Fara í aðalinnihald

TV

Svona í ALVÖRU talað... klukkan að verða 22 á mánudagskvöldi er þá einhver kona svo desperate að komast í eldhúsið aftur að hún horfir á Önnumat núna? Er í alvöru ekki hægt að finna einhverja afþreyingu fyrir fólk?

Maður eldar á hverjum degi (og finnst það mátulega hundleiðinlegt) og þarf að kaupa í matinn reglulega (eins sjaldan og ég kemst upp með). Það er ekki séns í helv... að ég nenni að horfa á fólk elda í sjónvarpinu. Er bara hundpirruð á þessu fáránlega sjónvarpsefni á miðju kvöldi. Ég bara neita að trúa að nokkur sé svo áhugasamur um matargerð að það þurfi að smella þessu á skjáinn á kvöldin. Mun skárra að hafa þetta fyrr á dagskrá, um kl. 18 eða eitthvað. Legg reyndar til að þetta sé sýnt klukkan þrjú á næturna, það myndi henta mér fínt skoh... já eða bara sleppa þessu!

Ég ætla hins vegar ekki að pirra mig of mikið á þessu, geri bara eins og oft áður og kíki á eitthvað sem ég hef haft vit á að taka upp þegar ég hef ekki haft tíma til að horfa þegar eitthvað sem vekur minn áhuga er í sjónvarpinu. Ég bara er endalaust hissa á að fólk nenni að horfa á annað fólk elda... svipað dumb og að glápa á golf... helloo!

Later

Ummæli

Nafnlaus sagði…
neineinei, þetta er nú ekki eins og golf :) ég hef alveg dottið í að horfa á kelluna og finnst það áhugavert! :) en finnst nú samt ekkert of gaman að finna alltaf eitthvað nýtt að elda á hverjum degi en andinn dettur yfir mig svona einstöku sinnum
HMS
Lóa Björk sagði…
Æ þetta eilfífðarverkefni er ekki að heilla mig - en auðvitað er gaman að spreyta sig einstaka sinnum á einhverju nýju og spennandi sem bragðast svo ljómandi vel.

En ég bakka ekki með það að ég borða til að lifa - ég lifi ekki fyrir að borða :o)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...