Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá mars, 2013

G-Shocked

Þegar við KBB förum saman í bæinn að því tilefni að hressa uppá fataskápinn hennar getum við sjaldnast verið alveg sammála um hvað hentar best. Nýjasta dæmið er fermingarkjóllinn hennar. Ef ég hefði fengið að ráða hefði ég valið annan. Hennar var samt afskaplega fallegur og þar sem hún þarf að klæðast honum, réði hún að sjálfsögðu - eins og alltaf. Hennar föt hennar val :) Var í Skorradalnum í gær og við kvöldverðarborðið sit ég alltaf við hlið móður minnar... við eigum öll okkar sæti - aldrei neitt vez. Mamma: Er þetta eitthvað sérstakt... gerir þetta eitthvað ? (bendir að mér) Ég: Ha... hvað... úrið ? Þetta er G-Shock, voðalega fínt skoh :) Mamma: já en segir þetta þér eitthvað meira ? Meira en hvað klukkan er ? Hún veit sem er að ég á kafaraúr sem ég hef notað... og nota enn til daglegs brúks - til að vita hvað klukkan er. Ég: neiii eða jú segir mér líka hvaða dagsetning er hahahaha :) Mamma: Þetta er nú ekkert voðalega kvenlegt ! Við mæðgur ekki alltaf verið sammála he...

pirrud.is

Ég verð stundum frekar slöpp í skapinu við að lesa fréttir - svona eins og á þessum tíma árs þegar ég leggst í þunglyndi rétt á meðan ég klára skattskýrsluna - maður þarf í alvöru að spá í alls konar hluti. T.d. - eiga konur í alvöru að láta það bara yfir sig ganga að láta káfa á rassinum á sér ? Og þá brjóstunum líka... væri ekki bara fínt að þær hætti að ganga í brók til að sveittir ógeðskarlar eigi auðveldari aðgang með gráðuga puttana á sér ? Svona fréttir geta eyðilagt fyrir manni daginn - en líka orðið til þess að maður fer að hugsa "hvað myndi ég gera ?" Vitandi það að ég verð kærð og sakfelld (veit þetta var í Svíþjóð) fyrir að verjast svona yfirgangi. Æ látið ekki svona - bojswillbíbojs - hvaða hvaða, voðalegt stress er þetta ! Ég hugsaði sem svo... sennilega er best að grípa þéttingsfast - og aðeins betur - um gaurinn miðjan og herða svo vel að, mjög vel. Kremja bara eins og maður ætli að sprengja vínber. Viss um að þá verði máli fávitans gegn konunni (sem ...

Hálfnað verk...

Hef stundum haldið því fram að börnin mín séu eingetin og ég sé sjálfstæð móðir með góða fjárhagsaðstoð... kannski pínu ýkt og ósanngjarnt í garð föður þeirra - en ég hef samt látið hafa þetta eftir mér oftar en einu sinni. Nú eru unglingarnir mínir hjá ömmu sinni og afa í Skorradalnum... hver myndi trúa því að svo stálpuð börn bíði spennt eins og þegar þau voru lítil eftir að vera sóttt til að fara í sveitina :) Mér finnst það frábært. Við hjónin því ein í kotinu... leiðrétting, ég er ein í kotinu. Karlinn fór á fund... í dag... Föstudaginn langa. Sennilega finnst honum geðveikt að fá svo langan dag til að græja og gera í vinnunni :) Ég sit því hér við eldhúsborðið og hleð í mig orku til að drífa mig svo út með LaVoffs og hlaupa nokkra kílómetra. Byrjaði á að smjalla á páskaeggi og innihaldi þess á meðan ég beið eftir að vatnið hitnaði í teið mitt og á meðan beyglan var ristuð - nóg af orku :) Svo sameinumst við fjölskyldan fljótlega og eigum góða páska saman - eftir sprikl móðu...

