Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá 2011

Ævintýraför

Fórum "Iron will" í kvöld. Heiðmörkin í snjónum og myrkrinum. Það var svo gaman. Ég var send af stað á sleðanum okkar með hundana okkar þrjá. Þau hafa nú ekki verið að sýna sínar bestu hliðar undanfarið en ég hafði grun um að rakkarnir myndu standa sig núna. Ég er ekki skyggn en hef átt rakka nógu lengi til að vita að lóðatíkur gera þá heilalausa með öllu. Olga fór á undan mér af stað og við byrjuðum í hjólförum á veginum til að ná smá hring. Komumst ekki alla leið á bílunum þangað sem við erum vön að byrja. Aumingja Olga fékk að púla og hlaupa uppeftir veginum en mínir hundar bókstaflega flugu á eftir henni, mjög ákveðnir í að ná þessum tíkum þarna. Ég átti mjög auðvelda og skemmtilega leið, helming leiðarinnar. Þá ákváðum við að ég færi framúr og myndi vera fyrst. Það var öllu rólegri ferð en gekk í heildina vel. Færðin var skuggalega þung víðast og ef maður ætlaði að hjálpa til og ýta eða hlaupa með... mátti maður oft hafa sig allann við að komast aftur á sleðann. Var ...

Gleðileg Jól

Mér er búið að líða svona eins og drengnum í þessu myndbandi  allan desember. Við hjónin ákváðum að taka gjafirnar til krakkanna með okkur í Álfheimana í kvöld. Vorum viss um að KBB myndi kannski ná að fatta hver hennar gjöf yrði. Tókum enga sénsa því við vildum að hún vissi EKKERT. Við urðum ekki fyrir vonbrigðum... pabbinn sagðist hafa beygt af þegar hún tók upp gjöfina sína. KEB fékk hrikalega spennandi stráka jólagjöf og var alsæll. Við náðum honum líka, hann verður sæll og glaður allt árið að gera minningar ódauðlegar :) KBB fékk "bara" flettibók, þurfti að lesa blaðsíðu eftir blaðsíðu til að uppgötva hver hennar gjöf er. Og það var óborganlegt þegar ljósið var að kvikna hjá henni. Hún brosir allan hringinn og það er hætt við að hún eigi eftir að telja dagana til 4. febrúar. Þrátt fyrir að hafa dissað dáldið upplifunarkassana sem auglýstir hafa verið fyrir jólin þá var hún ansi hreint spriklandi lukkuleg með "action" pakkann sinn. Hún fékk nefnilega ekk...

Snobb ?

Fórum í gær til að leyfa hundunum okkar að hlaupa lausum. Leit út um gluggann og sá þetta líka fína veður. M.a.s. snjóaði aðeins. Vorum samt vöruð við að það væri ekki skemmtilegt veður á Suðurlandsvegi og þar með ekki heldur á Nesjavallavegi, þar sem okkar ferð var heitið. Við vorum því við öllu búin. Vissum að sennilega myndum við ekki ná að keyra alla leið þangað sem við helst vildum en ákváðum að sjá hvernig aðstæður voru. Er við vorum komin áleiðis var okkur ljóst að okkar bíll myndi ekki hafa það lengra en við vorum komin. Svo við ákváðum að snúa bifreið vorri við og lögðum á "auða" götuna og hleyptum hersingunni út. Sama gerðu Olga og Halli. Við vorum minnt á það þarna hvernig vetur eru á Íslandi þegar vind hreyfir. Það var vont að fá snjórigninguna í andlitið og við óðum sums staðar snjó uppfyrir hné út í móa. Hundarnir þurftu smá tíma til að átta sig. Það var mjög fyndið að sjá þau hlaupa og endastingast á nefið þegar snjórinn gaf sig. Við röltum þarna með þau í kl...

Ofurkonur

Mikið lifandi skelfingar ósköp er gott að eiga ömmur, mömmu og tengdamömmu sem kunna og geta allt. Verst að ég verð aldrei svona ofurkona :/ Rennilásin á úlpunni hans KEB var ónýtur og í stað þess að kaupa nýja úlpu á brjáluðu ofurverði var nóg að kaupa nýjan rennilás. Tengdó sá um að spretta þeim gamla í burtu og sauma þann nýja á úlpuna og krakkinn svona líka lukkulegur með það. Það er eins gott að Lottuskottið mitt verði svona ofurkona því ekki er mamma hennar líkleg til stórræða í þessum efnum! KEB losnaði við gipsið í dag. Var sérstaklega ánægður með það. Var samt svo hissa hvað hendin er öll skrýtin. enn pínu bólgið handarbak, rýrari en hún var og svo var honum skítkalt á vinstri þegar hann var úti í dag. Spurning um að græja sig í vettlinga á morgun áður en hann fer í skólann. Hann þarf að hvíla hendina áfram til að þetta lagist almennilega. Kom í ljós í dag að ég vissi ekkert hvað hafði brotnað því það var ekki baugfingur eins og ég hélt - heldur beinið frá baugfingri í h...

Á svo bágt

Er með einn lítinn hérna heldur óhamingjusaman. Hann skilur ekki alveg hvað málið er. Leo er inni hjá mér en ég setti stóru vargana tvo út í gerði. Þau eru búin að vera inni meira og minna á daginn síðan á miðvikudag.  Fyrir utan göngutúra.Vildi ekki setja rakkana út, annan með saum í fætinum og hinn gat á hausnum. En þar sem fjörið er helst til mikið hér innan dyra fyrir minn smekk stundum þá ákvað ég að skella tveimur út saman. Leo vælir á mig hérna og skoppar að gluggunum þar sem hann sér út. Settist við hurðina út á pall og svo lagðist hann niður. Leit út fyrir að eiga mest bágt í heiminum greyið. Vonda kona að halda honum frá vinum sínum. Vonda vonda kona ! Later

Smásálir

Ég er svo reið að ég er að kafna - það hefur gerst ansi oft síðast liðið ár. Ég er orðin dauðleið á helvítis pakki. Ég hef lært heilmikið á þessum tíma um mannleg samskipti. Ætti að vera orðin vel þjálfuð þetta gömul. En hingað til hef ég greinilega valið vini af meiri kostgæfni en undanfarið. Ég er þákklát fyrir þá raunverulegu vini sem ég hef eignast þetta ár og jafnframt reynslunni ríkari með hitt pakkið. Maður á að treysta innsæi sínu og láta það vera að tala við fólk sem þrífst á öfund og baktali. Og vælukjóarnir, guð minn góður - "ó mig auma" liðið. Í alvöru, þegar ég er í svona skapi þá segi ég hiklaust (gegn betri vitund) skjóta þetta bara og passa að það fjölgi sér ekki svona fólk. Maður á ekki að umgangast fólk sem maður veit að baktalar alla sem ekki eru á staðnum. Fólk sem "veit" svona hitt og þetta um allt og alla. Maður á ekki að umgangast fólk sem getur ekkert sjálft og öfundar þá sem framkvæma. Því einn daginn kemur að þér og þú átt ekki séns... ...

Ómissandi

Ég elska börnin mín... óendanlega. Mér þykir afskaplega vænt um dýrin mín líka. Þrátt fyrir að allt gangi súper vel hérna með rakkakjánana þá eru þeir engir bestu vinir í raun. Í gær fór allt fjandans til og getum við að hluta kennt okkur sjálfum um. Þeir ruddust hvor á hinn og við vorum í mestu vandræðum með að toga þá í sundur. Ég ríghélt í lærin á Úlfi og BH greip Leo og svo reyndum við að toga þá í sundur. Endaði þannig að Úlfur er með vænt gat á hausnum eftir vígtönn og Leo með gat á fæti eftir vígtönn. Hans sár var það slæmt að loppan er vel bólgin. Þegar BH sendi þau út að pissa áður en við fórum að sofa vildi Leo ekki koma. Hann lagði eyrun aftur og horfði hvolpaaugum á okkur. Hann var beðinn um að drífa sig að fara út að pissa, bara í rólegheitum því við sáum að hann var eitthvað lítill í sér. Kannski rétt að taka það fram að BH var með sár á lærinu eftir vígtönn líka, ekki eftir mig samt! Kom í ljós að Leo gat ekki staðið upp. Hann var svona aumur í loppunni sinni. Hrun...

