Fara í aðalinnihald

Íslensk tunga

Í tilefni af degi íslenskrar tungu vil ég birta hérna ritgerð sem ég fékk senda í tölvupósti.

Ritgerð um stöðu kvenna fyrir hundrað árum

Fyrir hundrað árum var lukkan ekki neinn dans á rósum og þegar konur söfnuðust til ára sinna voru þær frá upphafi út úr sér gengnar. Þá var líferni fólks ekki eins vel á sig komið og núna því að heilsan var ekki með besta móti, af því að þá voru engin meðul til nema svona grasmeti og lýsi - ógeðslega vont.

Í þá daga voru konur alls ekki ýkja fallegar en það mátti venjast þeim af því að þær voru alltaf svo góðar í skapsburðum. Þessar gömlu konur, sem voru náttúrlega ungar þá, langt fyrir aldur fram, voru með slæður yfir hárið en nú eru þær utan um hálsinn.

Flestar konur áttu bara eitt einasta lamb í eigu sinni og það gefur nú nærri að líta að eitt lamb hefur ekki mikinn arð í för með sér enda hafði klæðaburðurinn ekki upp á marga fiska að bjóða.

Konurnar voru alveg brúnar í framan en samt voru þær ekki sólbrúnar frá Spáni heldur bara svona ógeðslega ýkt drullugar eftir reykinn í eldhúsinu og kúaskítinn í kindakofunum. Útlit þeirra stakk mikið í stúf til þess að þær hefðu gert margt um æfina og það má ekki orða bindast um það að þær voru nauðsynleg vinnuöfl á hverju heimili og rosalegir vinnuhjarkar og þess vegna voru hversdagdagarnir meiriháttar líkir frá degi til dags hjá þeim. Um síðustu aldamót voru konur mikið notaðar bæði utan bæjar sem innan bæjar og grunar mér að kvenmaðurinn hafi verið jafn mikið notaður og karlmaðurinn, nema síður sé. Þær unnu svo sannarlega fyrir hverjum túnskildingi.

Í þá daga réðu karlarnir öllu steini léttara en konurnar bjuggu við kröpp kjör og urðu að gera allt sem mennirnir sögðu þeim, ná í vatn, því í þá daga kom vatnið ekki úr krönunum heldur ofan úr fjalli og fólk þurfti að klöngrast yfir holt og fyrnindi til að sækja hlutina og konurnar voru í eilífum vatnsútburði því á þessum tíma voru kranar ekki notaðir í sveitinni og ekki einu sinni klósett og svo þurftu þær líka að elda á glóðum með pottinn hangandi í mjóu bandi, klæða karlana úr táfýlusokkunum og skrúbba á þeim bakið með trjágrein ef þeim datt í hug að þvo sér fyrir jólin.

Og þær eignuðust svo mörg börn þessar konur að guð hefur ábyggilega snúið sér við í gröfinni því það leið svo ótrúlega stutt á milli vegna þess að húsbóndarnir létu þær ekki bara vinna almennileg heimilisstörf heldur þurftu þær líka að vera rekkjunaut fyrir þá þegar þeim langaði að gera það, meira að segja úti á túni og uppi í heiði og í fjósinu voru þær í jötu lagðar lágt næstum eins og í jólasálminum og svo urðu þær náttúrlega vanhafandi þessar konur og það vita nú allir hvernig það endar þegar maður verður vanhafandi. Það væri sannarlega betra fyrir konurnar að lifa á okkar tímum því nú hefur allt batnað til betri vegar og svo fæst miklu meira í búðunum. Kannski gætu þær keypt sér hlutabréf.

Mér finnst líklegt að konur hafi verið lamdar á þessum árum að minnsta kosti í þokkabót við ýmislegt. Meðan húsfreyjurnar voru ungar en þær urðu svo auðvitað gamlar á öllum aldri með tímanum, voru karlarnir svo sem nógu glettilegir við þær, og þó að hjón væru ekkert ofboðslega rík gátu þau haft nóg sér til munns að bera og þess vegna var stundum brosað í landsins önn. Varla hafa konur haft nein áhugamál með svona endalausri vinnu, en kannski hefur þeim fundist gaman að prjóna, en ég get nú ekki ímyndað mér að það geti verið skemmtilegt til lengdar að prjóna þótt þær hafi kannski heklað líka og spilað og brodderað og lesið eitthvað og spáð í bolla. Konur um aldamótin 1900 voru ekki kvenréttingakonur en þeim þótti gaman að fara á hestbak og það má með sanni segja að hestar hafi verið þeirra ær og kýr.

Þar hafið þið það - ritgerði í tilefni dagsins og kannski líka í tilefni allrar umræðu um kvenréttindi og kvennafrídaginn undanfarnar vikur :o)

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...