Greinilegt að sá sem yfir mér vakir hefur vitað hvað hann var að gera þegar ég klúðraði sumarfrísdagskránni þarna í lok apríl. Ætlaði í sumarfrí um miðjan júlí og klúðraði bókuninni um mánuð í fljótfærni. BH tók sem betur fer eftir því að staðfestingin sagði júní en ekki júlí. Þannig að við misstum ekki af húsinu í einhverju meðvitundarleysi.
Hér er búið að vera svo gott að vera og góður félagsskapur. Sól á hverjum einasta degi alla vikuna. Í fyrsta sinn í dag sést ský á himni en ekki nóg til að pirra neinn. Spánn hvað ? Hér eru hvítar strendur, sól... smá íslenskt logn, fer heldur hratt yfir á köflum og hitinn ekki kannski í hámarki. En við víkingarnir og valkyrjurnar erum ekki að láta svoleiðis smámuni á okkur fá. Öll orðin útitekin komin með lit á kroppinn.
Pollurinn stendur alveg fyrir sínu og hefur verið prófaður oftar en einu sinni. Sumarhús í Reykjafirði er toppurinn á tilverunni. Hér er svo gott að vera að m.a.s. unglingurinn vill flytja hingað. Öllum líður súper vel eins og alltaf áður þegar við fjölskyldan aulumst í frí saman og slöppum af.
Smá skuggi í dag... BH var að því kominn að skjóta tíkina, en það slapp og hún fær að lifa. Hún er músin okkar þrátt fyrir allt... meira rotta stundum. Henni var treystandi til að þefa uppi rollur í rollulausum firði. Það var þeim til lífs að hún truflaðist aðeins þegar hún hljóp af leið til að eltast við fugl. Þá náði BH henni eftir að hafa hlaupið ansi laaaangt á eftir henni. Þannig að næst, já næst, þegar farið verður að Arnarstapa þá verður Ronju ekki sleppt lausri. Það má geta þess að hún tók bara strikið upp úr víkinni um leið og henni var sleppt lausri. Hin þrjú, Rökkva, Hríma og Úlfur, voru alveg spök og byrjuðu á að busla aðeins í sjónum og snusa í kringum sig. Vottaði ekki fyrir því að þau væru að nenna að eltast við rollukvikindi... eða að þau einu sinni vissu af þeim neins staðar nálægt. Enda voru þær ekkert nálægt. Helv... tíkin.
Later

Ummæli