Breakthrough

Gott að færa það hér til bókar að Leo var í fyrsta sinn úti í gerði í allan dag með Ronju og Úlfi. Það gekk ljómandi vel og engir árekstrar. Rétt eftir hádegið heyrðist smá ýlfur og gelt í Leo. Ég rauk á fætur og kíkti út. Sá þá bara hann og Úlf standa og horfa út á götu við Leirutangann. Eftir að hafa horft á hann skoppa þarna aðeins og reyna hvað hann gat að láta grindverkið hverfa, áttaði ég mig á því að sennilega væri KEB að koma heim. Í því gekk drengurinn inn í þvottahús. Leo hélt áfram að reyna hvað hann gat að koma okkur hér inni í skilning um að hann vildi heilsa og fá sitt knús. Það gekki ekki nógu vel hjá honum. Hann uppskar aðeins fýlulegt NEI frá húsfreyjunni. Þetta endurtók sig klukkutíma seinna og ég spratt á fætur. Í þetta sinn var það KBB sem var svona áhugaverð. Hann linnti ekki látum fyrr en ég hvæsti á hann nokkrum sinnum. Þá skildi hann að þetta var frekar vonlaust. Það er er verulega svalt að horfa út í gerði og sjá þessa þrjá kjána okkar saman. Miklu skemmt...

Dugleg skotta

Litla drottningin kom heim áðan með einkunnir úr samræmdu prófunum. Og stóð sig svona afskaplega vel eins og alltaf. Raðeinkunnir hennar voru 94 og 99, mamman getur ekki verið nema ánægð með það. Hún er sem sagt ein af 10% hæstu á landinu í báðum fögum, stærðfræði og íslensku. Það var svo krúttað þegar hún kom heim áðan. Það heyrðist í henni frá götunni kveðja vinkonu sína. Þegar rödd hennar barst hér inn að utan reis Leo upp og kannaði svæðið. Svo gekk hann í átt að þvottahúsinu og rauk svo til þegar hún nálgaðist og tók á móti henni þegar hún opnaði hurðina :o) Honum fannst greinilega ekki leiðinlegt að fá hana heim ! Later

Æfingin skapar meistarann

Fór í fyrradag og æfði mig að skjóta. BH og Olga skunduðu með sínar byssur og æfðu sig líka. Þau eru nú öllu skárri en ég í þessu en ég er bjartsýn á að ná þessu hratt. Ég var ekki lengi að ná að staðsetja vopnið rétt á öxlina og átta mig á hvernig ég vil hafa þetta þannig að ég hitti kannski eitthvað. En ég hitti alls ekki allt. Fórum aftur í dag reynslunni ríkari og ögn ákveðnari. Ég held ég hafi plaffað í mark í hverju skoti, svona 95%. Skaut rúmlega 30 skotum. En þetta er víst haglariffill svo maður á ekki að miða mikið. Bara leiða og skjóta og hitta. Ég er ekki komin á þann stað í lífinu. Ég er enn að vanda mig að setja vopnið rétt á öxlina, þrýsta því ákveðið aftur og miða like craaazzzy - með annað augað lokað og alles. Mitt næsta verk er því að æfa að setja byssuna á réttan stað án þess að hugsa og reyna að hitta án þess að miða mikið og hafa bæði augun bara opin á meðan. Þetta hljómar allt brjálað einfalt en heilasellurnar mínar senda boðin voða hægt og ég þarf að æfa þett...

007 Licence to kill

Fór í gær með eiginmanninum og við völdum okkur sitthvorn haglarann - yup erum komin í hóp rednecks! Fórum svo til Sýslumanns þar sem útbúið var fyrir okkur leyfi til að kaupa gripina - í þríriti. Allt eftir kúnstarinnar reglum til að allt sé löglegt og ekkert vafasamt í gangi. Trítluðum í búðina og fengum að borga og brosa og taka herlegheitin með heim. Fór svo aftur í dag með eintak undirskrifað af seljanda til sýslumanns og fékk afhent skotvopnaleyfin okkar fínu. Leo hafði sett mark sitt á pappírana. Hann var í skottinu á bílnum, ég brá mér frá í smá stund og hann notaði tækifærið og dreif sig í mjúkt aftursætið til að hvíla sig. Þar voru pappírarnir sem ég var að passa að hafa slétta og fína. Hann búinn að setja gott loppufar á efra blaðið og svona aðeins krumpa þetta allt til. Ég gat ekki annað séð en að hann hafi lagt blessun sína yfir þetta. Hann er örugglega sáttur við hjálpartækin á veiðar. Viss um að hann telji sig færan um veiðarnar sjálfur, en ekki verra að hafa backup ...

Hressandi

Er ekki eins dugleg að drífa mig út að hlaupa núna eins og í sumar. En fer samt lágmark tvisvar í viku og það er alltaf jafn hrikalega hressandi þegar heim er komið aftur. Hljóp með Ronju og Úlfi síðast liðinn föstudag í öskrandi roki og úrhelli. Var ekki að nenna út en ákvað að vera Íslendingur og skellti mér í gallann. Það var ekki næstum eins slæmt eins og það leit út fyrir að verða. En aðalatriðið er að koma heim aftur og fara beint í heita sturtu. Brrr annars verður manni illa kalt. Var að skoppa með þau áðan í þessu líka frábæra veðri. Ekkert verra þó það sé aðeins kalt úti. Maður græjar sig bara í kisugallann og drífur sig af stað. Ég fer bara þessa standard fimm kílómetra. Spurning um að auka aðeins í ef ég læt verða af því að hlaupa markvisst. Það er á stefnuskránni :o) Annars er líka á stefnuskránni að klára göngupilsið sem ég er að prjóna. Ofursvalt og ég á bara eftir um þrjá cm, þá er ég búin. Geri ráð fyrir að geta þá notað kisu (coldgear) buxurnar mínar í gönguferðu...

Cat Woman on her kittens bike !

Hjól er hin mesta uppfinning. Mjög gott að notast við hjól þegar maður er með þrjá hunda á heimilinu sem þarf að hreyfa. Hljóp í gær með einn þeirra og nennti ekki að hlaupa með þau öll aftur núna. Hef ekki tíma eða orku til að sinna þeim ein á hlaupum. Sérstaklega þegar ég fæ mestu hreyfinguna því ekki kemst ég með þau öll í einu. Hætt við að rakkakvikindin myndu annað hvort a) ræða málin í einlægni með ekki svo fallegum afleiðingum, eða b) þau myndu ná mér niður á hnén svo magann og loks draga mig á nefinu áfram með ekki svo fallegum afleiðingum. Svo hjólið var notað með prýðis árangri og það fór ekki allur dagurinn í að hreyfa þau. Ronja og Úlfur drógu mig um 6-7 kílómetra í kringum bæinn. Þegar þau voru komin heim og út í gerði tók Leloo við og dró mig annan hring (ekki sömu leið) í kringum bæinn, 6-7 kílómetra. Má ekki minna vera. Nú geri ég ráð fyrir að þau verði sátt þar til í kvöld eða á morgun. Sé fram á bjartari tíma í hundamálum því BH er á leiðinni akkúrat núna yfir Atl...

