Fór með krakkana í verslunarleiðangur á sunndaginn var. KEB sérstaklega er farið að vanta föt, hef varla þurft að kaupa á hann föt síðan síðasta vor. Þannig að það er kominn tími á drenginn, svona áður en hann endar á brókinni blessaður. KBB býr svo vel að eiga flotta frænku sem hefur arfleitt hana að fötum sem hún er vaxin upp úr og hætt að nota. KBB verður því seint fatalaus. En þar sem átta ár eru á milli þeirra að þá langar mann stundum að kaupa á hana föt sem eru í tísku núna og notar fötin frá Hugrúnu sem alltaf ganga, bolir og gallabuxur ganga alltaf. Svo er hún dóttir mín svo nýungargjörn að hún vill helst fá nýtt dress á hverjum degi, alla vega þegar hún uppgötvar nýjan skammt af fötum sem passa á hana af þeim sem við geymum ofan í skúffu til betri tíma.
Það merkilega gerðist á sunndaginn að það var ekki stoppfullt í Kringlunni og ég gat því slappað af og fengið aðstoð í verslunum líka - látið ekki líða yfir ykkur. Fórum í Hagkaup og fengum bol og buxur á drottninguna en KEB fann ekkert sem hann gat hugsað sér í sinni stærð. Ég er í smá tilvistarkreppu með hvar á að versla föt á barnið -hann er svona mitt á milli í stærð. Barnafata og unglingaverslanir eru varla með nógu stórt og venjulegar búðir með svona aðeins í stærri kantinum. Það voru alla vega mín vandræði síðast. Nú virðist hann passa í Small stærðir í tískuverslunum og við fórum í Gallabuxnabúðina og fengum fullt af fötum sem hann valdi allt sjálfur. Hitt merkilegt sem gerðist í þessari ferð var að þau tuðuðu furðu lítið - bara sátt við að eyða smá tíma í að velja sér föt. M.a.s. KEB kvartaði ekkert þegar ég bað hann um að máta, gerði það þegjandi og hljóðalaust, ég hélt ég yrði ekki eldri. Og hann er svona ljómandi lukkulegur með þetta allt saman bara og hún líka með sitt. Ferðin endaði í ísbúðinni, smá verðlaun fyrir að gera ekki mömmu sína geðveika með tuði og látum um að fara heim.
KEB er farinn núna í Vatnaskóginn í sólarhring. Þeir fóru síðast í haust og sú ferð tókst svo ljómandi vel að það verður örugglega gaman núna líka. Leikir og læti fram á rauða nótt, þeim þykir það nú ekki leiðinlegt.
Hringdi í Svandísi í gær og spurði hvort hún tæki KBB að sér eitthvað í dag. Svona svo hún fái að gera eitthvað skemmtilegt líka. Þær eru því saman frænkurnar í hesthúsinu í dag og spurning hvor gefst upp á hinni fyrr. KBB má vera þar til hún er búin að fá nóg (aint gonna happen) eða þar til SBK þarf að gera eitthvað sem KBB getur ekki tekið þátt í. Ég held jafnvel að SBK neyðist til að ættleiða systurdóttur sína því sú stutta er þvílíkt að hafa það fínt þarna í skítalyktinni. Ég var ekki farin í morgun þegar hún var komin með kúst í hönd að hjálpa frænku sinni að sópa fyrir framan hurðina inn í húsið. Það er ekki bara málið að komast á bak, þó það skipti máli líka, heldur finnst henni æðislegt að fá að taka þátt í umhirðu dýranna og að þrífa undan þeim þarna. Spurning um að senda hana til sálfræðings - eða jafnvel geðlæknis, það hljóta bara að vera lyf við þessu. Annars verður hún bara að finna sér mann sem er til í að flytja upp í sveit með henni og þau geta verið bændur saman. SBK ætti að gera það sama og þær geta þá frænkurnar verið á sitthvorum bænum. Algert grundvallaratriði er þá að þær séu nálægt hvor annarri þannig að maður geti heimsótt þær báðar án þess að keyra landshorna á milli. Smá dagdraumar...
Ég á að vera að vinna, best ég haldi því þá áfram núna. Klára bókhaldið fyrir vsk í næsta mánuði svo ég geti farið að vinna í ritgerðum og skólamálum.
Later

Ummæli