Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá mars, 2008

Flutningur

Þegar þessi törn verður búin, búið að skila Krókhálsi af sér og vinnufært orðið á Barðastöðum, þá leggjast tvær fjölskyldur í hýði. Ekki er víst hvenær þær vakna aftur, það verður bara þegar svona mesta þreytan er farin úr kroppum fólksins og fjölskyldufeðurnir búnir að ná sér andlega eftir mikla vinnu, stress og svefnleysi. Fluttum í gærkvöldi og í nótt heilmikið af kössum og dóti. Seinnipartinn verður farið í að taka stóru hlutina, þeir sem vilja tilbreytingu í sinni líkamsrækt eru velkomnir. Þetta verður blanda af pallatíma (fullt af stigum) og Body pump tíma (mikill burður). Gerist ekki betra. Ég held ég hafi sagt það alla vega 20 sinnum í gær og því við hæfi að setja það á prent hér núna, mikið svakalega er ég fegin að við erum að flytja á fyrstu hæð núna - engir stigar þar. Fæturnir á mér eru mátulega stirðir, það hjálpaði ekki að fá fjögurra tíma svefn og byrja að bera út kl. 6 í morgun. Í gær komumst við að því hve gott er að eiga stóran strák (vissum það fyrir) og góða frændur...

Maður réttir litla fingur...

Þetta byrjaði ósköp saklaust, einn blýantur og krossgátublað. KBB fékk leyfi til að fara inn í tölvuherbergi til að sitja við skrifborðið. Hún fór inn til að ráða krossgátur í blaði sem ég keypti á bókamarkaðnum fyrir þau systkinin. Hún tók með sér bleika geislaspilarann sem hún fékk í afmælisgjöf er hún varð átta ára. Ein best heppnaða afmælisgjöf í langan tíma. Þetta var um síðustu helgi. Það er skemmst frá því að segja að við BH höfum alveg misst yfirráð yfir þessu herbergi. Litla manneskjan er búin að fylla allt þarna inni af PetShop dýrum og húsum, geislaspilarinn er negldur í gluggann og honum verður ekki haggað. Svo lokar hún alltaf að sér og blastar lögin úr Jesus Christ Superstar svo hún heyrir helst ekki þegar við köllum á hana. Ekki nóg með það heldur er vinkonum hennar boðið þarna inn líka, og að sjálfsögðu er lokað. Svo trítla þær á milli herbergja í alls konar leikjum. Ég sagði BH frá þessu um miðja vikuna, gerði honum ljóst að hann skyldi ekki reyna að koma sér fyrir nei...

Algjör mygla

Sáuð þið fréttir um fjölskylduna sem missti aleiguna vegna myglusvepps? Ég fylgdist með þeim fréttum og fékk svona sting í magann fyrir þeirra hönd. Það er ferlegt að telja sig vel tryggðan og vera svo illa svikinn þegar á reynir. Mér skilst að þegar húsið var byggt þá hafi ekki verið gengið rétt frá kjallaranum og því fór sem fór. Held að ég hafi tekið rétt eftir. Og nú er það mál fyrnt því húsið er/var 20 ára gamalt. Skemmtilegt að lenda í svona vitleysu Í stuttu máli var húsið rifið og allt innbú keyrt á haugana. Eftir stendur fólkið á brókinni nánast. Rakst á blogg þar sem sagt er frá söfnun til handa þessari fjölskyldu. Set hérna inn númerið á reikningnum sem fólk getur lagt inná ef það vill leggja þeim lið. Ef ég set reikningsnúmer og kennitölu á mitt blogg þá berst það fljótt um landið. Ef ÞÚ gerir slíkt hið sama þá margfaldast hraðinn. AF STAÐ NÚ, allt er hægt ef við smáfuglarnir stöndum saman. Reikningsnúmer 1102-15-9217, kt. 241064-5149. Margt smátt gerir eitt stórt

Hver ekur eins og ljón...

