Fara í aðalinnihald

Kæra dagbók...

Fórum 28. febrúar til Lilju frænku (föðursystir BH) í fjölskylduboð. Föðurfjölskylda hans hittist ekki reglulega á fyrirfram ákveðnum dögum eins og er í mörgum fjölskyldum. En þau búa sér reglulega til tilefni til að koma saman. Gísli afi hefði orðið 104 ára á fimmtudaginn og var því sá dagur fyrir valinu að þessu sinni og ekki spillti fyrir að Stína og Óli voru í Reykjavík þessa daga. Það er alltaf gaman að hitta fólkið, þeir koma sem geta og aðrir eru svekktir að vera ekki með. Fengum rosa fínan mat og allir skemmtu sér mjög vel. Það er nú á fleiri heimilum en okkar hérna að smáfólkið er verulega upptekið. Hugrún var að fara að keppa í handbolta og því varð hún að fara frekar snemma, Anton var á leiðinni á verslósöngleikinn Kræ beibí og Beggi fór með hann í fyrra fallinu og svo Kjartan minn var að fara á æfingu í bæjarleikhúsinu hérna í Mos til að æfa fyrir sýningu sem er í dag. Hann var að spila á Klarinettið í leiksýningu um Nýju fötin Keisarans.

Í gær komu svo Sólveig og Hlynur til okkar í mat. Við græjuðum góðu mexíkósku súpuna sem Helena hefur stundum haft og omg við átum yfir okkur AGAIN. Það er alltaf gaman að hitta þau skötuhjú, mikið spjallað og mikið hlegið þar til þau þurftu að rjúka því litla daman þeirra er svo lasin með mikinn hita og var alveg brjál heima og afinn vissi ekki alveg hvernig átti að róa krílið. Þau eiga svo von á litlum dreng í lok júlí í sumar. Þá verður sko fjör og nóg að gera.

En eitt partýið í kvöld - nóg að gera í að hitta fólk á þessum bæ. Förum í mat til Lilju á eftir og hittumst öll eins og venjulega einu sinni í viku. Venjulega förum við til hennar á föstudagskvöldum samt.

Kíkti á sýninguna hjá Listaskólanum í Bæjarleikhúsið áðan. Þetta var rosa flott hjá þeim. Leikfélagið sýndi Nýju fötin Keisarans, Skólahljómsveitin spilaði lög við ljóð H.C. Andersen, tvær dömur sungu við undirleik stúlkna úr tónlistarskólanum og svo spiluðu krakkar nokkur lög. Kjartan Elvar og fjórir aðrir klarinettleikarar léku svo undir í sýningunni um keisarann. Þetta var hin besta skemmtun. Svo var myndlistarskólinn með myndir upp um alla veggi í barokk stíl og ég veit ekki betur en að litla daman mín hafi átt eina þeirra. Ég nennti ekki að skoða þær allar nákvæmlega til að finna nafnið hennar. Hún nennti ekki að koma með mér því hún fékk að gista hjá stelpunum hans Björgvins og neitaði að koma heim, það var svo gaman hjá þeim.

Frændurnir gistu hins vegar hjá ömmu sinni í nótt og skemmtu sér vel. Kom til vegna þess að Jón Gísli bað BH um að kenna sér á movie maker forrit og hann benti á KEB sem var alveg til í að miðla þekkingu sinni. Við BH vorum sem sagt barnlaus í nótt í fyrsta sinn í langann tíma - maður tekur varla eftir því samt því þau eru orðin svo stór og sjálfbjarga að það er ekki eins og maður hafi mikið fyrir þeim.

Það hefur oft verið sagt við mig að ég eigi börn sem gaman er að gefa að borða. Þau taka bæði hraustlega til matar síns og hafa alltaf gert. Þau erfðu ekki matvendni móður sinnar (thank god). Það hefur líka alltaf verið eftir því tekið hve duglegur Jón Gísli (14 ára) er að borða og borðar mikið. Í morgun sagði Lilja mér að Jón Gísli hefði ekkert í Kjartan að gera - Kjartan Elvar borðaði töluvert meira í hvert mál og alltaf var hann til í meiri mat þegar það var í boði. Ekki bara það heldur hafði hún talað við Ernu fyrr um morgunin og hún hafði sagt nákvæmlega það sama um Karlottu - Jón Gísli hefur ekkert í hana að gera heldur. Þannig að ef við BH förum á hausinn einn daginn, svona þegar börnin okkar eru unglingar, þá er það vegna matarinnkaupa. Við þurfum að fæða þessa unga á hverjum degi og það er ekkert grín. Það vill til að þau eru bæði mjög dugleg að hreyfa sig og nýta þessa orku sem þau innbyrða og því höfum við ekki áhyggjur af þessu hérna. Verð samt að viðurkenna að ég stoppa Lottu mína stundum af, og fólki finnst ég vond mamma að neita henni um ábót á matinn. En það geri ég bara þegar hún hefur borðað vel og mikið. Alltaf ávextir í boði í eftirrétt og hún þiggur það oftar en ekki og er sátt eftir það.

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...