Mjá

Ég smeygði mér í svörtu ofursvölu coldgear spandex hlaupabuxurnar, nýja anita toppinn, svarta spandex ofursvala hlírabolinn, svarta ofursvala drifit peysuna og malaði lágt er ég klæddi mig í nike bláa og hvíta jakkann yfir. Það var eina stílbrotið því ég fílaði mig eins og CatWoman í öllu svörtu og súperþröngu. Nú vantaði bara ipodinn og beislið um mittið - því var reddað - komin í sokkana og skóna. Úlfurinn kominn í beislið og við Leloo vorum ready út í myrkrið. Það þarf aðeins að ala upp í honum dráttareðlið... þ.e. að hann eigi að vinna þegar við erum saman á hlaupum eða á hljóli. Hann er dáldið á þefvaktinni ennþá þessi elska. Þarf að ná honum í að toga mig áfram - það vantar ekki kraftinn þegar eitthvað áhugavert er framundan. Hljóp þessa standard fimm kílómetra og líður vel á eftir - ekki að skemma að ég er búin með alla vinnu til að borga virðisaukann á morgun og ég get sofið róleg. Enn og aftur þarf ég að éta ofan í mig það sem ég hef áður fullyrt - það er opinbert - gell...

Gott teymi

Var að tala við BH i símann - hann á meginlandinu og ég á eyjunni fögru. Vorum að tala um úr og ég leit á mitt hérna á borðinu við tölvuna og sá að dagsetningin var 31. og spyr eiginmanninn þvi "er ekki fyrsti í dag?" Hann hélt að það væri á morgun og við ræddum það aðeins og hann sættist á að það væri fyrsti í dag. Á meðan var að ég gramsa í úrinu til að stilla dagsetninguna rétt. Hann spyr þá "er það ekki einhver dagur?" Ha segi ég, einhver dagur ? Nei er það... en hugsa 1. október og segi JÚ það er einmitt einhver dagur :o) Hann hélt ég væri að spyrja út af því að dagurinn væri spes... nei sagði ég - er bara að stilla úrið mitt :o) Gleymi alltaf þessum degi samt einhvernveginn. Það eru tuttugu ár síðan við trúlofuðum okkur. Það tók okkur aðrar þrjár mínútur að rifja upp hversu mörg ár væru liðin. Eina sem ég mundi var... var ég ekki 18 þá ? Var ég ekki 18 þegar við vorum á Mallorca ? Mundi það alla vega - sama ár og við fórum þangað. Svo við vorum sammála um að...

Spennandi verkefni

Að venja nýjan fullvaxinn, ógeldann, rakka á heimilið er góð skemmtun :o) Þau eru svo fyndin hérna. Þeim er haldið aðskildum innandyra, ekki að ástæðulausu. Búin að færa búrið hans Leloo hérna í holið. Hann hefur fengið að vera mest laus hérna í íbúðinni á meðan hin tvö eru úti eða inni í forstofu. Nú er ég að reyna að hafa hann aðeins í búrinu á meðan Ronja og Úlfur eru laus í kringum hann. Gengur merkilega vel finnst mér. Þau svona aðeins létu vita af sér hérna áðan, endaði þannig að ég lokaði þau aftur inni. Hleypti þeim svo út stuttu síðar og þau nenna ekki að skoða hann mikið né urra neitt. Slappa af hérna hjá mér frekar og láta hann eiga sig. Það er heilmikill sigur finnst mér. Öll pollróleg... svona eins og hægt er. Fer með þau út að ganga á eftir. SBK kemur með mér. Ekki hættandi á að vera ein með þrjá hunda sem gætu tekið upp á því að ræða málin í fullri alvöru. Alla vega ekki svona öfluga hunda. Í gær fór ég með Olgu og Rósu á Helgafellið. Gengum gilið í stað hefðbund...

Rakkarígur

Þetta verður áhugaverð vika. BH á leiðinni út og við að venja nýjan ársgamlan rakka á heimilið. Spennandi verkefni en jafnframt verulega krefjandi. Finndist betra að hafa BH hérna því þó ég telji mig nokkuð harða og fínan uppalanda þá virðist hann hafa betra vald á hundunum en ég á börnunum. Fínt jafnvægi hérna. Þegar ég stóð fyrst á milli rakkanna hérna á heimilinu, heimilinu sem Úlfur minn stjórnar (ef frá er talin Ronja sem á heiminn), þá fékk ég smjörþefinn af því að grennast um fullt á stuttum tíma. Svona svæðabrennsla. Ég stóð á milli þeirra, þeir á feita urrinu og sýndu allar sínar fallegu tennur á ekki svo fallegan hátt. Ég að hvæsa á þá og byrsta mig eitthvað þegar þessi yngri fyrir aftan mig urrar og geltir allt í einu, svo djúpt og ógnandi að mér dauðbrá. Lærið á mér fékk sjokk og ég hló taugaveiklunarhlátri og sagði að það minnkaði um helming úr hræðslu við að vera étið. Setti bara Úlfinn aftur í forstofuna og slakaði þar með á spennunni, þar til næst :o) Þetta kemu...

Stolið af fésinu...

“From time to time, people tell me, “lighten up, it’s just a dog”, or, “that’s a lot of money for just a dog”. They don’t understand the distance traveled, the time spent, or the costs involved for “just a dog”. Some of my proudest moments have come about with “just a dog”. Many hours have passed and my only company was “just a dog”, but I did not once feel slighted. Some of my saddest moments have been brought about by “just a dog” and in those days of darkness, the gentle touch of “just a dog” gave me comfort and reason to overcome the day. If you, too, think it’s “just a dog”, then you will probably understand phases like “just a friend”, “just a sunrise”, or “just a promise”. “Just a dog” brings into my life the very essence of friendship, trust, and pure unbridled joy. “Just a dog” brings out the compassion and patience that makes me a better person. Because of “just a dog” I will rise early, take long walks and look longingly to the future. So for me and folks like me, it’s not “...

Canicross

Tók þátt í Íslandsmeistarakeppni SHKÍ - hljóp fimm kílómetra á Þingvöllum í rigningarsudda. Mjög frískandi og svalandi. Ég bætti mig um tæpa mínútu... 25:01 er minn besti tími hingað til. Það dugði mér til að komast í fyrsta sætið og get ég því kallað mig Íslandsmeistara í fimm kílómetra canicross kvenna. Er nú bara nokkuð ánægð með það, fékk medalíu og bikar og alles - voða montin. BH tók þátt í tíu kílómetra canicross og vann karlaflokkinn með tímann 49:02 - svo við erum ansi lukkuleg með okkur hjónin núna. Hann tók þátt í dog-scootering í gær. Þá var hann á keðjulausu hjóli með tvo hunda. Varð í öðru sæti og sáttur við það. Annar hundurinn varð sár á grófu malbikinu og neitaði að fara lengra eftir fjóra kílómetra... svo hann kippti Hrímu sinni í fangið og hélt á henni, á hjólinu, næstu fjóra. Úlfur dró þau í mark. Svo þau voru dáldið svöl er þau renndu i mark. Fólki virðist umhugað um að spilla gleðinni fyrir okkur - bæði um helgina og á Mývatni. Finnst það frekar súrt því ég te...

gáta...

Hvað eiga þessar dagsetningar sameiginlegt : 31. júlí 2008, 1. janúar 2009 og 21 september 2011 ? Enginn ? Jú þessa daga mættu loðnir ferfætlingar í þetta hús með framtíðarbúsetu í huga :o) Þeir sem halda að við séum klikk, endanlega gengin af göflunum eða bara slétt út snarbiluð... vinsamlegast takið númer og farið í röðina. Þetta er minnsti gaurinn okkar... Svona lítur hann út núna - ekki svo lítill lengur... jafnvel stærri en Úlfur, en klárlega yngstur ! Svona lítur pakkið þá út :o)

Mýtl ?