Myndi ekki nenna að vera bílstjóri. Í dag var umferðardagurinn mikli hjá mér. Og ég sem var að segja við BH í gær að bensínverðið væri það hátt að maður þyrfti að spá aðeins í það hvort maður þurfi að fara eða geti sameinað ferðir. Byrjaði klukkan tæplega sex í morgun héðan úr Leirutanganum og svona hljómar þetta - Barrholt - Leirutangi - Krókháls - Barðastaðir - Krókháls - Barðastaðir - Leirutangi - Hestháls - Leirutangi - Súðarvogur - Barðastaðir - Háskólinn - íþr.húsið Varmá - Leirutangi - Klapparhlíð - Laugardalur - Klapparhlíð - Laugardalur - Leirutangi og ég vona að ég sé þá hætt í dag. Spurning um að halda sig bara heima á morgun og læra. Strákarnir voru í alla nótt að undirbúa flutning á tölvum frá Krókhálsi að Barðastöðum. Fluttu þær svo í morgun og þetta reddaðist allt á endanum. Leit ekki vel út í fyrstu en ekkert meiriháttar klúður fór í gang sem betur fer. BH og DH hafa ekkert sofið í rúma 36 klukkutíma og er ég óþreytandi að fræða þá um mikilvægi svefns. Var nefnilega að ...

Sjaldan fellur eplið...

Fórum til Lóu ömmu í gær, hittum þau afa á Sóltúni. Er við höfðum setið þar smá stund þá fór amma að gramsa í töskunni sinni og bauð krökkunum rauðar töggur. KEB afþakkaði því hann má ekki fá karamellur því hann er með teina. Þá var gramsað aðeins meira og honum boðinn brjóstsykur sem hann þáði, þarf ekki að bryðja hann. Enn og aftur laumaðist hún í töskuna góðu og náði að lokum í smá súkkulaðibrot af páskaeggi og stakk upp í afa. Þá gafst sonur minn upp og spurði í forundran "Hva ertu með sjoppu þarna ofaní?" Þetta var svona dæmigerð athugasemd sem pabbi hans hefði komið með. Later

Blaður

Páskarnir voru með heldur óvenjulegu sniði á þessu heimili. Ég sat og færði bókhald og BH var á Barðastöðum að vinna. Þeir kláruðu að setja upp loftið og nú er komið parket á mestan hluta rýmisins. Þetta er allt að mjakast í rétta átt en 1. apríl verður kominn áður en við vitum af. Krakkarnir fóru í Skorradalinn og við sóttum þau á laugardagskvöldið. Svandís kom með okkur í sveitina og var jafnspæld og krakkarnir þegar hún frétti að við ætluðum ekki að gista. Fengum gott að borða og sátum fram eftir kvöldi en skelltum okkur í bæinn um ellefuleytið. Páskadagur var tekinn snemma, matur klukkan 14 hjá Lilju. Þar var nóg af fólki og mikið fjör að venju. Ingibjörg var búin að prjóna svo fallegan skokk sem ekki var búið að ráðstafa. Hann smellpassaði á Karlottu svo hún ætlar að fjárfesta í honum. Kvöldinu var svo eytt á Barðastöðum í parketlögn. KEB fór með pabba sínum að hjálpa, ég fór svo seinna um kvöldið og skildi KBB eina eftir heima. Eftir að hafa skutlað KEB heim og smurt ofan í dreng...

Þjónustulund og viðskiptavinir

Þegar við BH tókum ákvörðun um (ég tók ákvörðun um) að versla innréttingar af SBS innréttingum (frændur mínir) því ég vildi hafa þetta eftir mínu höfði en ekki eftir því hvað væri til þá stundina hjá innréttingafyrirtækjum sem selja bara staðlaða pakka, þá fengum við (ég) mikið að heyra að það væri nú rétt að shop around og skoða hvað það væri MIKLU ódýrara að kaupa hjá hinum. Og það var allt svo einfalt og þægilegt og frábært og meiriháttar. Í stuttu máli þótti ég ekki mjög gáfaður neytandi. Ok svo ég sjoppaði aránd pínu og gafst strax upp. Endalaus bið eftir þjónustu og enn meiri biðtími eftir teikningum og enn meiri bið eftir að draslið kæmi til landsins fældi mig frá. Ég ætlaði að gera þetta núna ekki seinna. Og ég var búin að fá að vita hvenær þeir sem ég valdi gátu gert þetta fyrir mig. Rúnar kom hérna heim og teiknaði allt upp með okkur og reyndi eins og hann gat að gera þetta eins og við vildum og kom með góðar hugmyndir sem okkur hafði ekki dottið í hug. Í stuttu máli þá gekk ...