Yndislegur dagur

Fallega dóttir mín staðfesti skírnina sína í gær - allt mannfólkið á þessu heimili hefur því látið ferma sig. Hún var glæsileg daman í fína kjólnum sínum með hárið vel græjað. Við mættum heldur seint í kirkjuna til að taka frá bekki - enduðum á 6 og 7 bekk... ekki mikið fleiri bekkir í kirkjunni. Kom ekki að sök þar sem hún sat í fremstu sætaröð  og við gátum séð hana allan tímann :) Mamman var orðin frekar svona stressuð á tíma um morgunin (fermingin kl. 10:30). Feðgarnir læddust með veggjum og vonuðu að drekinn hvæsti ekki í þeirra átt. Mamman ekki upp á sitt besta á morgnana - hvað þá þegar hún upplifir sig tæpa á tíma og heimilifólkinu bregst listin að lesa hugsanir... þetta getur skapað smá spennu. En þetta gekk nú  allt saman - KEB var sendur upp í kirkju til að taka frá bekki á meðan mamman klæddi sig - Ég rauk svo út til að vera honum innan handar, honum leið ekki vel með þetta hlutverk. Við sátum þarna mæðginin á sitthvorum bekknum til að taka frá sæti fyrir okkar...

That little extra makes a different

Þegar ég las þetta fyrst - fyrir mörgum árum síðan - þá hló ég svo mikið að ég var enn að hlæja mörgum dögum seinna. Og svo í gegnum árin hef ég glott reglulega þegar ég rifja þetta upp. Ef svo ólíklega vill til að einhver hafi ekki heyrt þessa stórkostlegu sögu... here it is : I was due for an appointment with the gynecologist later in the week. Early one morning, I received a call from the doctor’s office to tell me that I had been rescheduled for that morning at 9:30 am. I had only just packed everyone off to work and school, and it was already around 8:45am. The trip to his office took about 35 minutes, so I didn’t have any time to spare. As most women do, I like to take a little extra effort over hygiene when making such visits, but this time I wasn’t going to be able to make the full effort. So, I rushed upstairs, threw off my pajamas, wet the washcloth that was sitting next to the sink, and gave myself a quick wash in that area to make sure I was at least presentab...

So ready

Ferming á sunnudaginn - Pálmasunnudagur - Þó húsið verði í kleinu, ryk á einhverjum myndum eða mublum, styttur og drasl kannski aðeins úr skorðum og ekki alveg allt eins og ég ætlaði upphaflega - þá verð ég alla vega tilbúin... Sjáumst á sunnudaginn - ég verð þessi með glottið og nokk sama þó eitthvað fari úrskeiðis. Þið komið með góða skapið og stóra brosið og þetta verður skemmtilegt :) Until then

Mont

Langaði bara að minna á að ég og minn awesome ass erum enn að hlaupa. Tók stöðumat í Janúar... átta vikur síðan... og svo aftur núna.  Stífluhringurinn í Árbænum er 2,7 km ca og ég hljóp tvo svoleiðis - bæting um eina og hálfa mínútu :) Og ég sem hélt að ég hefði ekkert bætt mig því dagsformið var ekki gott. Svo ég er bara sátt við þetta og held ótrauð áfram og vona að ég bæti mig bara enn meira fram á sumarið :) Og já fermingarundirbúningurinn gengur... já hann gengur :/ Allt að smella - litla dýrið fermist alla vega, hvort sem ég verð ready eða ekki ! Later

Little voice

Já nei til að koma í veg fyrir allan misskilning þá er ég ekki söngfugl ! Um daginn var myndin Little voice á RUV - það var þýtt Taktu lagið Lóa . Ekkert gæti verið fjær mér en að geta sungið. Gjörsamlega laglaus, taktlaus og röddin er hræðileg... tala nú ekki um ef frúin er þreytt eða búin að tala hátt og mikið í dálítinn tíma, t.d. inni á háværum skemmtistöðum. Það er þannig í alvöru... no joke - ég verð þreytt í röddinni. Ástæðan er einföld - tvær stórar aðgerðir á hálsinn hafa áhrif, fyrri aðgerðin þannig að ég þakka guði fyrir þolinmæði skurðlæknisins sem var sekúndur frá því að klippa á raddböndin til að taka æxli sem var pikkfast og erfitt að ná. Vaknaði eftir seinni aðgerðina raddlaus - vitiði hvað það er erfitt ? Að geta ekki talað almennilega ! Það er hræðilegt að vera með máttlausa rödd, óþolinmæði mín náði nýjum hæðum er ég kjökraði setningunum út úr mér - ekki sjaldan sem BH spurði mig í símann hvort ég væri að gráta! Sennilega óþolinmæði minni að þakka að ég fékk röd...

