Fara í aðalinnihald

Tvöföld í roðinu

Jæja þá er það staðfest. Hér býr ungur drengur sem fékk inngöngu í MR. Fengum að vita það í dag. Vorum enn fyrir vestan þegar hann fékk símtal frá Agnari vini sínum. Hann spurði hvort KEB hefði komist inn, Agnar flaug að sjálfsögðu inn. Við vorum ofurspennt að vita... en urðum að bíða þar til við kæmum heim. Við lögðum af stað kl. 12:30 og ég vildi að BH gæfi í og að ferðin tæki ekki meira en tvo tíma í Mos.

Við komum heim klukkan að ganga níu... til að gera langa sögu stutta þá erum við alsæl að vera þó komin heim í dag. Það er Olgu og Halla að þakka og verður það seint fullþakkað, en við komum til með að gera okkar besta :o)

Ferð vestur í næstu viku til að koma bílnum okkar heim líka - það sem hægt er að lenda í ævintýrum. Þegar fólk ákveður að leysa málin og gera það besta úr hlutunum þá gengur þetta allt saman upp. Það hjálpar líka að eiga góða vini sem eru ekki allt of stressaðir og eru tilbúnir í smá fórnir fyrir strandaglópa!

Við erum þreytt en alsæl komin heim eftir fríið. Á eftir að skrifa nokkrar línur hérna og jafnvel henda inn myndum. Þetta var lyginni líkast, sól og heiðskírt hvern einasta dag. Ströndin, pollurinn, bústaðurinn, heiti potturinn, landslagið... við áttum svo góða viku, var ég búin að segja það ? Ekki má gleyma félagsskapnum, hann verður ekki betri, það er á hreinu!

Það var ekkert að skemma heimkomuna að sjá (það sem við vorum nokkuð viss með) að drengurinn hafi komist í þann skóla sem hann helst kaus sjálfur. Mamman auðvitað stolt af duglegum dreng. Margir glotta sennilega þekkjandi þessa mömmu. Hún hefur nú ekkert talað mikið fyrir svona snobbskólum í gegnum tíðina. En getur ekki annað núna en verið pínu montin af stráknum!

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...