinu :o) Later