Fara í aðalinnihald

Jól í sveitinni

Börnin mín gerðust þrælar heimilisins enn einu sinni þegar frí er gefið í skólanum. Skipulagsdagur kennara í Lágafellsskóla og jólaþrif í Leirutanganum. Munar ekkert smá um þessa duglegu krakka :o)

Erum vel á veg komin og ætlum að setja jólaljós í gluggana á eftir - hlakka jafnmikið til og krakkarnir... eða KBB alla vega. KEB minntist á það að það væri alveg mánuður til jóla sko. Það verður skítugt hérna aftur fyrir þann tíma. Skarpur strákur sem ég á :o)

Hér fyrir neðan er jólalagið sem mér finnst alltaf jafn fyndið og hlusta á. Þetta er svona Redneck Christmas. Keypti þetta er við vorum í ðe jú ess of ei þarna um árið og héldum jólin í tuttugu og fimm gráðunum - í flíspeysum að sjálfsögðu á þeim árstíma. Það var orðið pínu tjillí ;o)

Well anyways hér er textinn:

Grandma got run over by a reindeer
Walking home from our house Christmas Eve.
You can say there's no such thing as Santa,
But as for me an' Grandpa, we believe.

She'd been drinking too much eggnog,
And we begged her not to go.
But she forgot her medication,
And she staggered out the door into the snow.

When we found her Christmas morning,
At the scene of the attack
She had hoof prints on her forehead,
And incriminating Claus marks on her back.

Now we're all so proud of Grandpa,
He's been taking this so well.
See him in there watching football,
Drinking beer and playing cards with cousin Mel.

It's not Christmas without Grandma,
All the family's dressed in black.
And we just can't help but wonder
Should we open up her gifts or send them back?
(SEND THEM BACK!!! )

Now the goose is on the table
And the pudding made of fig (ahhhhh!)
And the blue and silver candles,
That would just have matched the hair in Grandma's wig.

I've warned all my friends and neighbours,
Better watch out for yourselves.
They should never give a license,
To a man who drives a sleigh and plays with elves.

Fær mig alla vega til að glotta :o)

Nú á ég bara eftir að horfa á "Love Actually" hérna einu sinni fyrir jólin og þá er ég góð. Spurning um að plata heittelskaðan eiginmanninn og barnsföður að græja myndvarpa hérna og blasta henni hérna á tjaldið. Það getur ekki klikkað.

Svo gætum við, til að hann verði ánægður líka, blastað Griswold Christmas Vacation. Það sem hann og litlu dýrin geta hlegið endalaust að þeirri vitleysu. Og það er náttúrulega ekki annað hægt... bara að hugsa um þegar sprett er af trénu í stofunni hjá þeim er óborganlegt og þessi virði að horfa á myndina aftur og aftur.

Svo mæli ég náttúrlega með að finna Jeff Dunham á youtube.com og glotta yfir jóla og áramótabröndurum hans og hans fylgifiska :o)

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...