Þrjátíuogátt ár að baki og ég ennþá svona hrikalega hress og gordjöss - hvað gæti það verið betra.
Vaknaði í morgun með frumburðinum kl. 5:30 og við röltum með blöðin í lúgurnar hjá nágrönnum okkar. Verulega hressandi. Það sem við tókum helst eftir, fyrir utan kalt haustloftið, var Esjan. Hún var ekki hvít niður í miðjar hlíðar, nei... hún var alhvít :o) Okkur fannst þetta bara svalt !
Ég ætla að klára viku sex í skokkinu mínu á eftir - það verður áfangi :o) Svo verður farið á línuskauta í kvöld. Ég heimtaði afmælisís eftir skautana, maður verður að notfæra sér það að eiga daginn. Þrátt fyrir mikinn dugnað í hollustunni þessa viku verður sukkað í dag. Kanilsnúðar aLa Lilja um morguninn, kaka í kvöld eftir matinn og svo ís eftir skautana. Nett verið að bæta sér upp sykurtapið.
Venjan er að eyða deginum í sumarblómaleiðangur og að koma þeim niður í garðinum. Held bara að það bíði þar til um helgina!
Later

Ummæli