Fara í aðalinnihald

Ísland Best í heimi?

Ég hef ekki heyrt píp í fólki í tengslum við fréttir síðustu daga um illa meðferð Íslendinga á dýrum. Grísir sem eru geldir án deyfingar af fúskurum, fuglar sem troðast fáranlega margir í allt of litlum búrum, beljur sem aldrei fá að fara út o.s.frv. EKKI EITT PÍP :o/

Fékk svo illt í hjartað að heyra af þessum greyið grísum, snuff! Svo heyrir maður reglulega af hrossum sem eru að svelta út í haga því eigendurnir kunna ekki að eiga dýr. Hunda sem eiga verulega bágt þvi eigendurnir eru óhæfir. Kettir sem settir eru út á guð og gaddinn þegar þeir hætta að vera krúttilegir litlir kettlingar o.s.frv.

En það má treysta því að Íslendingar, sumir hverjir alla vega, láta vel og hátt í sér heyra þegar á að tengja málefni við trúarbrögð. Hvað fóru margir upp á afturfæturna þegar fréttist að á litla kristna Íslandi ætti að fara að slátra sauðfé að hætti múslima? Þá varð bara allt brjálað... helv... islam bara að tröllríða öllu. Hvað kemur þeim við hvernig við víkingarnir gerum þetta. Þá skipti nú litlu máli að verið var að stækka markaðinn þannig að fleiri vildu kaupa afurðir okkar. Eða að fénu var slátrað á alveg jafn mannúðlegan hátt og áður, bara öðruvísi.

Er verulega hugsi yfir þröngsýni okkar og greinilega villimennsku. Í einfeldni minni hélt ég í alvöru að svona pyntingar á dýrum viðgengust ekki á náttúrlegu hreinu æðislegu eyjunni okkar :o/ Jájá ég er ekki svo barnaleg að ég vissi ekki af fuglabúrunum og beljunum sem aldrei fara út... en grísirnir, guð minn góður þvílíkur viðbjóður. Hvernig fæst fólk í að framkvæma svona ?

Snuff :o/

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...