Þegar þessi törn verður búin, búið að skila Krókhálsi af sér og vinnufært orðið á Barðastöðum, þá leggjast tvær fjölskyldur í hýði. Ekki er víst hvenær þær vakna aftur, það verður bara þegar svona mesta þreytan er farin úr kroppum fólksins og fjölskyldufeðurnir búnir að ná sér andlega eftir mikla vinnu, stress og svefnleysi.
Fluttum í gærkvöldi og í nótt heilmikið af kössum og dóti. Seinnipartinn verður farið í að taka stóru hlutina, þeir sem vilja tilbreytingu í sinni líkamsrækt eru velkomnir. Þetta verður blanda af pallatíma (fullt af stigum) og Body pump tíma (mikill burður). Gerist ekki betra.
Ég held ég hafi sagt það alla vega 20 sinnum í gær og því við hæfi að setja það á prent hér núna, mikið svakalega er ég fegin að við erum að flytja á fyrstu hæð núna - engir stigar þar. Fæturnir á mér eru mátulega stirðir, það hjálpaði ekki að fá fjögurra tíma svefn og byrja að bera út kl. 6 í morgun.
Í gær komumst við að því hve gott er að eiga stóran strák (vissum það fyrir) og góða frændur. KEB, Anton og Jón Gísli hjálpuðu okkur í allan gærdag við að bera niður rusl og henda í Sorpu. Það munaði heldur betur um þessa gutta og ekki voru þeir að kvarta, skemmtu sér svo vel saman frændurnir.
Ég ætla að sitja hérna heima í dag og borga reikninga og klára skattskýrsluna okkar hérna. Búin að humma hana fram af mér (eins og margt annað) og reyna að gleyma henni, það hefur ekki gengið nógu vel og því ætla ég að ljúka henni af núna og gleyma henni svo endanlega - until next year.
Ég pirra mig á hverju ári núna yfir þessu því við BH fáum ekki vaxtabætur lengur frá skattinum. Við erum víst svo ofboðslega rík. Þegar fasteignaverðið fauk upp þá eigum við hlutfallslega meira í húsinu og því fáum við ekkert tilbaka því við eigum svo mikið. Pétur Blöndal er duglegur að hugga fólk með þessari rosa eignaaukningu. Mikið varð ég kát og brosti út að eyrum þegar Steingrímur J. Sigfússon eiginlega hvæssti á hann um daginn í Kastljósinu, "Já en Pétur þú étur ekki húsið þitt" VEI LOKSINS einhver sem lét hann heyra það sem ég garga á hann í hvert sinn sem ég heyri hann bulla þetta í fjölmiðlum. Skuldabyrðin okkar hérna hefur nefnilega ekki minnkað, ef eitthvað er þá hefur hún aukist - þannig að við myndum alveg þiggja smá vaxtabætur tilbaka.
Svona fyrst ég er að pirra mig á hækkunum og peningum má ég til með að nefna sívinsælt umræðuefni - bensínverð. Þegar við keyptum bílinn fyrir tveimur árum síðan þá kostaði ekki meira en 8000 kr. að fylla tankinn. Núna kostar það yfir 12000 krónur, sem er náttúrulega bilun. Dæli alltaf sjálf og kaupi 95okt. Ég ætla ekkert að ræða það að allir fari bara í strætó - kleppur er ekki nógur stór til að taka við öllu því fólki sem myndi skaðast andlega við álagið sem fylgir því að eiga að taka strætó allt sem fólk fer á hverjum degi. Ég er verulega hlynnt því að ríkið lækki álögurnar á bensínið. Fyrrnefndur Pési sagði einhversstaðar að það væri nú bara föst krónutala - 41 kr. - sem ríkið tekur og það hækkar ekkert. Góðan daginn er ekki virðisauki á þessu líka og það er prósenta af heildinni. Má ekki ræða lækkun á því eitthvað - svo lengi sem olíufyrirtækin hirði það ekki inn í verðið hjá sér bara eins og matvörufyrirtækin gerðu hérna fyrir ekki löngu síðan.
Orðin þunglynd - spá í að flytja og þá helst bara til tunglsins.

Ummæli
http://erinspeak.prv.pl
http://intimti.001webs.com