Sat hér í rólegheitum frammi í stofu í gærkvöldi og krakkarnir farnir í rúmið. Þegar KBB gargar allt í einu úr rúminu sínu í hinum enda hússins "Mamma ert þú ekki fædd 1700 og eitthvað?" Common, ég lít nú ekki svona illa út þrátt fyrir að vera að komast á seinni helminginn. Ég kallaði því á móti "Hvað heldur þú eiginlega að ég sé gömul þá núna?" Smá þögn og svo var kallað tilbaka, "æ ég meina 70" Jú jú það stemmir aðeins betur, takk fyrir það - ruglingur upp á bara 300 ár, give or take.
Minnir mig á þegar KEB misskildi aðeins pabba sinn. Man ekki hvað við vorum að ræða þegar BH segist vera fæddur ´72, WO hvað ertu eiginlega gamall spurði drengurinn bara forviða. Ég áttaði mig í hvelli - hann hélt náttúrulega að karlinn væri fæddur árið 72, ekki 1972. Smá misskilningur.
Later

Ummæli