Aðeins að flýta sér...

Þó þú verðir doktor í læknisvísindum er ekki endilega víst að þú hafir náð fullu valdi á íslenskunni... eða þú gætir þurft að flýta þér helst til mikið... eða jafnvel líklegt að þú takir langar vaktir og verðir vansvefta og þreyttur - hver sem ástæðan er, geta læðst snilldarsetningar frá þessum sprenglærðu snillingum inn í í læknaskýrslur. Mæli með þessari lesningu - ég gat hlegið upphátt :) Tekið orðrétt úr alvöru læknaskýrslum á Landspítalanum. - Að höfðu samræði við lækni féllst hann á að koma sjálfviljugur inn... - Á öðrum degi var hnéð betra og á þriðja degi var það alveg horfið... - Daginn fyrir innlögn borðaði hún kvöldmat á eðlilegan hátt með kjötbollum… - Eðlileg augnskoðun fyrir utan sérkennilegt andlitsfall….. - Eftir það var hún í samkvæmi… - Fékk vægan verk undir morgunsárið… - Hún hefur þroskast eðlilega framan til… - Hún rann til á svelli og virðist að lappirnar á henni hafi farið í sitt hvora áttina í byrjun desember…- -Húðin var rök og þurr… - Misnotaði áf...

Þú skalt ekki...

Hér sátu þær dóttir mín og Sunna, vinkona hennar, að hlýða hvor annarri yfir það sem þær eiga að kunna áður en þær fermast. Þær eiga að skila þessu inn á morgun. Það var ekki hægt að sjá eða heyra annað en að þær skemmtu sér ágætlega yfir þessu. Með allskonar kerfi og aðferðir til að muna allt saman. M.a.s. búnar að búa til smá lag til að muna röðina á boðorðunum, virtist virka ágætlega. Ég sat hérna smá stund í stofunni, var að búa til afmæliskort, og hlustaði á þær og henti inn nokkrum hóstviskuorðumhóst. Ég var alla vega ekki að taka þátt í fíflaganginum í þeim, ég geri ekki svoleiðis... bara ekki. Verð að viðurkenna að ég missti mig smá þegar 14 ára dóttir mín spurði "mamma, finnst þér ekkert kaldhæðnislegt að boðorð númer sex skuli vera "þú skalt ekki drýgja hór"?" Hún er greinilega ekki alveg jafn saklaus og hún vill vera láta þegar karl faðir hennar er með djók á takteinum - eða hún hefur tekið vel eftir! Later

Græjumál

Ég er orðin gömul - krakkarnir sluppu lifandi út úr þessu. Eitt stórt spurningarmerki og þau voru einlæglega alveg hissa á þessu öllu saman og sóru og sárt við lögðu að þau væru nú ekkert að græja þetta neitt á netinu. KBB notar bara plex miskunarlaust og keb hlustar á youtube á meðan hann lærir og sonna. Allt mjög saklaust. En þegar málin voru rædd ítarlegar kom í ljós að þau könnuðust nú við ýmislegt sem foreldrarnir báru upp á þau. Öllu fögru lofað og nú á að fylgjast með daglegri notkun daglega! Kæri mig ekki um að þurfa að loka á þau. En það verður gert ef ekkert lagast, á ekki von á að til þess komi. Æ þau eru bara svo mikil krútt þessar elskur. Það er nú gaman að segja frá því að þegar KBB kom heim í gær þá var ég ekki heima - en í fýlukasti mínu búin að fela ipad-inn hennar. Hún hringdi í mig strax (sem hún gerir aldrei) og spurði hvort ég hefði tekið hann úr hleðslu? Ég hélt það nú og sagði henni af hverju og las henni pistilinn (stödd í Föndru að græja fyrir ferminguna he...