Páskarnir voru með heldur óvenjulegu sniði á þessu heimili. Ég sat og færði bókhald og BH var á Barðastöðum að vinna. Þeir kláruðu að setja upp loftið og nú er komið parket á mestan hluta rýmisins. Þetta er allt að mjakast í rétta átt en 1. apríl verður kominn áður en við vitum af. Krakkarnir fóru í Skorradalinn og við sóttum þau á laugardagskvöldið. Svandís kom með okkur í sveitina og var jafnspæld og krakkarnir þegar hún frétti að við ætluðum ekki að gista. Fengum gott að borða og sátum fram eftir kvöldi en skelltum okkur í bæinn um ellefuleytið.
Páskadagur var tekinn snemma, matur klukkan 14 hjá Lilju. Þar var nóg af fólki og mikið fjör að venju. Ingibjörg var búin að prjóna svo fallegan skokk sem ekki var búið að ráðstafa. Hann smellpassaði á Karlottu svo hún ætlar að fjárfesta í honum.
Kvöldinu var svo eytt á Barðastöðum í parketlögn. KEB fór með pabba sínum að hjálpa, ég fór svo seinna um kvöldið og skildi KBB eina eftir heima. Eftir að hafa skutlað KEB heim og smurt ofan í drengina fór ég aftur til þeirra og var til tæplega tvö í nótt, þeir hins vegar kláruðu það sem eftir var og voru til kl. hálf sex í morgun. Svona er þetta búið að vera hérna hjá okkur og Davíð allan mars. Ég hef reyndar sloppið vel, lítið sem ekkert þurft að gera miðað við oft áður. Hlakka ekkert lítið til þegar þetta verður búið. Þetta verður rosalega flott hjá þeim.
Planið í dag er að taka því rólega - reyna kannski að kíkja á ömmur og afa. Hef ekki verið dugleg að láta sjá mig hjá þeim nýlega.
Later

Ummæli