Hringt áðan og sagt að KEB þyrfti ekki að bera út í fyrramálið. Smá blendnar tilfinningar. Fínt að hann fái pening og hafi vinnu. En erfitt að vakna snemma þegar íþróttir eru langt fram á kvöld.
Hann sagði upp í síðasta mánuði og uppsagnarfresturinn var til 19. janúar. En það sótti áhugasamur blaðberi um götuna hans og því getur hann hætt fyrr.
Hann er búinn að bera út síðan í lok janúar 2008 og hefði haldið áfram ef íþróttirnar væru ekki til kl. 20 og 21 á kvöldin - hann kominn þá heim kl. 21 og 22. Var ekki að ganga. Hann varð stundum örþreyttur þrátt fyrir aðstoð frá mömmunni sinni ákveðna daga. Aldreifing sem nýlega er komin bæði fimmtudaga og föstudaga var ekki að hjálpa heldur. Við BH vorum að taka það stundum kvöldið áður svo hann ætti léttari morgna.
Við fengum hrikalega fyndna kvörtun um daginn. Ég lá veik þetta miðvikudagskvöld og KEB bar því út blaðið Finnur sjálfur. Daginn eftir hringdi starfsmaður moggans frekar svona hmm já kvörtun sko, een!
Kvörtunin hljóðaði upp á það að blaðberi hefði verið um kl. 23:30 í Arnartanga að bera út. Fannst það of seint. Mogginn hins vegar segir að það sé í lagi, það má bera þessi blöð út kvöldið áður. En það toppaði alveg þessa kvörtun, frá manni sem ekki vildi láta getið númer hvað hann býr (tel mig samt vita það), að blaðberi var með hundinn sinn með sér. Jú KEB tók Úlf með sér í göngutúr um Arnartangan þetta kvöld. það heyrist ekki múkk í honum og hann er alsæll að mega skoppa með. En sko fólkið sem býr þarna er með hunda sem go KREISÍ þegar gengið er framhjá húsinu. þetta eru gömlu viðlagahúsin, semsagt húsalengja - raðhús kannski fimm saman og í þremur þeirra, hliðviðhlið, hundar sem kunna ekki að þegja. Semsagt hundarnir þeirra eru bilaðir og óuppaldir og þá er ómögulegt að blaðberi sé með sinn hund með sér og viðkomandi þurfti að viðurkenna að ekkert ónæði væri af þeim hundi, hvorki hávaði né annað. Bara það að hann var með í för gerði hina kolklikkaða og það bergmálaði í hverfinu geltið í þeim næsta korterið!
Neðst hafði starfsmaðurinn sem tók við kvörtuninni skrifað - kannski fólk ætti að ala hundana sína upp?? Nákvæmlega það sem ég sagði áður en ég heyrði hvað hann hafði skrifað.
Við að sjálfsögðu tókum tillit til þessa næst þegar við bárum út að kvöldi til - þrátt fyrir að BH vildi hafa báða hundana með, því við vorum tvö. En ég get sagt ykkur að í þessu húsi voru engu minni læti þó ég væri ekki með hundinn með mér næsta kvöld. Og alla morgna gelta þessir hundar á mann í hvert einasta sinn.
Enda vorum við sammála um að svona kvartanir eigi nú varla rétt á sér - en hvað getur maður sagt?? Ekki vilja fyrirtæki missa viðskiptavini, þrátt fyrir að þeir séu sumir dáldið tæpir. Peningarnir þeirra eru víst alveg jafnmikils virði og okkar hinna. Geri þá hér með ráð fyrir að ég sé ekki mjög tæp sjálf ;o)
Jú svo sagði hann líka að hann vildi þá heldur sleppa því að fá blaðið heldur en að lenda í þessum hávaða á kvöldin. Rólegur félagi, kvikindið er byrjað að gelta þegar ég er í næsta húsi. Svo það skiptir engu máli hvort ég fari upp að hurð hjá þeim eða ekki - hundurinn geltir á meðan ég set í lúgurnar sitthvoru megin við þetta heimili!
Anyways - ef ég vil fá Morgunblaðið heim á morgnana núna þá verð ég að gerast áskrifandi...
Later

Ummæli