Eggjaleit

Við KEB tókum daginn snemma komin út kl. 5:30, erum að byrja með nýtt hverfi í útburðinum og er það 100% meira en það sem við vorum að taka áður. Þannig að nú röltum við í einn til einn og hálfan tíma á morgnana, tekur því ekki að vakna fyrir minna. Þetta verður létt núna yfir páskana, bara laugardagseftirmiðdegi og bara mogginn. Þar sem pjakkurinn ætlar í Skorradalinn með ömmu sinni og afa í dag þá tek ég það fyrir hann, en bara litla hverfið sem við vorum með áður. Tek ekki sénsinn á að blöðin komi seint því ég ætla í kvöldmat í Skorradalinn ásamt BH á laugardaginn. Og nenni ekki að láta moggann stoppa mig í að leggja tímanlega af stað. Þau ætla sem sagt systkinin í bústað án okkar BH. BH er að vinna í nýju húsnæði Röggvar sem verður að vera tilbúið fyrir 1. apríl, sama hvað tautar og raular. Ef einhver hefur orku sem hann vantar að losna við og er sæmilega handlaginn þá hafi hinn sami bara samband og við höfum nóg fyrir viðkomandi að gera. Krakkarnir eru bæði búin að spyrja mig hvor...

Update

Fór með krakkana í verslunarleiðangur á sunndaginn var. KEB sérstaklega er farið að vanta föt, hef varla þurft að kaupa á hann föt síðan síðasta vor. Þannig að það er kominn tími á drenginn, svona áður en hann endar á brókinni blessaður. KBB býr svo vel að eiga flotta frænku sem hefur arfleitt hana að fötum sem hún er vaxin upp úr og hætt að nota. KBB verður því seint fatalaus. En þar sem átta ár eru á milli þeirra að þá langar mann stundum að kaupa á hana föt sem eru í tísku núna og notar fötin frá Hugrúnu sem alltaf ganga, bolir og gallabuxur ganga alltaf. Svo er hún dóttir mín svo nýungargjörn að hún vill helst fá nýtt dress á hverjum degi, alla vega þegar hún uppgötvar nýjan skammt af fötum sem passa á hana af þeim sem við geymum ofan í skúffu til betri tíma. Það merkilega gerðist á sunndaginn að það var ekki stoppfullt í Kringlunni og ég gat því slappað af og fengið aðstoð í verslunum líka - látið ekki líða yfir ykkur. Fórum í Hagkaup og fengum bol og buxur á drottninguna en KEB f...

Súpergoð

Fórum í gærkvöldi að sjá Jesus Christ Superstar. Ákvað að kaupa miða þegar ég sá þetta auglýst því mig langaði að taka krakkana með á þennan söngleik. Við BH sáum uppfærsluna fyrir tæpum 13 árum síðan og skemmtum okkur ágætlega. KEB skemmti sér rosa vel þá - nei það er rétt hann er ekki orðinn 13 ára enda var hann ekki fæddur er við sátum þarna í látunum síðast. Ég var hins vegar barnshafandi og krakkinn sló taktinn með trommunum allann tímann á sýningunni. Hissa bara að maginn hafi ekki sprungið. Sama sumar sáum við Rocky Horror Picture Show og hann var í stuði þá líka, enginn friður fyrir sparkandi barni. Bara fyndið. Kom líka í ljós er hann varð eldri að drengurinn er taktviss og líkar best við tónlist með miklu beatsound - ef þið skiljið hvað ég á við. Sýningin 1995 var í raun barnvænni en í þetta sinnið, þar var meiri söguþráður og talað mál fékk að njóta sín líka. Sviðsmyndin og umgjörðin þá var öll í anda þess tíma sem fjallað er um. 2008 - Hljómsveitin var á fremsta bekk, einn ...

Hjúkksjúkk

Flutti framsögu í dag um Aðbúnað barna og foreldra þeirra á sjúkrahúsum, þ.e. breyting á viðhorfi í heilbrigðiskerfinu gagnvart þessum skjólstæðingum hjúkrunarfólks. Trúið mér töluverð breyting hefur orðið. Mynduð þið trúa því að um miðja öldina og ennþá á sjöunda áratugnum fengu foreldrar að heimsækja veik börnin sín á sjúkrahús á fimmtudögum og sunnudögum í klukkutíma hvort skipti. Upphaflega var ekki gert ráð fyrir barnadeildum á sjúkrahúsum og lágu börn því á stofum með fullorðnu fólki. Það er dálítið erfitt að gera sér þetta í hugarlund, kannski sérstaklega núna þegar nýi barnaspítalinn hefur verið starfræktur í nokkur ár. Okkur finnst mjög sjálfsagt að foreldrar dvelji hjá veikum börnum sínum og víki ekki frá þeim nema ættingjar og vinir komi þá í þeirra stað á meðan þeir skreppa frá. Það var skelfilegt fyrir foreldra að mega ekki vera hjá krílunum, skilja þau skælandi eftir á sjúkrahúsi og verða að fara. Fæ alltaf sting í hjartað þegar ég hugsa til ömmu þegar hún átti Ólínu dótt...