Ligg hérna hangandi á netinu og aldrei þessu vant sofnaði BH á undan mér... Það er skemmst frá því að segja að hann hrýtur og mér finnst það hrikalega fyndið því nú er klárlega komið veiðileyfi á hann. Hef ansi oft fengið að sitja undir lélegu hrotugríni, en nú fær hann þetta í bakið. Og bara svo það sé á hreinu... Ég hrýt ekki, ég í mesta lagi mýtla ! Gnótt

Þessi fallegi dagur...

Það er fátt meira freistandi en að skríða undir teppi og horfa á góða mynd í sjónvarpinu í svona veðri. En fátt meira hressandi en að drífa sig út og ganga með ferfætlingana í svona frískandi haustveðri. Og það ætlum við hjónin einmitt að gera á eftir :o) KEB situr sveittur og lærir því það þarf að nota þann litla frítíma sem hann hefur vel. Og fjögur misstór próf framundan. Engin grið gefin í þessum skóla og þá ekki fimleikunum, svo það er eins gott að vera á tánum með þetta allt saman. Litla skottan hins vegar skellti sér í gær með frænku sinni upp á heiði og hjálpaði til við að smala í fyrsta sinn. Og að sjálfsögðu stóð drottningin sig bara vel eins og búist var við. Hún og Sóldís, farskjótinn hennar, voru gott teymi. Þau voru heppin í gær með veður. Erfitt að vera blautur og kaldur allann daginn á baki úti í móa. En í dag koma auka fötin og nestið sér sennilega vel. Nú eru þær að rétta frænkurnar ásamt helling af liði. Heyrðist á SBK að hún ætlaði að skipa bara fyrir og benda á þ...

Þetta smáa

Fyrir sex árum síðan var ákveðið að rífa niður snúrurnar hérna úti. Ég var ekki alveg kát með það en sættist á það því ég átti að fá nýjar strax. Það var verið að breyta aðeins við gaflinn á bílskúrnum. Leggja stétt í grjótið sem hafði verið sett þar af síðustu eigendum. Skil ekki þegar fólk setur svona grjót - ljótt og ömurlegt að ganga um þetta. Núna sex árum seinna var klárað að leggja stéttina, sett gras, minigolfbrautin sem BH smíðaði og ÚTISNÚRUR. Ég er búin að misnota þessar snúrur síðan þær komu. Finnst æði að nota svona þurrkveður og þvo allt upp úr þvottakörfunni. Tekur enga stund að þorna. Þegar BH er í útlöndum, sem var ansi oft hér áður, líður lengra á milli núna, þá reyni ég að þvo undirlökin af rúminu okkar og þannig. Gott að vera ekki í stressi hvort þetta þornar fyrir kvöldið eða ekki. En núna ákvað ég að þvo sængurnar líka. Tróð sænginni hans BH í vélina... erfitt að loka henni aftur - smá áhyggjur en ákvað að starta samt vélinni og vona það besta ! Og hvað gerir ...

Nýtt og spennó... eða ?

Það kom mér skemmtilega á óvart að lesa vel skrifaða grein inn á Spegill.is . Ég hef stundum lesið einhverjar svona greinar á bleikt.is, menn.is og jafnvel mbl.is og verð meira og minna fyrir vonbrigðum. Þær eru eitthvað svo innihaldsrýrar og óspennandi. Jafnvel illa þýddar þannig að væmna Ameríka skín í gegn. En þessi grein er nákvæmlega það sem ég hefði getað hugsað mér að skrifa sjálf. Hefði sennilega ekki komið þessu svona snyrtilega og skiljanlega frá mér en er svo sammála öllu sem kemur þarna fram. Later

Dauði Kauði

Vil bara koma því að - ég verð í rúminu á morgun. Þetta er búið að vera laaaangur dagur. Búin að keyra í allan dag, keyra jafnmikið og ég keyri á tveimur vikum venjulega. En þetta er búin að vera góður dagur, fyrir utan að ég byrjaði klukkan fimm í morgun á því að keyra BH til Keflavíkur í flug. Hann er farinn til Belgíu fram á laugardag, stuttur túr. Gekk við Stórhöfða í Hafnarfirði með Olgu og Rósu með hundana. Dísusskvísus, eigum við að ræða eitthvað hvað þessir togarar mínir eru öflugir ? Ég er með þokkalegt tak í lærunum og rassinum, ég sem fær aldrei harðsperrur eftir þolþjálfun og hlaup. Þetta voru alvöru styrktaræfingar. Eftir að hafa brunað heim og aðeins fengið mér að borða rauk ég aftur út og nú í Nauthólsvík. Hljóp fimm kílómetra með Olgu og Jökli, öll með hunda. Mínir togarar voru að vinna vinnuna sína og ég mátti hafa mig alla við. Ég hleyp hægar en bæði Olga og Jökull (alltaf síðust alls staðar) svo þau voru öflug mín tvö. Úlfur hafði sérstakan augastað á Hrímu sinni, ...

Klárir krakkar

KBB fékk frí í skólanum í dag og á morgun. Hún hélt í morgun sem leið lá í Háskólann í Reykjavík. Þar tóku aðstandendur Nýsköpunarkeppni grunnskólanema á móti henni og 39 öðrum snillingum. Þau voru valin úr hópi 1872 umsækjenda. Hennar uppfinning tengist hundahaldi, hvað annað ? Betrumbættur flexitaumur, svona útdraganlegur taumur fyrir þá sem ekki vita. Hún vill reyna að koma í veg fyrir að hundurinn kippist til þegar taumurinn er skyndilega búinn og hundurinn enn að hlaupa á fullu. Ég er ekki svona snjöll, en hef alltaf notað röddina bara og talað við kvikindið á ferðinni. Þegar ég veit að bandið er að verða búið kalla ég "Róóóleg" og þau eru farin að læra að betra er að hægja á sér þá. Annars notum við þessa tauma lítið. Það er ekki nema við BH séum löt og viljum leyfa þeim að hreyfa sig og þefa um allt á meðan við röltum, þá notum við þá. Það skapaðist skemmtileg umræða á Facebook síðunni hennar Alexöndru um þessa tauma um daginn. Skemmtilegast þótti mér að lesa athug...

fools rush in...

Hjónabandið er himneskt... en það eru þrumur og eldingar líka! Tuttuguogþrjú ár... það þarf mikla þolinmæði og þrautseigju og ýmislegt fleira til að halda út þetta lengi í nútíma þjóðfélagi. Og ég segi bara - geri aðrir betur. Þekki fólk á mínum aldri sem hefur haldið sambandi sínu blómlegu þetta lengi. Við erum ekki ein um að eiga svona langan tíma saman. Þetta er orðið þannig að við þurfum varla að tala saman lengur. Nánast lesum hugsanir, ekki alveg en næstum því. Síðast í gær í hópi fólks, man ekki hvað var rætt, en okkur datt það sama í hug á sama tíma og litum á hvort annað og glottum. Svona er þetta oft, ég sit og hugsa eitthvað við morgunverðarborðið og hann lítur á mig og segir nákvæmlega það sem ég er að hugsa, og öfugt. EN það er samt þannig að hugsanalestur er ekki mögulegur því þarf víst að tjá sig, gleymum því stundum... en rifjum það upp reglulega. Við erum bara nokkuð ánægð með sjálf okkur og horfum brött fram á veginn. Sátt við ávextina okkar og ferfætlingana lík...

