Þetta byrjaði ósköp saklaust, einn blýantur og krossgátublað. KBB fékk leyfi til að fara inn í tölvuherbergi til að sitja við skrifborðið. Hún fór inn til að ráða krossgátur í blaði sem ég keypti á bókamarkaðnum fyrir þau systkinin. Hún tók með sér bleika geislaspilarann sem hún fékk í afmælisgjöf er hún varð átta ára. Ein best heppnaða afmælisgjöf í langan tíma. Þetta var um síðustu helgi. Það er skemmst frá því að segja að við BH höfum alveg misst yfirráð yfir þessu herbergi. Litla manneskjan er búin að fylla allt þarna inni af PetShop dýrum og húsum, geislaspilarinn er negldur í gluggann og honum verður ekki haggað. Svo lokar hún alltaf að sér og blastar lögin úr Jesus Christ Superstar svo hún heyrir helst ekki þegar við köllum á hana. Ekki nóg með það heldur er vinkonum hennar boðið þarna inn líka, og að sjálfsögðu er lokað. Svo trítla þær á milli herbergja í alls konar leikjum.
Ég sagði BH frá þessu um miðja vikuna, gerði honum ljóst að hann skyldi ekki reyna að koma sér fyrir neitt þarna mikið, það er bara ekki pláss. Hann glotti bara, fannst þetta sniðugt. En það var ekki fyrr en á föstudaginn sem hann gerði sér ljóst hve alvarlegt ástandið er. Þá þurfti hann að sækja eitthvað þarna inn og við honum blasti PetShop Heaven. Hann kom hlæjandi fram og sagðist nú skilja hvað ég hafði átt við.
BH vaknar ekki oft með okkur á virkum dögum, eiginlega bara aldrei. En það þurfti hann að gera á föstudagsmorgunin. Hann var beðinn um að rétta dömunni skólatöskuna sína og fiðlutöskuna. Hún bað hann um að setja töskuna á bakið á sér, þar næst var hann beðinn að setja fiðlutöskuna á bakið líka yfir skólatöskuna - það virkar fínt og þannig hefur hún borið töskurnar í skólann. BH fannst þetta eitthvað skrýtið og spyr "gerir þú þetta alltaf svona?" - "Já já, ég geri þetta á hverjum mánudegi og föstudegi - alla mán og fös!" Pabbinn var ennþá að hlæja að þessu mán og fös klukkan níu.
Sýningin Æskan og hesturinn er í reiðhöllinni nú um helgina. Svandís leyfir KBB að taka þátt, hún er í grímureiðinni fyrst í sýningunni, tók þátt í fyrra líka. Þá var hún sjóræningi en í ár er hún Mexíkani. Fengum hatta hjá Mömmu og pabba úr Skorradalnum og teppi líka sem ég klippti gat (fékk leyfi) í miðjuna á og bjó til ponsjó. Hesturinn fékk líka hatt.
Við mæðgur lentum í smá rimmu í morgun því drottningin vildi fara út og kaupa glimmer til að skreyta allann hestinn í bak og fyrir. Ég sagði henni að það væri enginn tími í slíkt - vissi ekki einu sinni hvar ég ætti að leita að einhverju slíku. Hún brjál og ég tjúll, alla vega smá svona árekstur. Hún sá suma nefnilega í gær í búningum og skreytta hesta og að sjálfsögðu vill hún ekki vera minni manneskja. Hlustaði ekkert á að hesturinn yrði fínn með hattinn - það væri nóg. Ég bauð henni að gera hana aðeins senjorítulegri og mála hana, þ.e. smá lit í andlitið og dekkja í kringum augun. Það er nú varla til ljósari Mexíkani en KBB. Svo ég gerði þetta, dökkt púður í andlitið og svart í kringum augun og maskari, ekki hægt að senda hana út án þess að setja fegurðarblett á kinnina ofan við vörina. Kannist þið við lagið I am sixteen going on seventeen? - já það sko er þannig að hún er nine going on fourteen - alla vega eftir að ég var búin og ekki skemma gelgjustælarnir. Þannig að mamman reddaði deginum og drottningin sveif á bleiku skýi út í bíl og í reiðhöllina. Svo gekk þetta eins og í sögu á sýningunni klukkan eitt. Hún er á nánast ótömdum hesti, hljómar ekki vel hmmm. Það er fínn barnahestur samt því merin er svo hundlöt að hún nennir ekki að drattast úr sporunum nema helst á eftir einhverjum öðrum.
Ef einhver hefur áhuga þá eru tvær sýningar á morgun, kl. 13 og 16. Mæli með að skella sér að sjá þessa kláru krakka sýna hvað þau geta ef fólk hefur lítið að gera á sunnudegi, það kostar ekkert inn.
PS - KEB kemur aldrei með á þessar sýningar, hann kom nær dauða en lífi þaðan út 2003. Hann var svo heppinn að frænka hans hlustaði ekki mömmuna sem taldi þetta nú ekkert svo alvarlegt, bara pústa er hann kæmi heim. Eftir að þeir á slysó náðu bláa litnum úr andlitinu á honum og krakkinn farinn að anda eðlilega aftur þá var móðurinni bent á að þegar svona gerist þá hringir fólk á sjúkrabíl, hafa það í huga ef fólk er í andnauð. Ég var ekkert að segja lækninum að ég hafði nú ekki einu sinni ætlað með hann á sjúkrahús, heldur bara heim í Mosfellsbæinn að redda astmalyfjum ofan í hann. En Svandís hlustaði ekki á mig og rauk með hann í Fossvoginn, ég var sko heima og sá ekki bláu varirnar og gerði mér ekki grein fyrir hversu alvarlegt þetta var.
Nú á ég von á fólki í mat þannig að O&O for now

Ummæli