Hmm

IV - Keisarinn Þroski, áræðni, dugnaður, sjálfstæði og ekki síður reynsla þín kemur hér fram. Stöðuhækkun sem tengist starfi eða nýtt starf kann að vera framundan hjá þér. Þú stendur frammi fyrir tækifæri sem sjaldan birtist og ættir að kanna möguleika framtíðarinnar gaumgæfilega. Ásetningur þinn og ekki síður skipulag og hagkvæmni mun leiða þig næstu misseri að settu marki. Nýttu þér lögmálið um velgengni og sjáðu hvernig innri máttur þinn og orka umhverfisins hjálpar þér. Velferð náungans kemur þér lengra en þig grunar. Hjá Fríðu er linkur inn á spamadur.is og ég dró þetta spil úr bunkanum. Fannst það pínu spaugilegt þar sem ég hef verið fáránlega löt og tuskuleg undanfarið með núll metnað. Kannski það sé að breytast til batnaðar og ég fari að skipuleggja mig almennilega og fara eftir skipulaginu líka - kannski bara.

Ótrúlegt

Ég hefði ekki trúað því - er að horfa á Ísland í dag á stöð 2. Íslenskir karlmenn eru svo óöruggir með sig að þeir kaupa græjur til að stækka á sér typpið í magni. Við BH höfum oft grínast með þetta - fáum bæði reglulega ruslpóst þar sem reynt er að vekja áhuga okkar á þessum græjum. "Make your woman scream with pleasure" - "Be a real man" o.s.frv. Við höfum nú ekki bitið á agnið ennþá og nú heyrist mér Jóna Ingibjörg vera að segja að við þurfum ekki á þessu að halda. Minnir hana helst á mjaltavél - verð að viðurkenna að ef minn karl notaði svona græju og ég vissi af því þá væri það þvílíkt turnoff. Langar frekar að minn maður sé með sjálfsöryggið í lagi heldur en uppblásið þrútið typpi. En það er nú bara ég :o) Later

Örvæntingafull húsmóðir

Ég vil bara hafa það skjalfest að þegar ég fer á geðveikrahæli með tætt hárið út í loftið og lufsurnar úr því í höndunum, blótandi eins og sjómaður, gjörsamlega farin á taugum að þá er það manninum mínum að kenna. Ég er ekki sannfærð um að hátæknisjúkrahús sé það sem þessi þjóð þarf í spítalaflóruna. Alla vega ekki ef hátæknin sem þar verður er eitthvað í líkingu við draslið sem ég má búa við. Og af hverju held ég að svo illa fari fyrir mér á endanum að ég bilist gjörsamlega, jú hér sit ég í stofunni og ætlaði í mesta sakleysi að horfa á sjónvarpið með krökkunum eftir að við værum öll búin í baði, komin í náttfötin og hafa það bara huggulegt. En það er bara of flókið. Ég dundaði í hálftíma við að fatta það að starta tölvunni (sem er upp á lofti - já þið hélduð að ég byggi á einni hæð), fjarstýringarnar voru ekki að virka svo mín tók til við að fikta sig áfram á músinni og þegar loksins sá til sólar og ég gat sett Live TV þá kom DISK ERROR og einhverjar fj... útskýringar með því. Þá gaf...

Krumpuð kerling

Sat hér í rólegheitum frammi í stofu í gærkvöldi og krakkarnir farnir í rúmið. Þegar KBB gargar allt í einu úr rúminu sínu í hinum enda hússins "Mamma ert þú ekki fædd 1700 og eitthvað?" Common, ég lít nú ekki svona illa út þrátt fyrir að vera að komast á seinni helminginn. Ég kallaði því á móti "Hvað heldur þú eiginlega að ég sé gömul þá núna?" Smá þögn og svo var kallað tilbaka, "æ ég meina 70" Jú jú það stemmir aðeins betur, takk fyrir það - ruglingur upp á bara 300 ár, give or take. Minnir mig á þegar KEB misskildi aðeins pabba sinn. Man ekki hvað við vorum að ræða þegar BH segist vera fæddur ´72, WO hvað ertu eiginlega gamall spurði drengurinn bara forviða. Ég áttaði mig í hvelli - hann hélt náttúrulega að karlinn væri fæddur árið 72, ekki 1972. Smá misskilningur. Later