People of Iceland...

be afraid - be very afraid ! Við hjónin erum komin með liecence to kill. Yup, skotvopnaleyfi og veiðikort. Búin að ná báðum prófum með stæl, yfir níu í þeim báðum. Það er náttúrulega mest ógnvekjandi samt að frúin hefur litla tilfinningu fyrir skotvopnum og ekki sérlega hittin með haglarann. Það stendur hins vegar til bóta, er skárri með riffilinn. Nú verður sportið að trítla á skotsvæði og æfa sig grimmt. Jafnvel skundað á rjúpu í vetur, hver veit. Fyndið þetta líf - glætan að ég hefði séð þetta fyrir. Í maí hefði ég sagt "já right" ef einhver hefði spáð þessu. En Vestfirðir eru magnað fyrirbrigði og það kemur enginn samur þaðan :o) Segja að lífið sé ævintýri... og ég ætla að taka þátt í því. Þá verður maður alltaf að prófa eitthvað nýtt og vera opinn fyrir nýjum hugmyndum. Og já þetta er nýtt fyrir mér. Þetta killer instinct er ekki í mínu blóði, er meira í því að bjarga því sem bjargað verður. Þannig að ég ætla að vera súper hittin áður en ég fer að skjóta eitthvað á...

Er alveg góð sko!

Ég var alveg að jafna mig á fótboltafýlunni í gærkvöldi þegar helv... golfþátturinn byrjaði - spurning hvort ég jafni mig endanlega í kvöld því ég verð ekki heima til að pirra mig á sjónvarpinu! Bara til að fyrirbyggja allan misskilning þá er ég ekki svona tæp þó sjónvarpsdagskráin sé fyrir neðan allar hellur og til að gera hvern mann snarbilaðan. Ég horfi mjög lítið á sjónvarp því ég hef verið svo upptekin við flest annað og er sjaldnast heima á kvöldin. Krakkarnir halda að ég sé flutt út. Ákvað að setja smá hugs á blað svona meðan ég man það. Hugsa þetta nefnilega oft. Vefir eins og bleikt.is og spegill.is. Ég reyndar fer ekki inn á þá vefi til að lesa greinar. Það er ekki nema ég aulist inn þangað frá fésinu af því einhver lækaði grein. Og það sem er að veltast í mér er eftirfarandi... Þar má finna grein um fjögurra ára barn í megrun og þá skoðun pistlahöfundar hversu sjúkt það er að útlitsdýrkun okkar fullorðna fólksins skuli smitast á þessi litlu kríli. Ég gæti ekki verið me...

Vetraráætlun

Hér er reglan og rútínan að fara í gang. KEB hóf skólagöngu sína í MR í gær. Ekki hægt að segja annað en að hann sé sáttur og að upphafið lofi góðu. Metnaðurinn í hámarki að gera vel i vetur. Hann stefnir á landsliðið í trompfimleikum. Á góða möguleika ef hnén á honum fara að lagast. Svo er stefnt á miðpróf í tónlistinni líka. Þannig að hann verður á kafi blessaður í vetur og spurning hvernig plön þróast. Litla drottningin okkar fór í morgun skólann, hennar fyrsti skóladagur. Held að henni hafi ekki líkað það svo illa. Hún ætlar að sjálfsögðu að spila í vetur og jafnvel athuga með körfuboltaæfingar, prófa þær. Skátarnir verða á dagskránni líka og ég yrði ekki hissa þó hún yrði reglulegur gestur í hesthúsinu. Svo henni ætti ekki að leiðast í vetur. Við BH erum byrjuð að undirbúa veturinn. Aðeins að hita hundana upp eftir sumarfrí. Þau eru búin að hafa það notalegt síðustu tvo mánuði. Ansi heitt til að gera eitthvað af viti með svona loðbolta. Ekki eins og þau klæði sig úr pelsinum. ...

Þrjúhundruð

300 kilometers. Okay, we admit: we’re impressed. Not that we have to tell you, but you’re a total champ. You distance demon you. Svona eru skilaboðin sem ég fæ frá Nike - verulega uppörvandi :o) Svo les maður "aðeins" 686 km á næsta level - búin með 314 km. Finnst þetta ekki eins uppörvandi... pínu langt í næsta lit. Lítur út fyrir að ég verði græn ansi lengi - vona að ég mygli ekki ! Later

Faster

Nýtt met í hvert sinn ? Ég er alveg til í það ! Hljóp 5 km áðan á 29:02. Nú er bara að komast niður fyrir 29 mínúturnar. Það ætti ekki að vera mikið mál því inni í þessum tíma er smá skítastopp fyrir fröken Ronju (ég fer enn bara á WC hérna heima). Ekki eitt stopp heldur tvö. Þannig að í raun hefði ég farið á undir 29... svo það hlýtur að koma næst. Kannski ég taki Úlfinn þá og BH getur hérað fyrir framan mig - getur ekki klikkað. Ekki hissa þó ég færi undir 20 mínúturnar þá. Þá er ég að gefa mér að BH geti hlaupið svo hratt, sem ég held nú að sé ekki raunin. Hann og Úlfur hlupu fyrir framan okkur Ronju og hún svona kikkaði inn öðru hvoru. Það munar slatta um það hvort maður sé togaður áfram eða þarf að skríða þetta sjálfur :o) Later

Stóísk ró

Búin að finna ástæðu þess að innri ró sé að aukast... Fann þetta á maraþon vef Íslandsbanka: "Samkvæmt einum kennara frá árinu 1860 þá var hreyfing mjög góð fyrir konur. Hún hjálpaði þeim við að byggja upp sterkt taugakerfi og koma í veg fyrir andlegan óróleika og hysteríu." Sumir vilja meina að ég sé snarbiluð í skapinu ennþá... en ég held í alvöru að hlaupin séu eitthvað að virka, kemur smám saman :o) Later

Sorg

Hér var flaggað í hálfa stöng í gær. Við fengum þær fréttir í gærmorgun að ung kona var bráðkvödd nóttina áður. Átta ára sonur hennar og fjögurra ára dóttir eiga verulega bágt núna og skilja ekki af hverju mamma þeirra er ekki lengur hjá þeim. Við skiljum það ekki heldur. Vorum minnt á það enn og aftur hversu hverfult lífið getur verið. Eina sem við getum gert er að reyna að njóta þess að vera til með börnunum okkar, fjölskyldu og vinum. Við erum sorgmædd og hugur okkar er hjá fjölskyldu hennar.

Andy Rooney from CBS 60 Minutes about women over forty

Women over 40 As I grow in age, I value women who are over 40 most of all. Here are just a few reasons why........ A woman over 40 will never wake you in the middle of the night to ask,"What are you thinking?" She doesn't care what you think. If a woman over 40 doesn't want to watch the game, she doesn't sit around whining about it. She does something she wants to do. And, it's usually something more interesting. Women over 40 are dignified. They seldom have a screaming match with you at the opera or in the middle of an expensive restaurant. Of course, if you deserve it, they won't hesitate to shoot you, if they think they can get away with it. Older women are generous with praise, often undeserved. They know what it's like to be unappreciated. Women get psychic as they age. You never have to confess your sins to a woman over 40. Once you get past a wrinkle or two, a woman over 40 is far sexier than her younger counterpart. Older women ...

