Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá maí, 2007

Dans á rósum

16:50 fékk ég að vita að það væri danssýning hjá sjötta bekk í Lágafellsskóla kl. 17:00, við mæðgin rukum út svo gaurinn gæti tjúttað með hinum fyrir foreldra og aðra áhugasama. Sýningin var skemmtileg eins og árin áður en heldur færri mættir en áður þar sem foreldrar virðast almennt ekki hafa verið látnir vita - enginn tölvupóstur þetta árið. Þau gátu dansað Jive, Rumba, samkvæmisdans, línudans og tískudansa. Eina sem ég gat hugsað var ... damn, wish I could do that! Það er aðeins meira varið í skólakerfið núna en þegar ég var í skóla. Það er ekki bara lögð áhersla á stærðfræði og íslensku. Í Lágafellsskóla er alla vega mjög fjölbreytt námsefni og fullt af hæfum og góðum kennurum. Allir fá að læra á blokkflautu í tvö ár, svo geta þau hæfustu og áhugasömustu haldið áfram t.d. í skólahljómsveitinni. Allir læra dans, alla vega þrjú ár vona að það verði lengur - þau hafa gott af því. Þokkalega hæfir ungir herrar á skemmtistöðunum eftir 6 ár. Svo eru þau að sjálfsögðu í öllum sérgreinunum ...

Lífið að láni

Var að lesa áðan að Ásta Lovísa Vilhjálmsdóttir hafi dáið í dag - fylgdist nú ekki með henni á blogginu hennar en vissi hver hún var og sá hana í fjölmiðlum. Það er svo sárt að hugsa til krílanna hennar, finnst alltaf erfitt að heyra þegar ungar mæður deyja frá ungum börnum. Finnst það bara vera lögmál að börn eigi að hafa mömmu sína hjá sér fram á fullorðinsár. Skilst að hún hafi verið dugleg að segja fólki að vera til og njóta þess vel. Ég tek undir það og reyni að fara eftir því með misjöfnum árangri. Um helgina er planið að við Kjartan Elvar breiðum úr okkur hér í kotinu á meðan feðginin leggja land undir fót og fara saman í Vatnaskóginn í feðginaflokk. Gummi fer með stelpurnar sínar líka þannig að þeim ætti ekki að leiðast (eins og það sé hægt í Vatnaskógi). Við erum nú samt bara ennþá að jafna okkur eftir Lundúnaferðina, verið að þvo allann þvott og taka til - það tekur alltaf tíma, en gengur vel. Karlotta mín var ansi þreytt í morgun eftir lítinn svefn, en Kjartan (morgunhani) ...

Ladies and chickenmen

jamm - þannig segir dóttir mín Ladies og gentlemen. Fjölskyldan er komin heim frá Lundúnum þar sem hún skemmti sér alveg konunglega síðan á fimmtudag. Þrátt fyrir afspyrnu dæmigert Lundúna og helgarveður (= rok og rigning) var rosa gaman og mikið fjör. Lestarkerfið var óspart notað og við náttlega með nefið fullt af ryki og lungun af skít eftir hvern dag - en það bjargast allt þegar heim er komið og íslenska vegarykið blæs þessu burt. Flugið gekk ljómandi vel - bæði út og heim aftur - ekkert vesen á flugvöllunum, lentum ekki í neinum röðum og gengum alls staðar beint í gegn, gat ekki verið betra. Nú er bara streðið byrjað aftur og minns á leið með Pizzu til mömmu því Baldvin ætlar að hjálpa pabba með tölvumál. Later, Lóa

Eitt enn

Er að fylgjast með fréttum hérna, ráðherravalið. Tek ofan fyrir Samfylkingunni að hafa jafnt hlutfall kvenna og karla í liði sínu. Eru Sjálfstæðismenn svona úrkynjaðir að þeir ræða þetta ekki einu sinni, ein kerla í þeirra liði, lélegir. Má ekki hrokagikkurinn Árni Matt. t.d. bara missa sín - myndi ekki sakna hans mikið. Ég kaus þá ekki núna og held bara að ég kjósi þá ekki aftur á meðan þeir eru svona miklar karlrembur. Og hananú Lóa