Of course

KEB heima í dag - hálfslappur, vona að hitinn fari ekki upp aftur. Hann fór samt og tók þátt í upplestrarkeppninni og að sjálfsögðu komst kríli áfram ásamt fjórum öðrum. Þrátt fyrir að vera hás með hausverk og hósta. Nú verður hann bara að æfa sig fyrir aðalkeppnina þar sem fimm úr Varmárskóla taka einnig þátt. Við mæðgin sitjum bara heima í rólegheitum, hann glápir á sjónvarp og ég þykist vera að læra. Later

Blaður

Löt, latari, lötust - thats me these days KEB var hressari í dag, leit allt vel út en svo bara mældi hann sig og minn með rúmlega 38°C. Hann er svo svekktur að vera lasinn - sem betur fer er hann ekki mikið veikur, bara slappur með hita. En það er svo mikið í gangi hjá honum núna. Það er upplestrarkeppni á morgun og hann er í undanúrslitum, hann vann í fyrra og langar svo að komast áfram á morgun. Ef hann fer ekki í skólann á morgun þá ætla ég samt að leyfa honum að mæta kl. 10 til að lesa upp. Sjáum til hvernig það fer. Fimm komast áfram af þeim 12 sem eru að lesa upp á morgun og svo keppa þau á móti fimm úr Varmárskóla. Þannig að það er smá metnaður í mínum syni að taka þetta bara. Ekki nóg með þetta heldur er stórt próf í næstu viku í tónlistarskólanum, spila á klarinettið. Hann er búinn að æfa fyrir það síðan í september, læra utanbókar tónstiga í dúrum og mollum (I have know idea what that means), einnig þrjú lög án nótna og svo þarf hann að spila óséð lag líka. Þannig að þetta er...

Slómó

Hér er allt í hægagangi. KEB er lasinn og var því heima í dag með smá hita, vona að hann rífi sig strax upp úr þessu. Ég er svona mátulega dööö, ferlega þreytt eitthvað og tuskuleg, BH ekki alveg í stuði með hausverk. Bara Karlotta sem skoppar um allt hlustandi á Kræ beibí diskinn sem Beggi gaf henni. Er að lesa ennþá um þessa smitsjúkdóma alla - skyldi þó aldrei vera að það leggist svona á sálina á mér og þess vegna sé ég svona mátulega dofin - ætli það samt. Fór með Lilju tengdó í gær til læknis, þetta virðist ekkert ætla að skána almennilega hjá henni, endalausir verkir og vitleysa. Vonum samt að þeir finni endanlega útúr þessu og þetta lagist fljótlega. 2 ár er komið alveg gott. BH kom heim í hádeginu og verslaði með mér í Bónus, þetta er hrikaleg fötlun að geta ekki farið bara sjálf eins og venjulega. Hann uppgötvaði hvenær dags á að versla, ekki kl. 17. Við breyttum út af vananum og keyptum ekki Nóa páskaegg í ár. Hefði aldrei trúað að ég myndi ekki gera það, enda var ég í flækju...

Velferð á 20. öld

Við erum hætt í barnaverndarmálunum og komin yfir í heilbrigðismálin í þessum áfanga. Er að lesa um Bólusótt, mislinga, sulluveiki og fleiri smitsjúkdóma sem geisuðu fyrr á öldum. Ef ég fæ ekki einhverja pest eða plágu eftir þennan lestur þá tel ég mig hafa sloppið vel. Atjú

Kæra dagbók...

Fórum 28. febrúar til Lilju frænku (föðursystir BH) í fjölskylduboð. Föðurfjölskylda hans hittist ekki reglulega á fyrirfram ákveðnum dögum eins og er í mörgum fjölskyldum. En þau búa sér reglulega til tilefni til að koma saman. Gísli afi hefði orðið 104 ára á fimmtudaginn og var því sá dagur fyrir valinu að þessu sinni og ekki spillti fyrir að Stína og Óli voru í Reykjavík þessa daga. Það er alltaf gaman að hitta fólkið, þeir koma sem geta og aðrir eru svekktir að vera ekki með. Fengum rosa fínan mat og allir skemmtu sér mjög vel. Það er nú á fleiri heimilum en okkar hérna að smáfólkið er verulega upptekið. Hugrún var að fara að keppa í handbolta og því varð hún að fara frekar snemma, Anton var á leiðinni á verslósöngleikinn Kræ beibí og Beggi fór með hann í fyrra fallinu og svo Kjartan minn var að fara á æfingu í bæjarleikhúsinu hérna í Mos til að æfa fyrir sýningu sem er í dag. Hann var að spila á Klarinettið í leiksýningu um Nýju fötin Keisarans. Í gær komu svo Sólveig og Hlynur t...