Fara í aðalinnihald

Sjaldan fellur eplið...

Fórum til Lóu ömmu í gær, hittum þau afa á Sóltúni. Er við höfðum setið þar smá stund þá fór amma að gramsa í töskunni sinni og bauð krökkunum rauðar töggur. KEB afþakkaði því hann má ekki fá karamellur því hann er með teina. Þá var gramsað aðeins meira og honum boðinn brjóstsykur sem hann þáði, þarf ekki að bryðja hann. Enn og aftur laumaðist hún í töskuna góðu og náði að lokum í smá súkkulaðibrot af páskaeggi og stakk upp í afa. Þá gafst sonur minn upp og spurði í forundran "Hva ertu með sjoppu þarna ofaní?"

Þetta var svona dæmigerð athugasemd sem pabbi hans hefði komið með.

Later

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Já það er ýmislegt geymt í ömmu töskum. Kv Fríðan
Lóa Björk sagði…
Miklu betra stuff en í mömmutöskum það er nokkuð ljóst. Þar eru bara leiðinda snýtubréf og blaut-titsjú. Þeim hefur reyndar fækkað eftir því sem börnin eldast.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...