Brjálað að gera á vorin

Ok komst að því að það var vesen að commenta á síðuna, en held ég sé búin að breyta því þannig að það ætti ekki að vera mál - vona það alla vega. Það er svo mikið í gangi þessa dagana - eitthvað á hverjum degi. Tónleikar hjá Kjartani í gær og svo hjá Karlottu í dag, reyndar aftur á morgun því hún spilar með litlu strengjasveitinni líka. Semsagt þrír dagar í röð sem liðið á heimilinu mætir á tónleika, erum mjög menningarleg eins og ég er að reyna að koma að. Þarf ég að taka það fram að þau spila eins og englar og það er æði að sjá hvað þau eru dugleg. (smá hlutdræg hí hí) Af tónleikunum í dag var hlaupið á bekkjarkvöld hjá Kjartani Elvari þar sem krakkarnir voru búnir að leggja hart að sér að búa til sýningarbása um öll Norðurlöndin. Kjartans hópur kynnti Danmörk fyrir lýðnum og var básinn þeirra veglegur. Þeir voru með marga hluti sem tengdust landinu, Kjartan hafði fengið hjá Hans afa sínum marga fallega hluti sem vöktu mikla lukku. T.d. kolastraujárn, hálmskó, Raf-steina og hálsfest...

Rollur í fyrra lífi?

Ég bara verð... Í Kastljósinu í kvöld var umfjöllun um fólk sem lætur hengja sig upp á kjötkrókum - barnalega ég hélt bara að liðið væri í spennitreyju eða eitthvað og héngi svo dinglandi í fjöllunum sér til ánægju og yndisauka. En nei, kjötkrókarnir eru kræktir í bakið á fólkinu og svo er það híft upp og látið hanga. Þetta segir gaurinn sem talað var við að auki á sjálfsvitund og andlega vellíðan eftir að niður er komið. Trúi því vel að honum líði vel þegar búið er að slaka honum niður og krókarnir hættir að rífa í fleskið á honum. Ég hef nú ekki mikla trú á svona misþyrmingu á kroppnum, held bara áfram að kenna mínum börnum að bera virðingu fyrir líkama sínum og fara vel með hann því við fáum bara einn og hann þarf að endast alla ævi. Velti því samt fyrir mér hvort liðið hafi verið lömb í fyrra lífi og lent í Sláturfélagi Suðurlands og hangið þar eitthvað og svo núna með eitthvað svona flashback og sé að endurlifa ósköpin? Nei bara svona hugmynd. Lóa

Að kveða burt snjóinn...

Það get ég ekki. Alla vega ekki miðað við ástandið í garðinum mínum í morgun, eða í Esjunni sem var vel hvít. Hef því ákveðið að hafa mig af landi brott innan tíðar fyrst máttur minn er ekki meiri en raun ber vitni. Vorsýningin hjá fimleikafélagi UMFA gekk vel í gær - allir krakkarnir svo flottir og duglegir. Kjartan Elvar fór heila skrúfu af trampólíni og mjög ánægður með sig - lendingin var nú samt eins og honum hefði verið hent í endann á dýnunni, en hey þetta kemur :) Karlotta var sumarleg og flott með dömunum í sínum hóp og þær voru mjög duglegar. Lokaatriðið toppaði þetta nú samt, Norðurlandameistararnir frá Gerplu komu og sýndu tilþrif sín með stæl. Þær voru flottar stelpurnar og það var kraftur í þeim - krakkarnir í Aftureldingu sáu hvað þau geta gert ef þau eru dugleg að æfa sig í nokkur ár. Sumarið er útpælt og vel planað á þessu heimili, aldrei þessu vant. Við höfum sjaldan planað þetta svona vel. Krakkarnir fara báðir í sumarbúðir, Karlotta í Ölver og Kjartan í Vatnaskóg, þ...