JááMaður

My fastest run yet :o) Fimm kílómetrar á 29:19 - áður var my fastest run 29:49 mínútur. Svo þetta var nú bara nokkuð vel gert :o) Við erum jú að tala um konu sem ætlaði ALDREI ALDREI að hlaupa markvisst aftur! Nú stefni ég á að bæta tímann enn meira - spurning um að hafa gæsir og fleira svona spennó fyrir hundana stöðugt fyrir framan mig og þá er engin spurning um að tíminn verði stöðugt bættur. Later

Með frjálsri aðferð

Tengdó hefur reglulega sagt að það séu svik við börn að ala þau ekki upp. Ég hef verið sammála henni, þoli illa börn sem enginn hefur nennt að tjónka við og kenna smá mannasiði. Rósa vinkona mín staðfesti þessa skoðun margra er hún sagði mér dæmisögu úr matvöruverslun í Reykjavík. Vinkona Rósu stóð við kassa í verslun og beið róleg eftir að hún gæti sett sínar vörur á færibandið. Fyrir aftan hana stóð kona og barnið hennar. Krakkinn, svona um átta eða níu ára, var ekki svo rólegur að bíða eftir að röðin kæmi að þeim. Hann stóð við kerruna þeirra og renndi henni ítrekað á konuna fyrir framan í röðinni. Það vita sennilega flestir hversu óþægilegt það er að fá innkaupakerru á hælana. Konan bað krakkann um að hætta þessu, ekki einu sinni, ekki tvisvar, heldur oft. Á endanum bað hún mömmuna um að biðja krakkann um að hætta þessu, þetta væri vont. Því ekki var krakkakvikindið að gera það sem beðið var um. Konugreyið varð gjörsamlega kjaftstopp er mamman svaraði "Ég nota frjálst up...

Ammli

Einn lítill uppáhalds varð fjögurra ára 28. júlí s.l. Hann hélt upp á afmælið sitt í dag og bauð til veislu. Venju samkvæmt höfðu foreldrar hans undirbúið komu gesta vel. Sólin komin á sinn stað og skýin farin í frí og lognið ekkert að flýta sér. Borðstofuborðið svignaði undan kræsingunum og allir mættu í sínu fínasta pússi og gerðu veitingunum góð skil. Yndislegur dagur með fjörugu fólki og öflugu smáfólki. Í tilefni að þessu ætla ég að skrá niður skemmtileg samtöl við litla snáðann sem okkur þykir svo skemmtilegur. Um daginn kíktu hann og móðir hans ásamt lítilli systur í heimsókn. Þegar liðið var á heimsóknina og kvöldmatartími nálgaðist kom litli kúturinn og spurðu mömmu sína hvort hann mætti horfa á videó hjá Lóu. Við vinkonurnar vorum sammála um að það væri orðið of seint og til að dreifa huga hans bað mamman drenginn um að hringja í pabba sinn og athuga hvar hann væri staddur. Sem hann og gerði! AFD: Pabbi... má ég horfa á videó hjá Lóu ? HMS: Nei spurðu hvar hann er AFD...

Long time no... nothing !

Þegar líður svona langt frá því að maður tjáir sig er frá svo mörgu að segja að mann setur bara hljóðan. Vil samt bara koma því að að ég er orðin græn og fékk þessi skilaboð frá Nike+ í tilefni þess: "Congratulations on 250 kilometers. You’re among the die-hards now. That’s a feat worth bragging about. Our heartfelt congrats." Nú þarf ég aðeins að græja 747 km í safnið og þá næ ég á næsta stig og verð blá. SJÖHUNDRUÐFJÖRTÍUOGSJÖ FREAKING KÍLÓMETRA. Spurning um að gera grænan að sínum uppáhaldslit og láta þar við sitja. Já eða finna gott málefni og hlaupa í kringum grænu eyjuna og athuga hvort einhver nenni að fylgjast með því. Ég hljóp 9,5 km vikuna eftir að ég byrjaði að undirbúa að ná 8 km í einu skoti. Hljóp svo um 8 km tveimur dögum seinna og komst að því að 5 km er góð vegalengd fyrir mig. Ég verð voða þreytt annars dagana á eftir hlaupin og þá er tilgangnum ekki náð. Ætla að halda mig í kringum þessa fimm eitthvað áfram. En hljóp í gær rúma 6 km þrátt fyrir að h...

BííííB

Þá er níu vikna plani mínu lokið hér með. Fór og hitti fólk frá Sleðahundaklúbbnum áðan við Ánanaust. Við BH ákváðum að nota tækifærið og hlaupa með hundana í stað þess að línuskauta eða hjóla. Ég var bara með Ronju og BH tók Úlfinn. Hún togaði sæmilega á meðan hún fann smjörþefinn af þeim tveimur fyrir framan. En þegar dró meira í sundur með okkur var hún hundlöt og ég fékk að hafa fyrir þessu bara ein. Ég hljóp 6,5 km og fannst ég bara nokkuð góð og ánægð með mig. En þegar BH kom þá hafði hann hlaupið rúmlega átta km. Olga hafði svo skráð rúmlega níu á Nike+ svo ég sá að ég á enn langt í land. Er að spá í að loka bara á þau og hætta að sjá hvað þau eru klár. Ignorance is a bliss er sagt og ég er farin að skilja af hverju :o) Eða ég reyni bara að vera klók og halda áfram og vera ánægð með sjálfa mig. Held ég geri það bara, læt þau ýta mér áfram þó þau viti ekki af því. Er ekki að standa mig nógu vel á nammivaktinni. Líður varla sá dagur að ég smjatti ekki á einhverju. Er nokkuð dugleg...

Mrs Gump

Síðan 29. maí hef ég skokkað (með smá labbi) 100,44 km. Er bara nokkuð lukkuleg með það. Hljóp áðan 5,4 km, fór 6,27 með göngu fyrstu fimm mínúturnar. Er bara ánægð með þetta og held ótrauð áfram. Búin að finna mér súper flottar "hlaupabuxur" frá Nike. Verst að það er ekki selt hér, kallast Skapris ef ég man rétt. Eru svona þröngar ofurkúl buxur eins og maður sér alla í, með pilsi yfir. Yup, það er rétt, pils yfir. Svo mér og mínum kúlurassi líði betur. Vinn að því núna að panta mér eitt slíkt og láta bera fyrir mig yfir Atlantshafið. Finnst reyndar mjög fínt að hlaupa bara í mínum Puma íþróttabuxum. Finn ekkert að því, en það versnar í því þegar ég reyni að teygja eftir átökin. Þá límast þær við mig og ég þarf að hífa skálmarnar upp til að enda ekki á að rífa þær. Anyways komin í 5 kílómetrana sem var markmið sumarsins. Bara eitt hlaup eftir af þessu fyrsta prógrammi mínu. Næsta komið á borðið, búin að ákveða að það verða 8 km. Það er sex vikna áætlun en ég ætla að byrja þan...

Tvöföld í roðinu

Jæja þá er það staðfest. Hér býr ungur drengur sem fékk inngöngu í MR. Fengum að vita það í dag. Vorum enn fyrir vestan þegar hann fékk símtal frá Agnari vini sínum. Hann spurði hvort KEB hefði komist inn, Agnar flaug að sjálfsögðu inn. Við vorum ofurspennt að vita... en urðum að bíða þar til við kæmum heim. Við lögðum af stað kl. 12:30 og ég vildi að BH gæfi í og að ferðin tæki ekki meira en tvo tíma í Mos. Við komum heim klukkan að ganga níu... til að gera langa sögu stutta þá erum við alsæl að vera þó komin heim í dag. Það er Olgu og Halla að þakka og verður það seint fullþakkað, en við komum til með að gera okkar besta :o) Ferð vestur í næstu viku til að koma bílnum okkar heim líka - það sem hægt er að lenda í ævintýrum. Þegar fólk ákveður að leysa málin og gera það besta úr hlutunum þá gengur þetta allt saman upp. Það hjálpar líka að eiga góða vini sem eru ekki allt of stressaðir og eru tilbúnir í smá fórnir fyrir strandaglópa! Við erum þreytt en alsæl komin heim eftir fríið. Á ef...

Sól og sumar

Greinilegt að sá sem yfir mér vakir hefur vitað hvað hann var að gera þegar ég klúðraði sumarfrísdagskránni þarna í lok apríl. Ætlaði í sumarfrí um miðjan júlí og klúðraði bókuninni um mánuð í fljótfærni. BH tók sem betur fer eftir því að staðfestingin sagði júní en ekki júlí. Þannig að við misstum ekki af húsinu í einhverju meðvitundarleysi. Hér er búið að vera svo gott að vera og góður félagsskapur. Sól á hverjum einasta degi alla vikuna. Í fyrsta sinn í dag sést ský á himni en ekki nóg til að pirra neinn. Spánn hvað ? Hér eru hvítar strendur, sól... smá íslenskt logn, fer heldur hratt yfir á köflum og hitinn ekki kannski í hámarki. En við víkingarnir og valkyrjurnar erum ekki að láta svoleiðis smámuni á okkur fá. Öll orðin útitekin komin með lit á kroppinn. Pollurinn stendur alveg fyrir sínu og hefur verið prófaður oftar en einu sinni. Sumarhús í Reykjafirði er toppurinn á tilverunni. Hér er svo gott að vera að m.a.s. unglingurinn vill flytja hingað. Öllum líður súper vel eins og al...

On the road

KBB var eitthvað að dissa bróður sinn og hafði efasemdir um að foreldrarnir myndu höndla tónlistarval hans í bílinn. Þá kom þetta samtal: KEB: Já einmitt... ég hlusta á dauðrokk og er EMO og sker mig... sérðu ekki ? LBK: Kjartan minn er eitthvað sem þú þarft að segja okkur sonur ? KEB: Já ég er líka hommi ! Nú liggur mamman dauðrotuð og pabbinn slær hana ítrekað í andlitið... með ilmsalt við nefið á henni og ekkert virkar ! Later

Einu sinni skáti...

Til hamingju með daginn Íslendingar. Vona að allir séu að njóta hans jafnvel og ég. Vaknaði 5:30 í morgun til að eiga laaaangan og góðan dag. Very busy today og búin að áorka miklu og á slatta eftir ennþá. Gaf mér samt tíma til að sjá skrúðgönguna hér í Mos. Skyldumæting því heimasætan, einn af duglegu skátum landsins, er fánaberi nú eins og áður. Ég bakka ekki með það, hún er klárlega fallegasti fánaberi Íslands, ég er gjörsamlega hlutlaus að sjálfsögðu. Tók fullt af myndum og dreif mig svo heim til að klára það sem er á ToDo listanum fyrir klukkan fimm. Eins gott að það takist. Drengirnir og hundarnir skelltu sér á Seltjarnarnesið. Hundgreyin í fullri vinnu á Þjóðhátíðardaginn. Draga vagninn fína ásamt fleiri loðboltum og bjóða krökkum far smá spotta. Ánægð með fólkið á Seltjarnarnesi að gera hunda og hundasport sýnilegt á meðan önnur sveitafélög (og DV) keppast við að agnúast út í þessi grey og magna upp allt sem miður fer. Hér í Mos hefur enginn amast við hundum á 17. júní eða öðru...

Penelopa prinsessa

Eru ekki örugglega partý og veisluhöld framundan hjá öllum sem ég þekki... og mér boðið ? Var að endurheimta heilan fataskáp af glötuðum fötum. Það er ekkert smá gaman :o) Og allt föt sem eru klassík (í mínum huga alla vega) og í fínu deildinni. Búin að losa mig við allt hitt draslið fyrir löngu. Fór í brúðkaup í dag hjá fallegustu brúðhjónum dagsins - svo gaman í brúðkaupum. Svo fallegt fólk alltaf og glæsilegt sem er að gifta sig. Er alla vikuna og jafnvel lengur búin að velta því fyrir mér í hverju ég ætti eiginlega að vera. Mjög dæmigerð kona. Á bara EKKERT til að vera í. Passa ekki í neitt af fínu fötunum mínum lengur. þrjátíu mínútum fyrir herlegheitin og eftir sturtuna réðist ég loks í fataskápinn. Andaði djúpt þrisvar sinnum og opnaði svo úttroðinn skápinn af ENGU. Reif út það sem ég gæti hugsað mér... líka það sem er orðið of lítið á mig síðustu tvö árin. Þegar rúmið var orðið fullt af fötum fór ég að hlæja og náði mér í myndavél. Rúmið var fullt af engu sem ég átti til að ver...

fu**ing fabulous

Þrjátíuogátt ár að baki og ég ennþá svona hrikalega hress og gordjöss - hvað gæti það verið betra. Vaknaði í morgun með frumburðinum kl. 5:30 og við röltum með blöðin í lúgurnar hjá nágrönnum okkar. Verulega hressandi. Það sem við tókum helst eftir, fyrir utan kalt haustloftið, var Esjan. Hún var ekki hvít niður í miðjar hlíðar, nei... hún var alhvít :o) Okkur fannst þetta bara svalt ! Ég ætla að klára viku sex í skokkinu mínu á eftir - það verður áfangi :o) Svo verður farið á línuskauta í kvöld. Ég heimtaði afmælisís eftir skautana, maður verður að notfæra sér það að eiga daginn. Þrátt fyrir mikinn dugnað í hollustunni þessa viku verður sukkað í dag. Kanilsnúðar aLa Lilja um morguninn, kaka í kvöld eftir matinn og svo ís eftir skautana. Nett verið að bæta sér upp sykurtapið. Venjan er að eyða deginum í sumarblómaleiðangur og að koma þeim niður í garðinum. Held bara að það bíði þar til um helgina! Later

Geeeeiiiiisp

Ahhh kominn júní :o) Sumarið formlega hafið. Við hjónin héldum upp á það með því að vakna klukkan fimm í morgun. Héldum út í góða veðrið og bárum út fyrir soninn sem er í útskriftarferð með 10. bekk Lágafellsskóla. Mbl ákvað að skella á okkur aldreifingu svona aukalega á meðan blaðburðarbarnið skemmtir sér í Skagafirði. Þetta var hressandi svona þegar við vorum komin út. En vorum ansi þreytt og hefðum kosið að sofa lengur. Sérstaklega í ljósi þess að við fórum ekki að sofa fyrr en um eittleytið í nótt. Gláptum á "The Right Stuff" aftur. Jökull kom og horfði með okkur. Allt myrkvað og myndvarpinn virkjaður - svona eins og í "gamla daga" :o) Myndin eldist vel og var ekki leiðinlegt að horfa á hana aftur. En ég var alveg búin að gleyma hversu löng hún er. Tók eftir frétt fyrir einhverju síðan (man ekki alveg) þess efnis að hlerinn hjá Gus Grissom (Virgil Ivan Grissom) hefði sprungið út vegna bilana í búnaði. Hann hafði ekki opnað hlerann of snemma eins og áður var jafn...

klikkar ekki

Hér er aldrei dull moment. Fórum með Jökli smá hring áðan. Hann var á línuskautum með hundana sína... ég var á hjóli og bjargaði honum á miðri leið frá Zizou sem var í stuði. BH var líka á línuskautum með hundana okkar. Allir lifðu af en það stóð tæpt um tíma. Ég skil ekki hvað þau eru öll dugleg að standa í lappirnar þegar hraðinn verður sem mestur. Ég missi jafnvægið við tilhugsunina :o/ Er við komum tilbaka smjöttuðum við á muffins kökunum sem við KBB hristum fram úr ermunum í kvöld. MMMM muffins. Á miðnætti var Kjartani boðið að koma fram og fá sér ásamt Anítu sinni. Ég setti diska hjá þeim og glös en klikkaði eitthvað á mjólkinni í glösin. KEB: mamma... ertu ekki að gleyma einhverju ? LBK: hmm? KEB: Mjólkin maður, hvar er mjólkin ? LBK: ertu ekki með fætur... geturðu ekki gengið að ísskápnum ? KEB: Nei fæturnir eru alveg ónýtir (og svo glotti hann bara) LBK: á ég að hringja á vælubílinn... og athuga hvort hann komi með hjólastól ? KEB: (hlæjandi) já og geturðu pantað pizzu í leiði...