Hjarðmenning Íslendinga

Jú jú það var húsdýragarðurinn kl. 11:00 í morgun - við og allir hinir á Íslandi hrúguðust þangað saman og sátu allir fastir í röðum. Dæmi: Snilldarhugmynd, kaupum CandyFloss (oj eins og að éta bómul, en hvað um það) kostaði ekki bara 3oo krónur á mann, nei klukkutíma í röð. Hvað er að fólk, geri þetta ekki aftur. Borga heldur bara inn í garðinn og nokkrar ferðir í græjurnar fyrir krakkana, tíminn er of mikilvægur til að spara nokkrar krónur. Ætlaði bara að gera svo margt áður en ég dey. Þetta er svona álíka stupid og að fara í Kringluna og Smáralindina um helgar, það er eins og fólk hafi bara ekki annað að gera í lífinu en að elta rassgatið á hvert öðru í einhverri hjörðinni, verslunarmiðstöð eða ókeypis uppákomum í bænum. Ég reyni almennt að forðast þetta eins og heitann eldinn, eins gott líka því það finnst ekki pirraðri mamma á landinu þegar ég kemst ekki bara þangað sem ég vil fara í hvelli. Nenni ekki að bíða í fáránlega löngum röðum eða troðast á milli fólks í fjölmenni, þarf ba...

Blessuð sólin elskar allt...

Yndislegt veður í dag, gat ekki annað en byrjað að vinna í garðinum aðeins. Fór til Lóu ömmu um daginn og tók eftir að garðurinn hennar kom óvenju vel undan vetri og spurði hana hvort hún væri búin að fara eitthvað í garðinn. Hún hélt það nú búin að tína í sex svarta ruslapoka, 85 ára gömul, það er harkan. Ég var þá búin með einn og einn fjórða úr poka en eftir daginn eru komnir tæplega sex pokar og 1/8 af garðinum orðin sómasamlegur. Eftir sex ára baráttu létu foreldrar heimilisins undan og krakkarnir fengu PlayStation tölvu. Gerður var samningur um reglur og skilyrði fyrir kaupunum og allir rosa glaðir með gripinn bara. Þau fóru svo og fengu fullt af leikjum lánaða hjá Hugrúnu frænku sinni, kærar þakkir fyrir lánið, og léku sér í Buzz í allt kvöld með pabba sínum. Við erum opinberlega komin í tölu leikjatölvu eigenda í landinu. Krílin verða svo að leika blómálfa í sumar og hjálpa mömmu sinni í garðinum í staðinn, en þau hafa svo sem gert það undanfarin ár svo þau eru vön, alger barna...

Dagur eitt

Hmm, reyna að vera með, er samt mikið eftir á. Allir löngu byrjaðir að blogga á netið og leyfa öllum að sjá hvað þeir eru að hugsa og hvað þeir éta yfir daginn og hvenær þeir leggja sig o.s.frv. Ætla að prófa og sjá hvað ég endist, það er að koma sumar og ég ætti að hafa tíma til að prófa hvort ég endist í þessu, svo þegar skólinn byrjar aftur get ég virkilega svæft alla með hugleiðingum um skemmtilega námsefnið mitt, sérstaklega Helgu vinkonu sem kúgast bókstaflega þegar hún heyrir hvað ég er að lesa :) Ætla nú kannski ekki að halda beint dagbók hérna en á sennilega eftir að detta í þá gryfju oftar en einu sinni og best að byrja bara núna - í morgun var ákveðið að kíkja í heimsókn til Betu ömmu seinni partinn. Um kl. 13 tilkynnti Karlotta mér á meðan ég greiddi henni að það væri gott að við værum á leið í Breiðholtið til ömmu því hún væri svo ofsalega svöng. Barnið hefur lært það að frá ömmu sleppur enginn nema kýla vel út vömbina áður. Læt þetta gott heita í bili - lofa engu en vona ...