Today

Við BH ætluðum upphaflega að gifta okkur 28. maí. Vorum búin að græja allt, prestinn, kirkju, organista, ljósmyndara, sal og allt heila klabbið... við vorum bara ready. Svo þegar BH hringdi í prestinn nokkru seinna bara til að staðfesta allt saman, örugglega í mars eða eitthvað, kom i ljós að hann upptekinn þennan dag. Hann hafði ekki fengið símanúmerið okkar og gat ekki látið okkur vita. Smá panic en þetta blessaðist allt saman - eina sem ekki var eins og upphaflega var áætlað var ljósmyndarinn - við skiptum um ljósmyndara. Í dag eru níu ár síðan ég lagðist undir hnífinn. Fyrir níu árum síðan á þessum tíma var ég svo gjörsamlega að míga í brækurnar á vöknununardeild Landsspítalans Háskólasjúkrahúsi við Hringbraut. Dísusskvísus... svo rosalega að ég man það enn eins og það hafi verið í gær. Eftir rúmlega fjögurra tíma aðgerð þurfti ég að vera á vöknun í u.þ.b. tíu klukkustundir. Og það er ekkert salerni á deildinni. Fólk er venjulega ekki svona lengi á deildinni. Þarna kemur fólk eftir...

Góð skemmtun!

Næstum hálfnuð í skokkprógramminu. Og ekki búin að gefast upp ennþá. Fjórar vikur búnar og fimm eftir. Vældi á mánudaginn yfir að ég væri farin að fá sinadrátt í fæturna aftur. Þeir sem halda því fram að svoleiðis dráttur sé betri en enginn... þá er ég ekki sammála. Þvílíki ógeðs viðbjóðurinn sem þessi sinadráttur getur verið, kálfarnir og svo lærin upp í nára. Þetta er svo vont. Neita samt að gefast upp og gúgglaði slatta til að athuga hvort ég geti ekki bætt eitthvað til að laga þetta kannski. Og fann það út að ég get drukkið meira vatn og hef aukið það aðeins. Gleymi því samt oft, en drekk samt alltaf slatta vatn hvort sem er. Svo kom í ljós að ef kalkið er í sultu þá getur það aukið líkur á sinadrætti. Ég tek ráðlagðan dagskammt á hverjum degi... það geri ég af illri nauðsyn því það er víst eitthvað lítið eftir af mínum kalk-kirtlum eftir alla skurðina. EEeeen svo kom í ljós að magnesíum magnið þarf að vera rétt líka og ráðlegt að taka það líka á móti kalkinu. Finnst ótrúlegt ef þa...

Spuglerar !

Ég er svona að velta því fyrir mér hvaða dagur er í dag ? Er ennþá maí ? Ó, hélt kannski að ég hefði sofnað og fallið í dá og sofið af mér sumarið... lítur þannig út :o/ Later

Pretty in pink

Vika tvö hafin hjá mér og LaVoffs. Reyndar verður að viðurkennast að þau gætu auðveldlega hlaupið yfir tuttugu kílómetra án þess að blása úr nös. Það er þá bara greyið sem er að rembast við að komast í fimm kílómetrana án þess að deyja drottni sínum á miðri leið. Við erum orðin nokkuð gott lið. Þau eru alveg búin að læra þetta - ryðjast ekki á stökkið um leið og ég gef þeim merki um að hraða á sér. Fara bara á trítlið svo þau togi mig ekki beint á andlitið. Hver segir að Husky geti ekki lært? Fórum saman í kvöld, lagði af stað um kl. 21:45. Prógrammið fína segir að maður eigi að vera í tuttugu mínútur eftir að hafa gengið í fimm mínútur. Það finnst okkur félögunum heldur lítið og því er ég úti í u.þ.b. 45 mínútur að hlaupa og ganga til skiptis - má ekki minna vera. Viss um að Lavoffs myndi hlæja að mér ef við værum styttra. Þetta gengur fínt, hef ekki fengið illt í fæturna ennþá. Lærin góð bara þótt ótrúlegt megi virðast, eða mér finnst það ótrúlegt. Þori eiginlega ekki að trúa því enn...

Running woman!

Af því allir hafa beðið spenntir eftir fréttum að hlaupagikknum þá tilkynnist það hér með að ég og loðnu hlaupafélagarnir mínir tókum æfingu tvö í dag samkvæmt áætlun. Mér er það sönn ánægja að taka það fram að þetta er EKKERT MÁL. Frábært að hafa svona gáfulega áætlun sem heldur aftur af manni svo maður sprengi sig ekki. Auðvitað er eina málið að byggja sig upp í rólegheitum. En ég veit að ég er að hlaupa aðeins lengur en prógrammið segir til um og er líka að lengja það í restina til að ná heim með því að hlaupa jafnt og þétt :o) Nú er bara að sjá hvort fæturnir á mér verði jafn glaðir með uppátækið, eða kvarti sáran. Sjáum til - næsta run á föstudaginn :o) Það má líka segja frá því að loðboltarnir eiga það til að vera full áhugasamir þegar ég hraða aðeins á mér. Hjá þeim er bara trítl gír og allt á fullt gír. Þetta er ágætis æfing fyrir okkur vinina að stilla saman strengi okkar - og ekki veitir af. Sérstaklega með Úlfinn, ég held í alvöru að kvikindið sé heyrnarlaust eða með svona A...

9 vikur

Komin með plan... hlaupaplan. Náði mér í eitthvað á netinu sem á að koma mér upp úr sófanum (var komin úr honum fyrir löngu) í fimm kílómetrana á hlaupum. Þetta er níu vikna plan. Svo eftir níu vikur vonast ég til að geta skokkað fimm kílómetra á hálftíma - án þess að blása úr nös... já eða alla vega komist heim aftur. Stefni ekkert í maraþon eða neitt slíkt. Langar bara að ná mér í þol og styrk til að geta hlaupið auðveldlega með hundunum, og auðvitað tek ég þau með mér þessar níu vikur. Maður þarf að geta hlaupið með sleðum og saccovögnum og hjólum og á eftir hundum og á línuskautum og þetta helsta :o) Er orðin nokkuð vön að hlaupa þetta en hef lítið úthald og nú verður bætt úr því markvisst. Búin að kaupa skóna, sem eru súper, búin að prófa þá... sem gekk vel en var ekki mjög markvisst hlaup. Núna er ég búin að hlaupa eftir þessari áætlun fyrsta skiptið... nú er bara að halda áfram. Fer aftur á miðvikudaginn og svo föstudaginn, þrisvar í viku. Held að það sé alveg nóg fyrir mig því ...

Ammali

Væmin í dag - Til hamingju með daginn elskulegi eiginmaður :o) Vil ekki eyðileggja daginn og syngja þetta fyrir þig... en spila þetta kannski í kvöld í staðinn :o) Sérðu ekki við fæddumst til að standa hlið við hlið og halda út á veginn saman og líta aldrei við. Með þér vil ég verða gömul og ganga lífsins veg með þér er líf mitt ríkara - með þér er ég bara ég. Menn segja ég sé breyttur og syngi um börnin og þig ég syng um það sem skiptir máli aðeins fyrir mig. Eitt mátt þú vita - ég elska þig meira en lífið sjálft ég trúi án þín mitt líf væri hvorki heilt né hálft Með þér er vorið yndislegt og sumarið dýrðin ein. Með þér er haustið göngutúr og ævintýri undir stein. Með þér er veturinn kertaljós koss og stök rós. (Lag og texti: Bubbi Morthens) Later